Vikan


Vikan - 10.03.1955, Síða 2

Vikan - 10.03.1955, Síða 2
PÓSTURINIM Fyrir Huldu, Nínu o. fl. birtum við ljóðið Bergmálsharpan eftir Loft Guðmundsson. Erla Þorsteinsdóttir hefur sungið það inn á hljómplötu. Úr draumafirrð mér blærinn ber þann bjarta strengjahreim, er kallar hug úr ys og önn í æskudalinn heim Falleri, fallera . . . þann bjarta strengjahreim. Þar huldumær í hamraborg í heiðaskjóli býr, er blærinn strýkur blóm og lyng, hún bergmálshörpu knýr Fallerí, fallera . . . Hún bergmálshörpu knýr. Sú ljúflingsharpa á hljómaklið við hverja von og þrá. Við gleðisöng og sorgarklið berst svarið strengjum frá. Fallerí, fallera . . . berst svarið strengjum frá t Og hver, sem með þann hörpuseið í hjarta lagði á braut, á draumaleið í dalinn heim úr dagsins önn og þraut Fallerí, fallera . . . úr dagsins önn og þraut. SVAR TIL „FORVITINS" Spurn- ingar þinar eru ákaflega erfiðar við- fangs, ekki sízt vegna þess að lög- in um mannanöfn eru sennilega þau lög, sem mest eru brotin á Islandi (að skattalögunum ekki undanskild- um). Skv. ofannefndum lögum frá 1925 (nr. 54), hefur enginn mátt taka sér ættarnafn síðan, en þeir, sem þá báru ættarnöfn máttu halda þeim. Þú hefur þvi ekki lagalega heimild til að skíra barn einhverju nafni og gera það að ættarnafni af- komenda þinna. Aftur á móti þekk- irðu vafalaust ótal dæmi þess, að menn kalli sig hinum og þessum eftirnöfnum, sleppi staf úr föður- nafni sínu o. þ. h., ef þeim býður svo við að horfa. Nafnið, sem þú nefndir finnst ekki í spjaldskrá Hagstofunn- ar, en það er þó ekki loku fyrir það skotið, að það sé til, og það meira að segja i öllum þeim útgáfum, sem þú 'nefndir. Viltu segja mér eitthvað um Mitzi Gaynor, hvort hún er gift, hvað hún gerði áður en hún varð kvikmynda- stjarna o. s. frv. SVAR: Mitzi Gaynor er fædd í Chi- cago. Móðir hennar var dansmær, faðir hennar stjórnar dans og söng- leikjum, og Mitzi hefur dansað og sungið síðan hún man eftir sér, eða frá því að hún var fjögurra ára gömul og byrjaði í balletskóla. Nú er hún að verða ein af vinsælustu stjörnunum í Hollywood og á að fara að leika og dansa með Gene Kelly og Fred Astaire í nýrri mynd. Mitzi virðist hafa mikla trú á löngum trúlofunum, því fyrst var hún trúlofuð lögfræðingi nokkrum, Richard Coyle, í tvö ár og nú er hún búin að vera trúlofyð Jack Bean svo lengi, að sumir segja að þau muni vera leynilega gift. Þú getur skrifað henni til Metro Goldwyn Mayer Studios, Culver City, Cali- fornia. Við sitjum hér fjórar skólastúlkur, sem erum nýbúnar að sjá mynd með John Derek, og langar til að biðja þig um að segja okkur eitthvað um hann. Hvað er hann gamáll, er hann giftur og hvað á hann mörg börn. SVAR: John Derek er kvæntur og á tvö börn, dótturina Sean Catherine og soninn Russel. Hann þykir ákaf- lega heimakær og góður faðir, en ráðríkur og stjórnsamur á heimili sínu. Við vitum ekki hvað hann er gamall. Fyrir Hrein birtum við textann „Á Jónsmiðum“ eftir Þorstein Hall- dórsson. Haukur Morthens hefur sungið lagið inn á hljómplötu. 