Vikan - 26.11.1953, Blaðsíða 5
FORSAGA
I/DI4
-— -- EFTIR ALICE DUER MILLER
Ung rík stúlka, LYDIA THOKNE,
býr með BENNY lagskonu sinni
í New York. Hún er foreldralaust
dekurbarn, sem alitaf hefur farið
sínu fram. Vinir hennar eru ELE-
ANOK og BOBBY. Hún ekur of
hratt og mútar lögregluþjóni, sem
stöðvar hana, með dýrmætu armbandi.
EGAR Lydia kom upp, beið hennar allt, sem
hún þurfti á að halda — herbergið var upp-
ljómað, eldurinn logaði glatt á arninum, vatnið
beið í baðkarinu, sokkarnir og undirfötin lágu
á stói, kjóll úr gylltu og grænu efni á rúminu
og gylltir sandalar á gólfinu. Og þar stóð Evans
og starði á klukkuna, eins og kvenprestur, sem
bíður þess að þjóna gyðju sinni.
Lydia kastaði frá sér hattinum og Evans fór
að hjálpa henni úr blússunni. Hún hneppti frá
erminni og leit skelfd á Lydiu. — Armbandið yð-
ar?
— Armbandið? Lydia var búin að gleyma því.
— Litla armbandið með demöntunum, sem þér
fóruð með út. Það fór í taugarnar á Lydiu, hve
óttaslegin og æst stúlkan var.
— Ég hlýt að hafa misst það, sagði hún.
Stúlkan gaf frá sér hljóð, eins og hún hefði
sjálf glatað einhverju. — Ó, það er hræðilegt
að týna svona dýrmætu armbandi!
— Ég get ekki skilið, hvers vegna þér hafið
áhyggjur af þvi Evans, úr því mér er sama.
Evans þagði og hélt áfram að afklæða hana.
Tuttugu mínútum seinna ók einkabílstjórinn
Lydiu til Piershjónanna. Meðan hún sat þarna
ótrufluð, hafði hún betra næði til að hugsa en
venjulega. Hún hallaði sér aftur á bak í sætinu
og fór að hugsa um hve einmana hún væri —
alltaf þyrfti hún að taka öllum aðfinnslum ein.
Var hún þrákálfur, eins og Ilseboro hafði sagt?
Hún var kannski ákveðin, en hvernig var hægt
að fá nokkru framgengt, ef maður var eftirlát-
ur? Benny, sem hafði marga ágæta kosti, var
t. d. eftirlát og hvernig hafði farið fyrir henni?
Nú var hún hálf sextug lagskona ungrar stúlku.
Lydiu grunaði, að faðir hennar hefði viljað giftast
Benny tíu árum áður og að hún hefði hafnað
honum. Hún þóttist vita hvers vegna — Benny
fannst Joe Thorne grófur og henni þótti ekki
vænt um hann. Þetta var auðvitað ákaflega há-
leit hugsun, en sýndi það samt ekki veikleika að
vilja ekki eiga neitt á hættu? Hefði Benny ekki
sýnt meiri manndóm, ef hún hefði ákveðið að
giftast gamla manninum vegna peninganna
hans? Hefði hún gert það, væri hún nú ekkja
hans og Lydia undirgefin stjúpdóttir hennar. En
hvað hún hefði þá hatað hana!
Piershjónin höfðu byggt sér höll eftir franskri
fyrirmynd og tekizt að breyta kyrkingslegum
skógi í garða, grasfleti og bolla. Lydia steig út
úr bílnum og stanzaði á marmaratröppunum,
meðan hún sveipaði kvöldkápunni betur um sig.
Hún leit við, þegar bílstjórinn spurði hvenær
hann ætti að sækja hana.
— Við skulum sjá — átta — tíu — bridge.
Komdu klukkan ellefu.
Um leið og hún lét þjónustustúlkuna taka
kápuna sína, leit hún i spegilinn í búningsher-
berginu og sá granna stúlku í gylltum og græn-
um kjól með smaragðaband um ennið.
