Tímarit iðnaðarmanna - 01.06.1930, Blaðsíða 8
T 1 M A R I T
IÐNAÐARMANNA
Helgi Guðmundsson
og hefir Hvanndal keypt áhöld hcnnar. Ólai'-
ur Hvanndal fjekk sín áhöld liálfu ári áður
en hin komu eða haustið 1919 og setti þau
upp þá þegar. Fór hann hægt af stað og not-
aði aðallega sólarljósið til framköllunar mynd-
anna, enda var hjer ekki þá um arðvænlega
atvinnugrein að ræða, eftirspurn lítil eftir
myndum en áhöld dýr og tilkostnaður allur
mikill. En einmitt með þessu, að byrja smátt
og bæta við síðan, tókst Ólafi að lialda verk-
stæðinu uppi, auka það og bæta og gera það
síðan að því, sem það nú er, allfullkomin prent-
myndagerð með góðum áhöldum og 3 mönn-
um í föstu starfi. Er einn þeirra Helgi Guð-
mundsson, sem tók próf í prentmyndagerð hjá
Ólafi í vor, og er þannig fyrsti maðurinn, sem
tekur próf í þessari iðngrein hjer á landi.
2 árum síðan fór ólafur utan og lærði þá
litprentun eða mótagerð fyrir hana. Eru með-
fylgjandi litmyndir (málverk) sýnishorn af
slíkri litprentun og mótin auðvitað gerð hjá
Hvanndal, eins og mótin af öllum öðrum
myndum hjer í ritinu. Eru þær myndir auð-
vitað besta sönnunin fyrir vandvirkni verk-
stæðisins og sýnishorn af þvi, hvað það getur.
Erfiðleika átti Ólafur við að stríða oft og
tíðum, einkum framan af námsárunum og
fyrstu rekstursárin. Hafa sennilega ýmsir orð-
ið til þess að hvetja liann, en aðeins einn,
sem rjelti lionum hjálparhönd þegar mest
reið á, og það óbeðið, en það var Halldór heit.
Jónsson. Þegar Ólafur hafði nýráðið sig hjá
Hjálmari Carlsen og vantaði peninga til þess
að greiða með kenslugjaldið, liitti liann Hall-
dór, sem gaf sig á tal við hann. Þegar Halldór
svo heyrði hvað um var að ræða hjá Ólafi,
bauðst liann til að lána honum, því slik iðn
yrði að komast inn í Iandið og hlyti að ciga
framtíð fyrir sjer, enda reyndist hann Ólafi
ágætlega úr því, meðan honum entist aldur tiL
Halldór Jónsson.
[ 20 ]