Glettingur - 06.01.1932, Blaðsíða 2
2
GLETTINGUR
Gefið gaum, borgarar.
A þessum yfirstandandi krepputímum er þess hin mesta
nauðsyn hverjum manni, að fá sem mest fyrir sína peninga.
Pað gera menn best með því, að kaupa þar sem verðið er lægst
og varan drjúg og endingargóð. MATVÖRUVEI^ÐIÐ okkar
er alkunna. Pað hefir verið og cr lœgst i bæmim. Allar nauð-
synjavörur eru til — alt vandaðar vörur — altaf erum við sam-
keppnisfærir í hverri grein og meir en það. —
Munið að PÓR S-ÖLIÐ landskunna fæst hjer.
GLEÐILEGT NÝJÁR! Pökk fyrir við-
skiftin á liðna árinu.
BÍÓBÚÐIN.
unum að gera upp sinn pólitíska
status og velta því fyrir sér hvort
hann ætti að gera það fyrir And-
rés að ganga í Framsóknarflokkinn,
eða hvort hann ætti framvegis að
drekka íhaldsdús við Sigurð Björg
og aðra Sjálfstæðisbeinmarka, eða
hvort hann ætti að verða pólitísk
skipaskækja eins og Kristján Jak-
obsson, sem er kommúnisti í dag,
krati í gær, framsóknarmaður í fyrra-
dag og íhaldsmaður á morgun. Nei,
svo hálsliðamjúkur gat Friðbjörn
ekki verið hvorki á samvisku né
sannfæringu. Hann var djúplega
þenkjandi um þessa hluti meðan
hann var að fara úr buxunum og
klæða sig i náttkjólinn út við glugg-
ann. Heyrði hann þá einhvern ys
úti á götunni, mannamál og meyja-
kvak og leit út. Uti var hríð, iðu-
lítil og snarsog á götunni. Vissi
hann engra manna von í slíku ó-
færuveðri. Enda munu þetta hafa
verið andrænar verur, spiritiskar, og
konsentreraðar í holdgunargerfi á
la spir. conc. Nú fór Friðbirni ekki
að verða um sel og hélt að hann
væri að fá dellu, en vissi þess þó
enga von, þar eð hann hafði eigi
áfenga drykki bragðað þetta kvöld,
utan þrjá Tíkarbranda og nokkur
hundruð grömm af Landa, sem
hann fann af tilviljun grafið í fönn
uppi í Reit. Var honum síðar sagt,
að þetta hefðu verið Höskuldar-
„prufur” sem umboðsmaður Hösk-
uldar hefði verið að analysera þarna
hvort þyldu frost. Höfðu þær prýði-
lega staðist raunina. Mælir Glett-
ingur fast með þeirri vöru, því
hann veit, að hún er innlendur iðn-
aður og kreppuráðstöfun eins og
kirkjuböllin hans Asgeirs og klúbb-
arnir og bíósýningar. — Friðbjörn
nuddaði augun, setti upp gleraugun,
leit af sýninni, en ekkert dugði. Pað
sem hann sá var á þessa leið: í
gegn um kófiðuna grillti í allmargar
svífandi kvennverur eða dísir. Voru
þær hjúpaðar slæðum með ýmsum
litbrigðum. Stígu þær draumléttan
dans á fönninni og völsuðu fram
og aftur með ýmsum fettum og
brettum, föktum og töktum, og svifu
fremur en gengu, og það hyggur
l"riðbjörn, að eigi hafi spor sést eft-
ir þær. Gullu þær við hátt eigi ó-
líkt álftum í sárum, og fylgdi söng
þeirra grátbliður munklökkvi, svo
honum lá við gráti og fylltist ó-
slökkvandi þrá til þessara fögru vera.
Hann breiddi út faðminn, en —
Adam var ekki lengi í Paradis Alit
í einu þusti að dísunum hópur
dökkálfa sem virtust líða útúr porti
Hertervigs. Tóku þeir dísirnar fang-
brögðum og fleiri brögðum og Iéku
þær grátt þarna í skaflinum. Varð
af þessu ys mikill og órói. Dísirn-
ar hrinu nú við hátt og gnöllruðu.
En brátt fóru að vænkast atlotin
og allt fór það dansandi suður götu.
Fylgdi fylkin gunni einn bústinn
músikant sem bar emjandi grammó-
fón á maganum, og urgaði fr.á hljóð-
færinu „Ich bin ja heut soglúcklich"
en fylkingin brá á trott og hvarf í
stefnu á sparisjóðinn, og það ætla
menn að þar hafi „heila klabbið"
horfið inn til Ingimundar. Eigi
mátti glögglega greina vöxt veranna
og því síður andlitsfall, en mikið
má það vera ef þarna hafa eigi
verið spiritusar á ferðareisu. Hefir
slíkt oft tilborið, að slikar undra-
sjónir hafa borið fyrir mannleg augu
sbr. dýrin í Opinberunarbókinni,
sýnir Esekiels og huldufólkið i Stað-
arhóli o. fl. því líkt. En það bar
af hve verur þessar virtust vera
holdlegrar náttúru af öndum að
vera. Nú með því að Friðbjörn á
eigi vanda til slíkra sýna, þykir sýnt
að þetta boði stór tíðindi, þingrof,
kosningar,. stjórnarfall, kreppusótt
eða Kommúnistabyltingu, endurreisn
Einkasölunr.ar, afnám banniaganna,
endurreisn Siglfirðings eða því um
líkt. Svo mikið er víst, að þetta
var ekki einleikið, nema þetta hafi
verið unglingar að dansa á milli
nýárssnapsanna. Og það hafi verið