Vikan - 04.06.1953, Síða 4
ELIZABETH
DROTTNING
Það er alkunnugt, að starfsdagur drottningarinnar er
feiknlangur og og erfiður. Hver mínúta er notuð — og veit-
ir ekki af. Drottningin stjórnar ríkisráðsfundum, og mik-
inn fjölda ríkisskjala má hún staðfesta með undirskrift
sinni daglega. Hún tekur á móti sendiherrum og þjóð-
höfðingjum og situr margar veizlur. Hún ferðast líka mik-
ið, og sá dagur líður varla, að hún komi ekki fram opin-
berlega. Hún opnar sýningar og heimsækir vinnustaði, kem-
ur í sjúkrahús o. s. frv. Hún lærði mikið af föður sínum,
George VI, en hafði auk þess hina beztu kennara. Hún ræk-
ir skyldustörf sín af alúð og samviskusemi, og er þegar í
miklu afhaldi hjá þjóð sinni. 1 stríðinu fékk hún þeim vilja
sínum framgengt að ganga í herinn. Hún gekk í flutninga-
deild kvenna. Hún varð liðsforingi 1944, þá 18 ára.
Hin nýkrýnda drottning í
Englandi er fœdd 21. apríl 192fí.
Hún giftist Philip, liertoga af
Edinborg, í Westminster Abbey,
20. nóvember 19Jfl. Þau eiga tvö
börn: Charles prins, hertoga af
Cornwall, sem fœddur er lJf.
nóvember 19J/8 og taka mun við
ríki eftir móöur sína, og önnu
prinsessu, sem fœdd er 15 ágúst
1950. Elizabeth II tók við völd-
um þegar eftir lát föður síns,
en liann varð bráðkvaddur 6.
febrúar 1952, þegar hún og
Philip voru stödd í Kenya í
Afriku á leið til Ceylon, Ástra-
líu og Nýja Sjálands. Þau flugu
heim til Englands daginn eftir,
þar sem nánustu œttingjar hinn-
ar nýju drottningar tóku á móti
henni á flugvéllinum, ásarnt
helztu ráðherrum hennar.
Allur heimurinn fylgdist nákvæmlega með tilhugalífi
Elizabethar (sem þá var prinsessa) og Philips Mountbatten
(sem þá var foringi í brezka sjóhernuml.
Áður en þau opinberuðu trúlofun sína,
voru ýmsir til nefndir sem væntanlegir
„drottningarmenn“. Svo voru þau gift
með pomp og pragt, og hafa verið vin-
sælustu hjón i Bretaveldi siðan. (Myndin
hér efra er úr húsinu, sem þau bjuggu í
fyrstu mánuðina). Philip er hár og lag-
legur, og kvað auk þess vera gáfaður og
fyndinn. Hann er sjómaður góður. Líka er
hann talsveröur íþróttamaður, eins og
raunar drottningin, sem fullyrt er að sé
einn bezti hestamaðurinn í landinu — og
þótt víðar væri leitað. Það kemur sér vel,
eins og forsíðumyndin ber með sér, en hún
var tekin í fyrra, þegar Elizabeth tók þátt
í hinni árlegu hersýningu Grenadier Guards í miðri Lond-
on. Þetta er mikil og glæsileg sýning, sem þúsundir Lund-
únabúa koma til að sjá. Hermennirnir eru í viðhafnarbún-
ingi sínum, sem er ákaflega skrautlegur, og á höfðinu bera
þeir feiknháa hetti úr bjarndýrsfeldum. Drottningin er höf-
uðsmaður Grenadier varðsveitanna. Hún kom fyrst fram
opinberlega á þessari hersýningu 1951, sem staðgengill föð-
ur sins.
4