Vikan


Vikan - 10.03.1955, Síða 5

Vikan - 10.03.1955, Síða 5
Orustan um Bretland var byrjuð. —- Þúsundir manna munu hrynja niður, gort- aði Hermann Goering og hann virtist bera fullt traust til loftarna sinna, en Eva gat ekki gleymt litlu, ensku bátunum, sem höfðu ruðzt fram og sigrað. — Pjandinn hirði þessa ensku smábáta! England er land sjómannanna og þessvegna tókst þeim þetta. Nú skulum við leyfa þeim að kynnast nútima hernaði. Þeir verða ekki eins hrifnir af því. Þýzki loftflotinn flaug svo þétt, að það syrti í lofti. Flugvélarnar geystust yfir Sussex og Kent, stungu sér niður yfir hafnarmannvirkin í London og létu sprengjunum rigna niður. Og litlu, ensku flugvélarnar hófu sig til flugs, til að berjast á sama hátt og smábátarnir. Þó að tónninn í þýzku fréttablöðunum héldi áfram að vera sigri hrósandi, og deyfði ímyndunarafl fólksins, þá læddist kvíð- inn að því. Eva hlakkaði til þeirrar stundar, þeg- ar sigur væri unninn og þessu taugastríði væri lokið. Tjón loftflotans var gifurlegt, því sami andi ríkti i loftinu, eins og á Ermarsundi, þegar ósjófæru bátarnir fluttu herinn sinn heim. Eng- 'lendingar sneru baki í vegginn og börðust áfram, og augu allrar Evrópu mændu á þá. Það leið á sumarið. Nótt eftir nótt loguðu hafnarmannvirkin við Thames. London hrundi og varð að gráu dufti og Þjóðverjar gortuðu af því, að fólkið væri farið að búa í loftvarnarbyrgj- unum, þvi að það þyrði ekki að fara heim. Á þess- um tíma hafði Adolf ætlað að vera farinn að snúa sér til austurs, en hann var enn að berjast í vestri, vegna þrjózkrar smáeyju, sem ekki vildi gefast upp. — Hún berzt í blóði sínu, tárum og svita, sagði Goering. Augnaráð hans var hvassara en áður, en ekki sami sigurglampinn í augunum og hann þurrkaði svitann af enninu. — Hamingjan góða, hvað þeir geta barizt! Sumarið leið. Blómasalarnir voru nú farnir að bjóða haust- blómin. Þeir voru lengi búnir að standa og ræða um uppgjöfina og blómasöluturnana, sem þeir ætluðu að reisa á Piccadilly. En nú var hvort sem var ekkert eftir af Piccadilly, sögðu þeir. — Það verða litlar orustur í vetur, aðeins undir- búningur, en svo kemur annað stórkostlegt vor, eins og það síðasta. Hvílíkt vor! Belgía, Holland og Frakkland! Dásamlegt vor! Eva reyndi að hugsa ekki of mikið um það, enda fór mikill tími í samkvæmi þetta haust í Berlín. Goering gortaði af því, að heimili hans væri orðið bezta listasafn heimsins og hann átti vissulega fallegustu skrautmunina. Emmy Goer- ing var hugfangin af þeim. Hún fékk líka nýja Framhald á bls. llt. Veizt 1. Konan á myndinni var stundum kölluð „mann- lausa konan“. Hún var uppi á síðari hluta 16. aldar. Hver var liún ? 2. Hver var kona Ægis í norrænu goðafræðinni og hverjar voru dæt- ur þeirra? 3. Til minningar um hvað er Sigurboginn í París og hver lét reisa hann? 4. Hvaða Iand £ Evrópu er þéttbýlast? 5. Hvar var sett niður fyrsta prentsmiðjan á lslandi og hvenær var það gert? 6. Bambusviðurinn er eklti trjátegund. En hvað er liann? 7. Hvað getur einn þorskur hrygnt mörgum eggjum? 8. a) Hvað þýðir largo á músikmáli? b) En larglietto ? 9. Er óperan Bigoletto byggð á skáldsögu? 10. Gáta: Hver er það, sem úti er og allt eins inni, alls staðar í sama sinni ? Svaraðu þeirri spurningu minni. Sjá svör á bls. Uf. OF SNEMMA HEIM ÞEGAR ÉG KOM Þýdd smásaga EG ferðaðist með næturlest og kom heim klukkan sjö um morgun, tveim dögum fyrr en ég hafði gert ráð fyrir. 1 anddyrinu hékk karlmannsfrakki og hatt- ur — sem ég átti ekki. Og inni i setustofunni lá pípa og tóbakspungur. Bg reyki ekki. Aftur á móti reykir Karl vinur minn pípu með silf- urhólk, sem stafirnir hans eru greyptir í. Þetta var pípan hans. Hafði mig aldrei grunað neitt? Einstöku sinnum hafði ég fundið votta fyrir afbrýðisemi í hans garð, en það var líka allt og sumt. En nú skildi ég hvernig málum var háttað. En hvað þessar löngu viðskipta- ferðir mínar hlutu að koma sér vel fyrir þau! Kötturinn nuddaði sér fagnandi upp við fætur mínar, en ég ýtti honum frá mér. Eg læddist út aftur og tók mér stöðu hinum megin við götuna. Klukkutíma seinna kom Karl út með skjalatösku undir hendinni. 