Hún sá það um leið og hún kom í dyrnar, að
veizlan yrði ekki mjög skemmtileg — aðeins átta
gestir og þeir litu ekki út fyrir að vera góðir
bridgespilarar. Hún hlustaði þolinmóð á Fanny
Piers, sem sagði að fjórir gestir væru búnir að
afþakka boðið síðan klukkan sex. Hún kinkaði
kolli við þessari afsökunarbeiðni og stillti sig um
að láta í ljósi þá skoðun sína, að ef Piershjónin
héldu skemmtilegri veizlur, mundi fólk ekki
bregðast þeim eins oft á síðustu stundu.
Hún leit í kringum sig. Þarna var Tim And-
rews. Hún gat þó alltaf skemmt sér, þegar Tim
var nálægt. Og May Swayne, ung Ijóshærð
stúlka, sem Lydia var búin að þekkja og hundsa
I mörg ár, þó May veitti þessari framkomu henn-
ar enga athygli. Þarna var Hamilton Gore líka.
Hann var eftirlegukind frá fyrri kynslóð, of gam-
aldags og of hátíðlegur fyrir nútíðina. Samt sem
áður var hann dálítið eggjandi. Síðast hafði hann
kallað hana svart, liðlegt pardusdýr og henni
fannst auðvitað alltaf gaman að slíku. En síðan
hafði hin illmálga Fanny Piers haft annað eft-
ir honum í hennar eyru. Hann hafði kallað hana
fánýtan siðleysingja. Henni geðjaðist ekki að
því að vera kölluð fánýt. Og hún ætlaði að ná
sér niðri á honum fyrir það. Ef allt annað brygð-
ist gæti hún skemmt sér við það. Hún gæti t. d.
sagt — Sæll, Gore! Þú hefur víst varla átt von
á að hitta siðleysingja í kvöldverðarboði — sér-
staklega ekki fánýtan siðleysingja. Fanny mundi
auðvitað verða fjúkandi reið, en hún gat líka
búizt við því að lenda í vandræðum, ef hún hafði
annað eins eftir.
Og hvar var svo þessi nýi vinur Eleanoru —
þessi skemmtilegi og efnilegi maður. Lydia leit í
kringum sig og kom auga á hann. Hamingjan
góða, hann leit svo sannarlega út fyrir að vera
einhvers virði, en ekki beinlínis i þeim skilningi,
sem Eleanor lagði í það orð — efnilegur stjórn-
málamaður. Hann var myndarlegur, hár og herða-
breiður. Meðan hún var að vega hann og meta,
sneri hann sér að nokkru leyti frá henni, svo
hún sá lítið annað en stærðina, sólbrúna húðina
og dökkt þykkt hárið i hnakkanum. Eleanor,
sem virtist smávaxin við hlið hans, leit ekki út
fyrir að reyna að vekja athygli á honum. Eleanor
var aldrei smekklaus. Nú sagði hún eitthvað við
hann, líklega að hún ætlaði að kynna hann fyrir
vinkonu sinni. Hann leit við og augu þeirra mætt-
ust — hann hafði það undarlegasta augnaráð, sem
hún hafði nokkru sinni séð. Hún fann, að hún
starði lengur á hann en góðu hófi gengdi. Að
vísu kærði Lydia sig kollótta um allar siðavenj-
ur, en hún kærði sig ekki um, að maðurinn héldi,
að hún hefði orðið ástfangin af honum við fyrstu
sýn. Hún hafði aldrei fyrr séð augu, sem leiftr-
uðu svona, urðu ýmist dökk eða ljós, stór eða
lítil, eins og í ketti, en þó voru þau grá — Ijós-
grá í mótsetningu við dökka hárið og hörunds-
litinn. Svipurinn var líka óreglulegur. Augun
virtust æst og áköf en munnurinn aftur á móti
festulegur og háðslegur. Hvað hafði Bobby aftur
sagt um hann ? Að hann hefði verið villtur á
skólaárunum? Því gat hún vel trúað. Á meðan
hafði Eleanor kynnt hann og Lydia reyndi að
fynna eitthvert umræðuefni. Henni fannst alltaf
svo erfitt að hitta nýtt fólk — það var svo miklu
þægilegra að spjalla við gamla vini. Benny
sagði, að það væri sveitalegt. Hún reyndi að hefja
máls á einhverju.
