Vikan


Vikan - 26.07.1956, Blaðsíða 10

Vikan - 26.07.1956, Blaðsíða 10
Um saltfisk og stúlkur, 177 brauðsneiðar o.fl. „T?F ég væri dauðadæmdur og' -Li getti eftir eina máltíð i þessari veröld, þá mundi ég senda skeyti tii Oskars Davídsens". skrifaði Temple Fielding einu sinni í Satur- day Evening Post. Og auðvitað hefði hún sent skeytið til Danmerk- ur. Hvert annað ætti að senda eftir fyrsta flokks mat? Hjá Oskari Davidsen er allur mat- ur góður, en það er þó smurða brauðið, sem einkum hefur gert garðinn frægan. Gestirnir geta val- ið um 177 brauðsneiðar á meirá en meterslöngum lista og þar að auki milli fjögurra brauðtegunda: rúg- brauðs, franskbrauðs, súrbrauðs og harðbrauðs. Á listanum gætir margra grasa. Þai- er t. d. „Morgunmatur dýra- læknisins", brauðsneið með lifrar- kæfu, salamipylsu og fíntskorinni spægipylsu. Og hvað skyldi þá dýra- læknirinn fá í náttverð? Jú, það er þarna líka: brauðsneið með fleski, soðhlaupi og safamiklu, þunnt skornu saltkjöti. Á listanum er líka „uppáhaldsbrauðsheið H. C. Ander- sens“. Samkvæmt honum mun þeim góða manni hafa þótt bezt að hafa flesksneiðar, tómatasneiðar, lifrar- kæfu með sveppum, sterkt soð- hlaup og piparrót ofan á brauðið sitt. 1 þessu veitingahúsi er hægt að fá brauð með hverju því ofanáleggi, sem nöfnum tjáir -að nefna: með fiski eða skeldýrum, nýju kjöti, saltkjöti, kjúklingakjöti eða reyktu kjöti, eggjum og salötum og alls kyns ostum, innlendum og útlend- um. Biðji maður um brauðsneið með íækjum, tekur maður það fram hve mikið maður vilji ofan á sneiðina sína. Það er hægt að fá brauð með tveimur lögum (45—55 rækjum), brauð með „rækjutroðningi" (80— 100 rækjum) eða rækjuhrúgu (180 200 rækjum) . . . En nú er komið allt of mikið vatn í munninn á mér. Ef ég held þannig áfram, endar það með því að ég panta mér eina brauðsneið og fæ hana senda með flugvél, en þannig afgreiðir veitingahúsið líka brauð í hentugum umbúðum, til afhending- ar úti á flugvöllunum. Það er þó hægt að þurrka munn- inn á hentugri hátt. Á brauðlistan- um frá Oskari Davidsen er brauð- sneið, sem einmitt er hægt að smyrja sér heima um þessar mund- ir — sneið með nýreyktri síld, einni eggjarauðu og hökkuðum radisum. EFTIRFARANDI klausa birtist i Berlinske Tidende 20. síðasta mánaðar: „Esbjerg: Islenzkur togari kom í gær til Esbjerg með saltfiskfarm, en auk fisksins hafði hann með- ferðis óvenjulegan farm: 24 ís- lenzkar stúlkur. Þær eru áhangandi skipsmönnunum, sem höfðu talið skipsstjórann á að taka þær með í Danmerkurferðina, því þær langaði til að verzla í dönskum verzlunum. Stúlkurnar komu því allar sérlega fjársterkar. Það eru einkum vefn- aðarvörur og húsgögn, sem þessar ísienzku stúlkur hafa mestan áhuga á, og togarinn verður sennilegast drekkhlaðinn á heimleiðinni". OG hér eru svo nokkrar upp- skriftir af salötum úr hráu grænmeti: sumarsalat: 1 stórt eða tvö minni salathöfuð, 2 vel þroskaðir tómatar, % agúrka. Blöðin í salatinu eru losuð í sund- ui' og tómatarnir skornir í bita. Agúrkan er skorin í sneiðar, ekki mjög þunnar. Sósan