Vikan


Vikan - 23.06.1955, Qupperneq 13

Vikan - 23.06.1955, Qupperneq 13
Þar með var hann búinn að vera. Hann stóð þarna hreyfingarlaus —• henglulegur og ruglaður. En Mulberry gekk fram með hattinn í annarri hendi og benti með hinni á sverðið, sem stóð i veggnum. — Hamingjan góða! varð honum að orði. — Ertu nú farinn að skilja, Dick? Viljið þið nú öll hlusta á orð gætins manns? Getið þið ekki séð fingur guðs almáttugs benda beint á sannleikann ? Darwent leit í kringum sig. Hinir horfðu jafn undrandi á hann og sverðið, rifuna í veggnum og . . . Já! það var ekki um að villast, þarna var dauf ljósrák. Caroline neri saman höndum, sem enn voru ataðar aur. John Towns- end þrýsti rauðum klút að særðum gómnum. Andlit Thomasar og Alfreds voru gjörsamlega sviplaus. Jemmy Fletcher hafði fallið í ómeg- in, þótt skömm væri, og lá endilangur á gólfinu. — Heyrðu nú, sonur sæll, sagði Mulberry. •— Getur þú nú ekki séð hvað það var, sem gabbaði þig og gerði þig ruglaðan, kvöldið sem þú lentir í æfintýrinu i bláa vagninum? — Nei, hvað var það? — Vald myrkursins, svaraði gamli lögfræðingurinn napurlega. — Vald myrkursins? — Já, einmitt! Mulberry teygði fram höfuðið, rauður í framan og hárið klístraðist við ennið. — Þú varst að leita að horfnu herbergi. Þú leitaðir að herbergi, sem var galdrað og algjörlega umbreytt á einni nóttu. Ég veit að þú hafðir rétt fyrir þér. En skilur þú ekki núna hvar þetta herbergi er að finna? Mulberry benti með krumpuðum hattinum á rifuna í veggnum. — Það er að finna í næsta húsi, sagði hann. — Og sem ég er lif- andi, maður, hefur þú setið eða staðið rétt við hliðina á þvi! — Nei! mótmælti Caroline. Hún hætti við að segja fleira, og það ríkti algjör þögn í stofunni. En þegar Darwent ætlaði að opna munninn til þess að mótmæla líka, var sem óljósar minningar rifjuðust upp í huga hans og tækju á sig nýja mynd. — Alfred og Thomas, sagði hann. — Firebrace virðist hafa róazt svoíítið. Farið með hann héðan út og haldið honum í fjarlægð. Finnið eitthvað til þess að þvo augu hans með. — Já, lávarður, svaraði Alfred, — en ef mér leyfist — viðvíkjandi augunum — væri ekki bezt að láta Hereford lækni athuga þau? — Hereford ? Er hann ennþá hérna ? — Já, lávarður. Hann ætlaði að reyna að ná tali af yður. Vagninn hans bíður enn útifyrir. Darwent kinkaði aðeins kolli og þjónarnir fóru út með Firebrace, sem var alveg utan við sig. Hugur Darwents var enn í uppnámi og hann sneri sér að Mulberry. — Þegiðu! þrumaði lögfræðingurinn og leit illilega á hann. — Ég ber fram spurningarnar, Dick, og þú svarar! Hvað gei'ði ökumaður- inn við þig fimmta maí síðastliðinn ? — En — ég get ekki . . . — Þá skal ég segja þér það. Hann ók þér út i sveit frá Hyde Park, en ekki alveg eins langt og til Kinsmere House, og þaðan ók hann þér beint á St. James torgið! •— Nei, ég þori að sverja, að . . . — Þegiðu! skipaði Mulberry aftur og setti hattinn, sem einu sinni hafði verið hvítur, rólega á höfuðið. — Reyndu nú, Dick, að svara sjálfur þeim spurningum, sem þú beindir til okkar, meðan við sát- um að morgunverði í þessari sömu stofu. Jafnvel ég — ég verð að viðurkenna það — get ekki almennilega skilið, hvers vegna þeir gáfu þér rothögg, áður en Fletcher hrinti þér inn í vagninn . . . — En það get ég, svaraði Darwent. — Út með það, sonur sæll! — Ég komst að raun um það, þegar ég talaði við Tillotson Lewis. Hann tortryggði stofnunina Frank Orford og Co. Hann lét rannsaka hana og skrifaði þeim svo bréf þess efnis, að hann hefði hafið þessa rannsókn. Þorpararnir voru neyddir til þess að ryðja honum úr vegi -—- því miður varð það ég — strax og þeir fengu tækifæri til þess. Þeir urðu að slá hann í rot þegar hann sýndi mótþróa! Þeir urðu að halda honum sem fanga þar til þeir vissu, hve mikið hann vissi um þá! — Jæja! stundi Mulberry ánægður. — Og nú komum við að efn- inu, Dick! Við skulum athuga hina venjulegu viðskiptavini, sem okur- karlarnir slógu ekki í rot! — Þú viðurkenndir, minnir mig, að þú skildir hvers vegna þeir voru bundnir með blautu bandi og fengu bindi fyrir augun. Framhald á bls. 15. Undirritaður óskar eftir að gerast áskrifandi að VIKUNNI Til Heimilisblaðsins Notið eingöngu hinar heimsþekktu HELENA RUBINSTEIN SNYRTIVÖR UR Ath.: Við viljum sérstaklega vekja athygli yðar á hinu glæsilega úrvali af Helena Rubinstein hársnyrtivörum. 4 teg. Shamoo og 8 litir af hárskoli. Helena Rubinstein COLOR-TONE SHAMPOOS Útsölustaðir: MARKAÐURINN, Hafnarstræti 11, Reykjavík. MARKAÐURINN, Geislagötu 3, Akureyri. MARKAÐURINN, Skólaveg 1, Vestmannaeyjum. VERZL. EDDA, Keflavík. HAFNARFJARÐAR APÓTEK, Hafnarfirði. AKRANESS APÓTEK, Akranesi. HOLTS APÓTEK, við Langholtsveg. VERZL. GUÐRÚNAR RÖGNVALDS, Siglufirði. Heildsölubirgðir: RAGNAR ÞÓRÐARSON Heildverzlun h.f. Aðalstræti 9. — Reykjavík. — Sími 7174. VHÍUNNAR H.F., Reykjavík. 13

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.