Nýtt kirkjublað - 01.04.1916, Qupperneq 7
NÝTT KIRKJTJBLAÐ
79
honum, ef svo mætti segja, hvern andardrátt lífs vors. Þarna
og hvergi annarstaðar er mælikvarðinn á kristindóm vorn,
hvers virði hann er, eftir Jesú eigin orðum: „Ef þér elskið
mig, þá haldið þér mín boðorð“. Alt. annað er fánýtt, alt
annað er einskisvirði, alt annað er sem brothætt glerið og
bólan þunna, sem ómögulegt er að treysta. En það sem ger-
ir hitt svo mikilsvirði, gjörir það að kjarna og kórónu kristi-
legrar trúar og kristilegs lífs, er það, að enginn getur lifað
Jesú, án þess um leið að lifa guði, lifa föðumum, sem sendi
hann; að enginn getur haldið hans boðorð án þess um leið
að gjöra guðs vilja. Að elska Jesúm sem Krist, guðs son,
er að elska guð í honum; að hlýða honum, er að hlýða guði
i honum. Því að það, sem gerir Jesúm að Kristi, að guðs
syni, það er nmfram alt þetta, að guð er í honum og talar
til vor í honum, og kemur til móts við oss i honum. Þetta
er heldur ekki nein ný kenning, kæru tilheyrendur. Það er
gamla kristna trúin, sem var i upphafi, er enn og mun verða
til enda veraldar. Það er þetta, sem Páll kallaði „guðhræðsl-
unnar mikla leyndardóm“. Og hvaðan hafði Páll fengið það?
Frá sjálfum Jesú höfum vér meðtekið þetta. Hann hefir sjálf-
ur trúað oss fyrir þessum mikla leyndardómi sínum: „Trúir
þú ekki, segir hann, að eg er í föðurnum og faðirinn i mér.
Þau orð, sem eg tala til yðar, þau tala eg ekki
af sjálfum mér, en faðirinn, sem i mér er, hann gjör-
ir verk sín“. — Þess vegna sagði eg áðan, að ómögu-
legt sé að lifa Jesú, án þess um leið að lifa guði, ó-
mögulegt að halda boðorð Jesú, án þess um leið að gjöra
guðs vilja. En nú vitum vér öll, að „sá sem gjörir guðs vilja
varir að eilífu“. Og þá ætti það líka að vera oss öllum aug-
ljóst orðið, hve trúin á Jesúm sem Krist, guðs son, er afar-
þýðingarmikil. Að trúa á Jesúm sem Krist, guðs son, að
elska Jesúm sem Krist, guðs son, það er hvorki meira né
minna en sjálft eilífa lífið, — eilífa lífið, sem guð ákvarðaði
oss til, er hann samkvæmt vísdómsráði sínu lét Jesúm fæðast
í heiminn, til að leita hins týnda og frelsa það, — er hann
gaf oss Jesúm að frelsara og hjálpara, að bróður og vini á
ölium vorum vegum.
Þegar eg því aftur hugsa til þeirra, sem einlæglega þrá