1 flýti fara þeir nú á Jónsmið, á Jónsmið, á Jónsmið, í flýti fara þeir nú á Jónsmið með söng út yfir saltan mar. Á kinnung rokurnar Ægir rekur, svo reiður og frekur. Og sagt er, helzt þegar húma tekur, að hafmeyjarnar dansi þar. O-hoj, o-hoj. Á marbendla og hafgúur máninn skin, sá hópur hlægjandi dansar, og hárið sævota glansar. Við Jónsmið sjómenskan hrollinn hrekur og hressir og vekur, þvi sagt er, helzt þegar húma .... tekur, að hafmeyjar dansi þar. Já, hafmeyjar dansa þar. BRÉFASAMBÖND Birtlng á iuifni, aldri og heimilisfangl kostar S krónnr. Eygló Indriðadóttir (við pilta og stúlkur 16—20 ára), Torfunesi, Köldukinn, S-Þing. — Miss Marga- ret Bains, (við pilta eða stúlkur 16—18 ára) 7 Summers Rd., Mc Duff, Fife, Scotland — Miss Nan Bell (við pilta eða stúlkur 15—17 ára), 45 Ramsey Rd., Kirkcaldy, HONIG tryggif yður góða vöru Súputeningar í glösum og dósum. Makkaronur SPAGHETTI Kjúklingasúpa Baunasúpa Uxahalasúpa Heildsölubirgðir EGGERT KRISTJÁNSSON & CO. H.F. Fife, Scotland — Ingibergur Bjarna- son, Melteig 7 og Einar Eyleifsson, Mánabraut 4 (við stúlkur 17—22 ára), báðir á Akranesi — Birna Sigurðardóttir (við pilt eða stúlku 18—21 árs), Hrauni, Landbroti, V-Skapt. — Þórunn Daníelsdóttir (við pilt eða stúlku 12—13 ára), Tangagötu 28, Isafirði — Sævar Guð- mundsson (við stúlkur 17—22 ára), Kirkjubraut 21, Akranesi — Jnga K. Guðmundsdóttir og Stefanía Markús- dóttir (við pilta eða stúlkur 16—19 ára), báðar á Vallagötu 23, Keflavík — Jóna Kristín Gunnarsdóttir (við pilt eða stúlku 12—13 ára), Smiðju- götu 8, Isafirði —- Sigríður María Ásgrímsdóttir, Svanhildur Sallurgs- dóttir (við pilta eða stúlkur 17—23 ára), báðar á Suðureyri, Súganda- firði — Lárus G. Fjeldsted (við stúlku 16—18 ára), Páll Sigurbergsson (við stúlku 16—18 ára), Páll Kjartansson (við stúlku 14—16 ára), allir í Haukatungu, Kolbeinsstaðarhreppi, Hnappadalssýslu — Magnús Guð- brandsson (við stúlku 14—17 ára) og Auður Guðbrandsdóttir (við pilt 18—30 ára), bæði í Tröð, Kolbeins- staðarhreppi, Hnappadalssýslu — Páll Þorsteinsson, Gísli Halldórsson og Ari Magnússon (við stúlkur 25— 30 ára), Einar Ármannsson og Lárus Jónsson (við stúlkur 20—25 ára) og Sigurjón Jónsson (við stúlku 18—20 ára), allir á v.b. Björgu N.K. 103, Hafnarfirði — Karitas Pálsdóttir, Þvergötu 4 og Elín Jónsdóttir, Aust- urvegi 12 (við pilta eða stúlkur 14—16 ára), báðar á Isafirði — Birna Óladóttir (við pilta 14—15 ára), Sveinsstöðum, Grímsey — Baldur J. Guðmundsson og Sigurður Vilhjálmsson (við stúlkur 15—17 ára), báðir á Hólmavík, Strandasýslu — Sigurgeir Magnússon, Þórður Friðriksson, Húnbogi Þorsteinsson og Árni Þór Kristjánsson (við stúlk- ur 15—18 ára), allir í Héraðsskólan- um í Reykholti, Borg. F orsíðumyndina tók Þorsteinn Jósepsson larl G. Silrason Ferjuvog: 15 Sími 7939 Reykjayík ]\ öll gluggahreinsun fljótt og vel af hendi leýst. • J' í'O/l ' i' '• "■/ — HRINGH) 1 SlMA 7939 Útgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaöur: Gísli J. Ástþórsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 365. 2

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.