Nýtt kirkjublað - 01.04.1916, Síða 8

Nýtt kirkjublað - 01.04.1916, Síða 8
80 NÝTT KIRKJUBLAÐ að trúa á Jesúm sem Krist, guðs son, en hafa enn ekki get- að fundið lijarta sinu frið og hvíld í trúnni, |)á vil eg segja við þá: Verið óhræddir. Hér er vissulega engin hætta á ferðum. Því að við sérhvern þann, sem svo er ástatt fyrir, að hans heitasta þrá er að geta horft framan í Jesúm segjandi: „Herra, þú veizt, að eg elska þig!“ — við slikan mann er óhætt að segja: Þú átt þegar það sem þú þráir. Þú átt trúna, þá réttu sáluhjálplegu trú, því að slík trúarþrá er að- eins ytri auglýsing kærleika þíns til Jesú. Þú ert orðinn lærisveinn Jesú. Þér er það aðeins ekki ljóst sjálfum. En hvernig getur það dulist lærisveininum, að hann er lærisveinn ? Ætla mætti, að slíkt væri ómögulegur hlutur. Og þó er það ekki ómögulegt. Eins og menn geta misskilið trúna, og eins og menn geta misskilið elskuna, svo geta menn og misskilið lærisveinsnafnið. Og það gera enda inargir, sem áreiðanlega eru orðnir lærisveinar. Hvernig víkur því við? Þeim finst, eða þeir lita svo á, sem það að vera lærisveinn Jesú, sé sama sem að vera orðinn fullnuma í kristindómi sínum, i trú sinni, í kærleika sínum. Þar er misskilningurinn. Að vera lærisveinn Jesú, er ekki sama sem að verafullnuma i trú sinni á hann og kærleika sínum til hans, heldur það, að keppa af alhug eftir þvi, sem hinu mikla takmarki. Páll postuli var sannur lærisveinn — hver efar það? — og þó var hann ekki annað en lærisveinn. Hann gerir þá játningu á síðustu æfiárum sínum: „Ekki er svo, að eg hafi þegar náð þ\i, eða sé þegar fullkominn, heldur keppi eg eftir því, ef eg skyldi geta höndlað það, með því að eg er höndlaður af Kristi Jesú“. Og eg tek þá heldur ekki ot djúpt í árinni, þótt eg segi: Sá lærisveinn hefir aldrei lifað á jörðu, sem hafi komist lengra en Páll i þessu, og mundi ekki óhætt að bæta við: Þeir eru naumast margir, sem komist hafa eins langt? Og þó var hann ekki fullnuma. Fullnuma er enginn, og fullnuma verður enginn, meðan hann lifir i þessari jarð- nesku tjaldbúð sinni, umkringdur af öllum hinum mörgu tæl- andi freistingum. Og meira að segja: Því meiri vextiogþvi meiri fullkomnun sem menn ná, þess betur sjá þeir hvílíkt djúp er staðfest milli breytni þeirra og hins dýrlega hugsjónar- takmarks, sem vér eigum þar §em Jesús er. Um alla oss á það heima, að vér erum lélegir lærisveinar, en sé Jesús hið

x

Nýtt kirkjublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.