Vikan - 23.06.1955, Síða 14
Svör við „Veiztu — ?“ á bls. 5:
1. Með dreifigleri.
2. Andey fyrir minni Fáskrúðsfjarðar, en
Andriðsey framundan Kjalarnesi í Kjósar-
sýslu.
3. Engin.
4. 0.
5. Machiavelli.
6. Kryddsöltuð styrjuhrogn, sem þykja hvar-
vetna herramannsmatur.
7. Til Heljar, dóttur Loka, sem bjó í jörð niðri.
8. Þeir eru allir þýzk tónskáld.
9. Mont Blanc.
3 0. Kirkjuklukka.
Pabbi hefur í hyggju............
Framhald af bli>. 11.
hélt kröftum. Hann lét líkamann að minn-
sta kosti ekki fá neinar efasemdir — efa-
semdir um sitt eigið gildi — að berjast
við.
Hinn venjulegi hugsunarháttur mömmu
var alveg gagnstæður þessu. Hún las bæk-
ur um það, hvernig hún ætti að fara vel
með sig, reyndi mismunandi tegundir af
„heilsusamlegri fæðu,“ og hinar óhugnan-
legu aðvaranir auglýsendanna skutu henni
reglulega skelk í bringu. En hún var kom-
in af langlífri fjölskyldu, góðum og harð-
gerðum stofni, eins og pabbi, og þau lifðu
bæði til hárrar og allt annað en dauflegr-
ar elli.
Mamma var vön að fara upp í kirkju-
garðinn í Woodlawn með fangið fullt af
fallegum blómum, sem hún lagði við ein-
hvern legsteininn, til minningar um ein-
hvern. Eftir nokkurn tíma keypti hún
samanlagðan járnstól, sem hún skildi eft-
ir í ferkantaða fjölskyldugrafreitnum, svo
að hún gæti sezt niður og hvílt sig, þegar
það tók hana langan tíma að koma blóm-
unum sínum fyrir. Þetta var ósköp þægi-
legt, en það olli henni því miður líka
áhyggjum, því að gleymnir gestir við
næstu grafir fóru að fá stólinn lánaðan.
Þeir drógu hánn í burtu yfir grasið, til
að sitja á honum og syrgja og gleymdu svo
að skila honum aftur. Mamma varð því
að leita hann uppi og draga hann til baka,
en það reitti hana til reiði og eyðilagði
skapið, sem hún hafði verið í, þegar hún
kom. Henni var meinilla við þetta.
Sunnudag nokkurn, þegar hún var sjálf
komin yfir sjötugt, og pabbi var næstum
áttræður, þrátt fyrir háan blóðþrýsting og
allt annað, spurði hún hann, hvort hann
langaði ekki til að aka með sér upp í
Woodlawn-kirkjugarðinn. Hún ætlaði ekki
að fara með nein blóm, en henni hafði
orðið hugsað til stólsins, þó hún minntist
ekki á það við pabba. Hún sagði bara, að
þetta væri yndisfagur dagur og að hann
mundi hafa gott af því að fara út.
Pabbi þverneitaði því. Hann bandaði
með ákafa hendinni við mér, og sagði við
mömmu: — Ég kemst þangað nógu fljótt,
f jandinn hafi það!
Mamma sagði, að hann ætti nú samt að
koma með sér, því einn legsteinninn hefði
767
krossgáta Vikunnar
Lárétt skýrmg:
1 húsdýr — 4 bráðum — 7 frjó -—
10 ullarílát — 11 mynt — 12 sjávar-
gróður — 14 bardagi — 15 úthagi —
16 flík — 17 eyða — 18 nagla — 19
aðeins — 20 aur — 21 matarílát —
23 lurkur — 24 f jarlægð — 25 hrum-
ur maður — 26 á hesti — 27 ala —
28 missir — 29 kurla smátt — 30
band — 32 vörueining, sk. st. — 33
stafn — 34 vökvi — 35 mældi þyngd
— 36 viðkvæmur (sletta) — 37 óþef
— 38 kjör — 39 kaldur — 41 skvamp
— 42 dreytill — 43 friður — 44 fryst
— 45 ungviði — 46 á íláti —- 47
blíð — 48 sár — 50 úttekið — 51
röð — 52 flog — 53 sk. St. — 54
slunginn — 55 bylta — 56 gæluorð
— 57 nudda — 59 í munni — 60
margs vis — 61 spyrja —• 62 karl —■
63 bindi — 64 vísindaáhaldið.
Lóörétt skýring:
1 grýlukertin — 2 missir — 3 tíma-
bil — 4 ríki — 5 bókstafur — 6 frum-
efni — 7 kvenmannsnafn — 8 sómi
•— 9 beygingarending — 11 fuglar —■
12 vökvalaus — 13 mannsnafn, þf.
— 15 skordýr — 16 dýrahljóð — 17
vera mergð — 18 lund — 19 vísa
— 20 f jarstæða — 22 hjálparsögn — 23 melting-
arvökvi — 24 veiðitæki — 26 fataefni — 27 heiti
— 29 hljóð — 30 hljóð —• 31 feiti — 33 gunga
— 34 tímarit — 35 reið — 36 fita — 37 geðflækja
— 38 skjól — 40 mannsnafn — 41 kjassa — 42
dæld — 44 vangi — 45 erfiði — 47 hug — 48
borg í Evrópu — 49 staflaði — 51 erindið — 52
ílát — 53 stórgerði — 54 þekkt — 55 snjór —•
56 viðurnefni — 58 æða — 59 verkur — 60 vísir
— 62 eldsneyti, þf. — 63 tveir eins.
