Tímarit iðnaðarmanna - 01.06.1930, Síða 7

Tímarit iðnaðarmanna - 01.06.1930, Síða 7
T 1 M A R I T IÐN AÐARMANNA Prentmyndagerðin 10 ára. Siðastliðið haust (1929) var 10 ára afmæli prentmyndagerðar hjer á landi og þykir rjett að minnast þessa afmælis í Tímariti Iðnaðarmanna að nokkru. Skal þá fyrst geta þess mannsins, sem mest liefir að þessu unnið og iðninni liefir lialdið uppi til þessa, Ólafs Jónssonar Hvanndals, prent- myndasmiðs. Hann lærði fyrst trjesmíði lijá Samúel Jónssyni og gerði sveinssmíði í lienni. Stundaði hann síðan þá iðn um liríð og fór til Kaupmannahafn- ar árið 1907 og lærði þar teikn- ingu og glerskiltagerð. Var hann fyrsti maðurinn sem við liana fjekst hjer heima, eftir lieimkomu sína 1908. Um liaustið sigldi hann aftur og tók þá að læra prenlmynda- gerð hjá Hjálmari Carlsen í Ivaupmannahöfn, en var síðan í Þýskalandi 1909—1911, fyrst við efnafræðis og teikninám í framhaldsskóla i Berlín og sið- an hjá Brockhaus í Leipzig og lauk þar námi í prenlmynda- gerð. Var liann þannig fyrsti íslendingurinn, sem þá iðn lærði til fullnustu. Ólafur kom heim lnngað sumarið 1911, en gaf sig þá að öðrum störfum en iðnaði. Leið svo fram til ársins 1919. Þá um vorið fór Ólafur sál. Björns- son ritstjóri til útlanda og keypti prentmyndaáhöld, sem kom þó fyrst lil landsins vor- ið eftir. Með áhöldunum komu tveir útlendingar, Person, sænskur maður og hinn danskur, Emil Gjerlöv að nafni, og áttu þeir að setja upp áhöldin og kenna innlendum manni að fara með þau. Gerlöv var hjer að- cins þrjá mánuði en hinn lengur. Var prent- Ólafur llvanndal. myndagerð þcsi rekin i IV2 ár, cn varð þá að hætta, aðallega vegna of dýrs rafmagns til rekstursins. Hefir liún ekki verið rekin síðan [ 19 ]

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.