Vikublaðið - 10.02.1950, Qupperneq 11

Vikublaðið - 10.02.1950, Qupperneq 11
VIKUBLAÐIÐ 11 KROSSGÁTA Ráðning á krossgátu í síðasta blaði. Lárétt: 1. skref. — 6. skass. — 11. skeiía. — 12. kaflar. — 14. kálfar. — 15. aflóga. — 16. ort. — 17. rist. — 19. aðan. — 20. Prag. — 22. nót. — 23. aða. — 24. París. — 26. rakarar. — 29. sef. — 31. röm. — 32. stoltar. — 36. rakan. — 40. lof. — 41. lóa. — 43. rata. — 44. álfa. — 46. laut. — 48. kaf. — 49. slitin. — 51. 'kasaða. — 53. Tatari. — 54. aðilar. — 55. raðar. — 56. ragir. Lóffrétt: 1. skárra. — 2. Keltar. — 3. rif. — 4. efar. — 5. farin. — 6. skattar. — 7. kaf. — 8. afla. — 9. slóðar. — 10. sagaða. — 11. ©kopp. — 13. ranar. — 18. sór. — 21. gísl. — 25. set. — 27. kör. — 28. amar. — 30. fallnir. — 32. slást. — 33. tollar. — 33. offita. — 35. róa. — 37. Kakali. — 38. ataðar. — 39. nafar. — 42. aukar. — 45. atað. — 47. taða. — 50. IRA. — 52. sig. Af Vestur-Evrópu þjóðunum verða Hollendingar elztir, en írar skammlífastir. Árið 1947 dóu í Hollandi 8,1%, (af þúsundi) en 1948 7,4%,. En það er lægsta dánartala, sem heyrzt hefur frá nokfcru landi. Á írlandi dóu 14,9%, árið 1947. ★ Það er fcunnugt, að ausið hefur verið ilmvatni og fcryddjurtum á götur borga við mjög hátíðleg tæki- færi. Þetta var t. d. gert er Neró hélt innreið sína í Róm 59 e. Kr. Götumar í Koborg voru „spraut- aðar“ með Eau de Cologne (Kölnar- vatni) þegar Viktoria Englands- drottning og maður hennar heim- sóttu borgina 1845. „STOLT ÞJÓÐARINNAR44 Keykjalundur 5 ára iiiiiiiMiittiMauiMiifijraHiiiaiiiiiaittiiitHmiiritiiitiiiiiiiitiiiitiiiiiiiaNBiiaiiiiiiiiaiiii Hinn 1. febrúar 1945 tók til starfa Vinnu- heimilið að Reykjalundi og á það því 5 ára afmæli um þessar mundir. í tilefni þessa merkisviðburðar, sneri ég mér til forseta S. í. B. S., hr. Maríusar Helgasonar og átti við hann stutt viðtal, sem hér fer á eftir: nillllllllllllllllllllllllllllHllllilllllllllllllllllllllillllUWIMIUIIIIHIIIIMINIIIIIllUlllI — Hvað segið þér mér um upphaf þessa afmælisbarns, sem kunningi minn einn kallaði „Stolt þjóðarinnar"? — Það mun hafa verið á Reykjahælinu, sem hugmyndin um vinnuhælið kom fyrst fram, en fékk þá fyrst byr undir báða vængi, er S. í. B. S. hófst handa 1940. Þann 3. júní 1944 var byrjað á hinum fyrstu byggingaframkvæmdum, en þeim hefur verið haldið óslitið áfram til þessa. Fyrirmyndin að hælinu er ensk, en tilhögunin með nokkuð öðrum hætti en annars staðar þekkist. Að Reykjalundi eru nú 11 vistmannahús, og er hvert þeirra fjórar íbúðir. Þar eru og 4 starfsmannabústaðir og 1 sumar- bústaður, er var á landareigninni áður en sambandið hóf starfsemi sína. Einnig eru þar 20 hermannaskálar, sem ýmsar vinnustofur hafa verið í og eru enn. En auðvitað hverfa her- mannaskálamir eftir því, sem byggingaframkvæmdum verður haldið áfram. Enda full þörf á endurnýjuðu húsnæði vinnu- stofanna, því að braggarnir eru orðnir mjög lélegir. — Byggingin er sögð með þeim myndarbrag, að óvenjulegt má teljast. Hvað segið þér um það? — Byggingin er um 10.000 rúmmetrar og er mjög til hennar vandað. Á fyrstu hæð er dagstofa, borðstofa og lesstofa, en Vinnuheimilið á allgott bókasafn. Þar er einnig mjög full- komið eldhús með allskyns rafmagnsvélum. Þar er brauð- gerðarstofa, kalt eldhús, uppþvottaherbergi og þrír kæli- skápar auk mjólkurgeymslu. Á fyrstu hæðinni er einnig sjúkradeild, sem ætluð er þeim, sem snögglega kynnu að veikjast, t. d. úr lungnabólgu, botn- langabólgu og öðrum slíkum sjúkdómum, ásamt skurðstofu, Framth. á bls. 14.

x

Vikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/367

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.