Nýtt kirkjublað - 01.04.1916, Blaðsíða 15

Nýtt kirkjublað - 01.04.1916, Blaðsíða 15
KAa frf1TT KIRKJUBLAÐ Það er dásamleg saga um stúlku, sem mist,i í bernsku á 2. ári, upp úr sjúkdómi, sjón, heyrn og mál, en hefir fyrir hjálp þreifingarinnar náð hæstri mentun og orðið heimsfræg. „En saga Helenar Keller er jafnframt sagan um ógleym- anlega þrautseigju og óþrotlega elsku og þolinmæði annarar konu, kenslukonunnar, sem með henni hefir verið síðan hún byrjaði nám 7 ára gömul. Saga þeirra er saga um baráttu, sem háð er við óvenjulega örðugleika. Og mér finst hún hugnæmari en nokkur bardagasaga önnur, sem eg hefi lesið. Þær hafa engum öðrum vopnum beitt en þeim, sem vitsmun- ir og mannelska þekkir bezt, en sigurinn sem þær hafa unn- ið er að flestra dómi dýrlegur. En eg efasl urn að sá sigur hefði nokkuru sinni unninn verið, ef kveneðlið í sinni göfug- ustu mynd hefði þar ekki komið til. Eg fyrir mitt leyti er sannfærður um, að konurnar eru gæddar enn meiri forða af þol- inmóðri elsku en karlmenn, og það var þessi þolinmóða elska, sem hér reið svo mjög á“. Þetta eru orð höfundarins úr inngangi frásögunnar. Og tek eg annan kafla úr niðurlagsorðunum: „Og nú spyr eg lesarann: Finst þér ekki til um, hvert komast má? Er ekki mannssálin undursamleg? Skáldin eru oft undarlega djúpvitur. Eitt erindi eftir Steingrim Thorsteinsson er því líkast, að hann hefði ort það um Helen Keller. Þó mun erindið áreiðanlega vera eldra en hún. Það er svona: Sálin er gullþing í gleri, geymist þó kerið sé veilt. Bagar ei brestur i keri, bara ef gullið er heilt. Mjög margir af oss gera of lítið að því að menta og rækta sál sína. Þeir hafa ekki nógu sterka trú á þroska- hæfileikanum, eru eigi nógu trúaðir á framfarirnar. Enn hefir engu daufdumbu barni á Islandi verið kent að tala. Hve nær verður byrjað á því? Vér erum á eftir í mörgu. Undrasagan af Helen Keller getur vakið hjá oss marg- víslegar hugsanir. Meðal annars minnir hún mig á þessi orð

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.