er búin til úr hálfri sítrónu, 3 msk. salatolíu og ofurlitlu af hunangi. Þessu er öllu blandað vel saman og smátt skorn- um lauk stráð yfir. GULRÓTARSALAT. Veljið safamiklar gulrætur, ef hægt er og rífið þær niður, eftir að þær hafa verið þvegnar og afhýdd- ar. Kreistið þvi næst saman við þær sítrónusafa og berið matarolíu með, því sumir vilja þetta heldur olíu- iaust. Skálina má skreyta með ein- um tómat og ofurlitlu grænu. RA UÐKÁLSSALAT. Þegar rauðkálið hefur verið skor- ið smátt niður, er bætt út í það sítrónusafa og svolitlu ediki og þannig er það látið bíða í sólarhring. Áður en það er borið á borð er grænmetissafanum hellt af því, og aftur bætt í það sítrónusafa og mat- arolíu. Skálina má skreyta með sítrónusneiðum. AMERISKT SALAT. Skerið epli og banana í smábita. Hrærið síðan saman við það nýjum rjóma og bætið í nokkrum dropum af sítrónusafa. Stráið svo örlitlu af hvítum pipar yfir salatið. ÞAÐ er nú orðið greinilegt að síða hártízkan ætlar að sigra stuttklippta hárið. Að vissu leyti er ég fegin. Hrifning mín á stutta þægilega hárinu, sem þarf að klippa í hverjum mánuði, dvínaði talsvert þegar ég fékk fimm- tíuogtveggjakrónu klippinguna. Það var þegar ég ætlaði að spara mér hárlagningu (sem ásamt klippingu og þvotti kostar 35 kr.) og labbaði inn til hárskera við Láugaveg- inn. Klippingin var alveg fyrirtak, mikil ósköp! Hárið var meira að segja vætt ofurlítið á eftir og volgur straum- ur látinn leika um hárbroddana (og hálsinn, u-m-m!) En ég vaknaði upp við vondan draum. „52 krónur, takk!“ Nú á hárið helzt að ná næstum niður á herðar og liggja slétt, engar krullur — en það þarf að lyftast og vera líf- legt. Og hvernig er farið að því? Jú, það má t. d. hafa permanent í undirhárunum, en láta yfirhárin liggja slétt, eða fá sér ofurlítið permanent, sem sett er í í stórum lokk- um, svo að alls ekki komi krullur eða liðir í hárið. Hárlagningin skiptir þó mestu máli (það þarf líka að leggja slétt hár). Simon hjá snyrtistofu Elizabetar Adren gefur eftirfarandi skýringar á slíkri hárlagningu með myndunum hér fyrir neðan. Eins og þið sjáið, er hægt að ná þessum umtöluðu áhrif- um með heimalagningu. Hafið nokkra tveggja sm. þykka krullupinna við hendina eða búið þá til sjálfar með því að brjóta saman baðmull. Auðvitað verður að væta hárið fyrst og láta það síðan þorna alveg. t. Skiptið hárinu hægra megin og greiðið það renni- slétt. 2. Vefjið upp á nokkra pinna framarlega á höfðinu. 3. Greiðið hárið vel að aftan og í hliðunum og bindið um það borða, sem liggur um hnakkann og er bundinn í slaufu framan á enninu. 4. Vefjið öllu hárinu þar fyrir neðan utan um ,,pinna“ úr baðmull, sem liggur þvert yfir allan hnakkann. 5. Greiðið þetta vel og festið hárinu með hárnálum. 6. Setjið hárnet yfir hárið og festið það með hárnálum að framan, eftir að hafa rúnnað rúlluna í hnakkanum vel með því. Þegar hárið er orðið þurrt, má greiða það þannig að það lyfti sér, þó það virðist liggja slétt. Síða hárið er að sigra 10

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.