3Ég horfði á eftir honum niður götuna og bölvaði bæði konunni minni og honum, þessum svo- kallaða vini mínum. Það byrjaði að rigna. Ég flýtti mér niður á næstu stoppistöð og tók strætisvagn inn í bæinn. Seinna um daginn þóttist ég vera að koma heim, en Diana var ekki heima, svo ég skildi eftir miða, þar sem ég sagðist vera farinn á skrifstofuna. Svo hringdi ég til Karls og bauð honum út að borða um kvöldið. Hann var alltaf vanur að þyggja slík boð, þar sem hann var piparsveinn og bjó hjá systur sinni, sem aldrei hafði áhyggjur af honum. Eg sótti hann á skrifstofuna og sagðist ætla að fara með hann í veitingahús, sem ég væri nýbúinn að finna hinum megin við heiðina. Við ókum í 45 mínútur eftir bugðóttum vegi yfir heiðina. Það var tunglskin. Ég rataði, en það gerði Karl ekki. Hann var svolítið óþolin- móður, en ég sagði honum, að hann mundi ekki sjá eftir tímanum, þegar hann fengi matinn. Svo stöðvaði ég bílinn og sagðist ætla að sýna honum svolitið. Við gengum eftir grónum stig, þangað til við komum að hlöðnum hringvegg og þar sem hann var hruninn, var komið fyrir bjálkagirðingu. Ég hafði þekkt þennan stað vel, þegar ég var lítill og hann sýndist ekkert breyttur. — Hér er það, sagði ég. — Þetta er opið á gamalli koparnámu. Það hefði átt að fylla upp í það fyrir löngu, því það getur verið stórhættulegt fyrir menn og skepnur. En það er svo gaman að kasta steinum niður í hana og heyra skvampið. — Ertu farinn að ganga í barndóm? sagði Karl hlægjandi, en hann gekk samt nær og hallaði sér fram yfir girðinguna. Ég stóð rétt fyrir aftan hann og tók þungan skrúflykil, sem ég hafði haft í bílnum, upp úr vasa min- um. Um leið og ég reiddi hann upp, komu í huga minn öll þau skipti, sem okkur hafði liðið vel saman og við höfðum hjálpað hvor- um öðrum undanfarin ár, og ég fann til furðu- legrar meðaumkunar með honum. Þá gerðist það, að hann fór að skellihlægja. — Þarna liggurðu í því. Það er búið að fylla upp i námuopið! Við borðuðum saman og ég keypti flösku af góðu víni. Karl kvaðst hafa notið ltvöldsins, en sagði, að ég væri í undarlegu skapi. Ég væri sennilega þreyttur og ætti að fara snemma að sofa. Á leiðinni heim var ég þögull. Ég var að velta því fyrir mér hvort það væri ekki bezta lausnin að aka útaf veginum og drepa okkur báða. En áður en ég hafði tekið nokkra ákvörð- un, vorum við komnir í bæinn og ég var að beygja inn í götuna, sem Karl bjó við. Allt í einu sagði Karl: — Heyrðu, veit Diana að þú ert kominn heim ? -— Ég skildi eftir miða til hennar. — Hvar? Heima? Ég svaraði því játandi. Hann þagði svolitla stund, en svo sagði hann: — Það er ekki víst að hún hafi lesið miðann. Hún veit sennilega ekki, að þú ert kominn og .. . Hann þagnaði, en ég sagði rólega: — Því skyldi hún ekki hafa lesið miðann. Ég skrifa læsilega rithönd. Hann hikaði. — Hún hefur kannski ekki verið heima. •— Hún hlýtur að minnsta kosti að vera komin heim núna: Hann þagði langa stund og ég beið. — Satt að segja er hún sennilega heima hjá mér . . . — Jæja? Hvaða erindi á hún heima hjá þér klukkan ellefu um kvöld? — Heyrðu, gamli vinur, ég hélt að Diana hefði sagt þér allt, en hún hefur sennilega ekki viljað bæta á þig áhyggjum meðan þú ert að fást við þessi mikilvægu viðskipti. En úr því að ég er búinn að hafa orð á þessu, þá er bezt að ég segi þér eins og er. Ég beygði upp að húsinu hans, hallaði mér aftur á bak í sætinu og beið. Nú átti ég von að hitta Diönu aftur, sjá brosið hennar og heyra röddina, en engin svipbrigði sáust á andliti mínu. Karl ýtti hattinum aftur á hnakka, klóraði sér í höfðinu og sagði: — Sannleikurinn er sá, að Diana er einmana .... — Er það satt? — Ég býst við að hún verði mér gröm, þegar hún veit, að ég hef sagt þér það. En þú hefðir átt að geta þér þess til fyrir löngu. Hún er stundum mjög einmana . . . og tauga- óstyrk. Þetta var í raun og veru hugmynd systur minnar .. . — Systur þinnar? Hann kinkaði kolli. — Að láta Diönu gista hérna, á ég við. Ég starði á hann: — Og hvað um þig? — Mig? Áttu við það, hvers vegna ég hef sofið heima hjá þér? Svo brosti hann. — Ein- hver varð að hugsa um þennan fjandans kött ykkar. v 5

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.