— Komið þér sælir, sagði hún í sömu tónteg-
und og Ilseboro. — Búið þér hérna í nágrenn-
inu ?
Það hefði mátt telja upp að þremur áður en
hann sýndi nokkur merki um að hafa heyrt til
hennar. En þá sagði hann: — Já, ég bý tíu míl-
ur héðan.
— Auðvitað! Þér eruð dómari eða eitthvað
þessháttar, er það ekki?
Var maðurinn heyrnardaufur ?
— Jú, eitthvað þessháttar.
Hún veitti því athygli, að hann lét alltaf líða
svolitla stund, áður en hann svaraði. Það hafði
Ilseboro líka gert. Að vissu leyti var það áhrifa-
ríkt. Það kom fólki til að hugsa um, hvort það
hefði sagt eitthvað heimskulegt. Hann var langt
frá því að vera heyrnardaufur?
— Ætlið þér þá ekki að segja mér hvað þér
gerið? spurði hún.
Hann hristi höfuðið alvarlegur á svipinn. En
nú kom Lydia auga á Gore, sem stóð rétt hjá
henni og stóðst ekki freistinguna. Svo hún sneri
baki við vildarvini Eleanoru.
— Sæll, Gore. Þú hefur ekki búizt við að hitta
skrælingja í kvöld ■— allra síst fánýtan siðleys-
ingja ?
Gore sneri sér ófeiminn að henni og svaraði
skrækri röddu. — Getur nokkuð borið meiri vott
um siðleysi en þessi árás þín? Já, góða mín, ég
sagði það og það sem verra er, ég meinti það.
Þetta er mín skoðun á þér.
Lydia sneri sér aftur að O’Bannon. •— Munduð
þér halda, að ég væri siðlaus?
— Þér eruð að minnsta kosti ekki fánýt, svar-
aði hann.
Þau gengu inn í borðstofuna. Það var siður
Fannyar Piers, að láta vinkonur sinar sitja
næstar ungu mönnunum, sem þær komu með,
svo O’Bannon fékk sæti við hlið Eleanoru. Hann
sat hægra megin við húsmóðurina, en Gore
vinstra megin, næst honum kom Lydia og síðan
Tim, May, Piers og þá var röðin aftur komin að
Eleanoru. Lydiu geðjaðist vel að þessari sæta-
skipun. Hún hélt áfram að ráðast á Gore. Elea-
noru líkaði þetta fyrirkomulag jafnvel enn betur.
Hún var búin að þekkja Noel Piers alltof lengi,
til að eyða tímanum í að ræða við hann og þar
sem hann virtist henni sammála, gat Eleanor
snúið sér að O’Bannon. Hæfileikar hennar og
áhugi fyri honum, gerðu henni fært að tala.um
VEIZTU -?
1. Hver er maðurinn?
2. Hvers vegna hlaut Moses þetta nafn?
3. Hvaðan kemur korkurinn?
4. Hvað er Eyjafjallajökull hár?
5. Hvar settust víkingar að í Frakk-
landi ?
6. Hverjir lifa og sofa en loka þó ekki
augunum ?
7. Hvað heitir höfuðborgin í frönsku
Indo-Kína ?
8. Hver var Rhett Butler?
9. Hvers vegna kemur stundum rok?
10. Hvaða tveim litum þarf að blanda
saman til að fá appelsinugult ?
Sjá svör á bls. 18.
5