Tímarit iðnaðarmanna - 01.06.1930, Blaðsíða 16

Tímarit iðnaðarmanna - 01.06.1930, Blaðsíða 16
T I M A R I T IÐNAÐARMANNA stóra kost eftir þessa aðgerð að þau fuðra ekki upp þótt eldur komist í þau, — þau sviðna bara með hægð, og verða vitanlega að ösku, en loga-laust. Væri ekki vert að reyna þetta? Þá skal stuttlega minst á útvortis skemdir eða bruna af sýrum og lútartegundum. Sýrur, t. d. brennisteinssýra, saltpjeturssýra, saltsýra, edikssýra, brenna holdið með þeim hætti að það herpist eða skorpnar, og liturinn breytist um leið. Lútarefni skemma á annan hátt: holdið verður eins og hlaup, upphólgið, holdvefirnir sviftast sundur og jetast. Þessi skaðsemdaráhrif geta auðvitað verið misjafnlega mikil, og er hjer höfð hin sama skifting og á bruna af hita. Er talið fyrsta stig þegar hörundið skemmist ekki að öðru leyti en þvi að það litbreytist, annað stig þegar blöðrur hlaupa upp og þriðja stig þegar hruna skorpur myndast. * Viðvikjandi hjálpinni, þegar svona vill til, þá er í fám orðum sagt farið í öllum aðalat- riðum að eins og við hvern annan bruna. Eins er þó að gæta: eitrið, sem brunanum olli, heldur áfram að skemma út frá sjer ef ekkert er að gert annað en að búa um sárið. — Það verður því fyrst að gera óskaðlegar þær drefjar af eitrinu, sem leynast í liúðfelling- um — eða í sári, ef svo er komið — og þetta er gjört með gagneitri ef svo mætti kalla. Þar verður að setja það á sig sem almenna reglu (og þó ekki undantekningarlausa) að eitur- áhrif sýru hverfa ef þar lcemur á móti lútur og þvert á móti. Vð átbruna af sýrum á því að þvo bruna- staðinn vandlega og lengi úr þyntri upplausn af einhverju lútarkendu efni (sódaduft, mag- nesía, kalk, leyst upp í vatni) áður en búið er um skemdina, en við átbruna af lútareitr- unum eru hafðar þyntar sýrur (ediksblanda, sem hendi er næst, eða sítrónuvatn, % sítrona kreist út í hálfan lítra af vatni), og síðan bund- ið um með bórsalvi, eða þvil. -— Og svo eru þessar undantekningar undan þessum megin- reglum: við átbruna af brennisteinssýru á ekki að þvo sárið úr vatni, lieldur hella á það olíu (malarolíu) og búa um síðan með þurr- um sótthreinsuðum umbúðum. Við bruna af kalki á ekki að hafa vatn heldur olíu. — Fari kalk upp í auga á að láta drjúpa í það nokkra dropa af olíu fyrst, og skola síðan með salt- vatni. Lífgun druknaðra. Lífgunartilraunir við hengda, kæfða o. fl., lífgun úr dauðadái alment. í Sundbók í. S. í. er ágætur leiðarvísir og skil- merkilegur um lífgun drukknaðra og ættu sem flestir að kynna sjer liann rækilega. En til þess að ekki sje gengið hjer algjörlega fram hjá jafn- mikilvægu atriði í þesumstuttaleiðarvísií„hjálp i viðlögum“ skal hjer nú rifjað upp hið helsla í sem fæstum orðum og byrjað þar sem búið er að ná manninum á land. — Er hjer tekið að inestu orð rjett upp úr Sjómannafjelags- almanakinu, en með fullri heimild þó, því að höfundurinn er sá sami. Legstu sjálfur á annað hnjeð, en bygðu hinn skankann i mjaðmarlið og hnjálið hjer um bil í rjett horn, og legðu hinn druknandi snöggvast á það hnjeð (á þóptu, á borðstoklc í bát, ef svo stendur á) eða legðu hann snöggvast á grúfu, klofaðu yfir hann, rendu lófunum undir mitti hans, læstu þar saman höndunum, lyptu svo manninum upp líkt og sýnt er á 38. mynd, til þes að láta renna upp úr honum, en eyddu þó ekki löngum tíma í þetta. Losaðu eða láttu losa í snatri hálsklút hans, mittisól, buxnastreng, axlabönd, í stutlu máli alt, sem að lionum þrengir, láttu fletta 38. mynd. „Helt iir manni". [ 26 ]

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.