Tímarit iðnaðarmanna - 01.06.1930, Blaðsíða 9
TlMARIT IÐNAÐARMANNA
Prentmyndagerðin.
Eins og a'ð framan getur, hefir verkstæðið
nú það vönduðum áhöldum og vönum mönnum
á að skipa, að þar má fá gerðar myndir, sem
fullkomlega jafast á við útlendar prentmyndir.
Prentmyndagerðin liefir frá byrjun verið til
húsa hjá prentsmiðjunni „Gutenherg“ með góð-
um kjörum, og hefur Ólafi verið góður styrkur
að því. En nú mun hann verða að flytja þaðan
í sumar.
En þrátt fyrir dugnað Ólafs og aukið manna-
hald er nú svo komið, að betur má ef duga
skal. Nú er farið að nota svo mikið myndir í
bækur, blöð og timarit, að þetta eina verk-
siæði annar því ekki öllu, nema það stækki
enn meir en komið er; því það er vitanlega
ekki viðunandi, að þurfa að tefja útkomu rits
um óákveðinn tima fyrir það eitt, að ekki fá-
ist gerð myndamótin í tæka tíð. Er vonandi
að Ólafur sjái sjer fært að auka fljótlega svo
verkstæði sitt, að hann geli annað allri prent-
myndagerð hjer á landi, afgreitt alt að óskum
viðtakanda og samtímis staðist alla útlenda
samkepni bæði livað verð og vöndun snertir.
Óskum vjer honum af alhug til heilla með alla
viðleitni í þá átt, og vonum að listfengi lians,
leikni og þrautseigja og dugnaður vinni bug
á öllum erfiðleikum, sem á þeirri leið hans
kunna að verða.
[ 21 ]