Lausn á 766. krossgátu Vikunnar.
Lárétt: 1 ver — 4 skökull — 10 dok — 13
ögur — 15 krúna — 16 hata — 17 kimar — 19
asi — 20 auður — 21 lumar — 23 angur •— 25
runnkenndur — 29 es — 31 rn — 32 ala — 33
br. — 34 sk. — 35 lút — 37 sól — 39 ský — 41
aaa — 42 krókar — 43 ólíkur — 44 tal ■— 45 kis
— 47 æfi — 48 ami —7 49 un — 50 fa — 51 kóð
•— 53 NB — 55 an — 56 farpeningar — 50 molar
— 61 suðan — 63 murur — 64 aða — 66 riðan —
68 anar — 69 spara — 71 rati — 72 lið — 73
skai-fur — 74 rot.
Lóðrétt: 1 vök — 2 Egil — 3 rumur — 5
kk — 6 öra — 7 kúskel — 8 Uni — 9 la — 10
daður — 11 otur — 12 kar —- 14 ramur — 16
hugur — 18 rannsakarar — 20 andbýlingur —
22 rn — 23 an — 24 velktur — 26 kal — 27 nas
28 skarinn — 30 súran — 34 sauma — 36 tól —
38 óri — 40 kóf — 41 aka — 46 ske — 47 æði
— 50 falur — 52 ónáðar — 54 baðir — 56 forað —
57 pr. — 58 NS — 59 raðar — 60 muni — 62
NATO -— 63 mal — 64 apa — 65 arf — 67 nit —
69 sk. — 70 au.
sigið og hún vildi að hann segði sér, hvort
ekki þyrfti að gera eitthvað við því.
Pabbi spurði hvaða legsteinn það væri,
og þegar mamma hafði sagt honum það,
svaraði hann: — Mér er alveg sama hvað
mikið hann sígur. Ég kæri mig hvort sem
er ekki um að vera grafinn hjá því f járans
pakki.
Mamma vissi auðvitað hvaða álit hann
hafði á sumum meðlimum fjölskyldunn-
ar, en hún sagði, að hann mundi kæra sig
kollóttan um slíkt, þegar öllu væri lokið.
Pabbi játaði því, að það mundi hann
gera. Og hann varð svo æstur, þegar hon-
um varð hugsað til þess, að hann lýsti því
yfir, að hann ætlaði að kaupa nýjan graf-
reit í kirkjugarðinum, handa sér einum.
— Og ég ætla að kaupa grafreit á horni,
bætti hann við sigri hrósandi, — þar sem
ég kemst út!
Mamma leit agndofa, en þó með
aðdáun á hann, og hvíslaði að mér.
— Ég trúi því næstum, að hann
geti það.
Konungiirinn hefur 50 milljón ...
Framhald af bls. 3.
gullstengurnar, sem geymdar eru
á hans nafni í bönkum víða um
heim — og sem sífellt fer f jölgandi!
En ýmislegt verður þó að sjálf-
sögðu til þess að létta honum „á-
hyggjurnar.“ Eitt er til dæmis það,
að hann er sinn eiginn f jármála-
ráðherra — og þarf ekki að borga
eyri í skatta af öllum milljónunum
sínum!
VERKAMAÐUR einn í Dui’ban í Suðui’-
Afríku var að gera við girðingu, þegar
honum fannst eitthvað ,,kitla“ sig í fæt-
urnar. Á sama andartaki tókst hann á loft,
sveif yfir girðinguna og hafnaði i garði
nágrannans.
Sviðablettir á buxunum hans sýndu, að
hann hefði orðið fyrir eldingu. En hann var
alls ómeiddur.
Hjálpsemi borgar sig...
Framhald af bls. 9.
brotamaðurinn, sem hefur upp-
götvað að góðverk borga sig.
Fyrir nokkrum mánuðum réðst
þjófur inn í íbúð í New York.
Þar var fyrir ung móðir og
reifabarn hennar. Þjófurinn
batt móðurina með vír og byrj-
aði að leita að einhverju verð-
mætu, en barnið hágrét í vöggu
sinni.
„Það er veikt,“ grét móðir
þess. „Það þarf að fá lyfið sitt.
Leystu mig í guðanna bænum.“
„Ég skal sjá um það,“ ansaði
þjófurinn, leitaði uppi lyfjaglas-
ið eftir tilvísun móðurinnar og
gaf barninu þann skammt, sem
það átti að fá.
Þegar móðirin sagði, að það
þyrfti líka að fá pelann sinn,
setti þjófurinn mjólk á pel-
ann, yljaði hana á eldavélinni,
gaf barninu — og lagði síðan á
flótta. Hann náðist þó skömmu
síðar, þegar hann var að reyna
að selja þýfið. En dómarinn
dæmdi hann til tiltölulega vægr-
ar refsingar. Hann hafði sýnt,
sagði dómarinn, að hann gat
verið góðhjartaður þegar því
var að skipta.
14