Vikan - 23.05.1957, Page 2
Erna! jÞað er sagt að liægt sé að
lýsa freknur með ýmsu móti. Þessi
ráð má finna i bókum:
1. Sitrónusafi er borinn á húðina
og- hafður á henni í svosem klukku-
(íma.
2. Brintoverilte, 3%, blandað
nokkrum dropum af ammoníaki.
3. Kamfóruvatn.
4. Glycerin.
Freknublettimir eru þvegnir með
þessum efnum. Þó skal það tekið
fram, að glycerin er of sterkt fyrir
suma og verður því að fara varlega
með það.
Annars geta freknóttar huggað
sig við það, að ýmsar fegurðardísir
hafa freknur, t. d. Doris Day. Og
frekknóttir eiga hauk í horni þar
sem er Van Johnson.
ViljiO þið upplýsa mi<j um, hver
munur er á nöfnunum SIGÞÓR og
SIGURÞÓR. Er þetta sama nafnið
ecla hafa þau alltaf verið tvö?
Sigurþór
SVAR: Munurinn er sá eini, að
Sigþór ei' eldri orðmynd. Nafnið er
npprunalega komið úr goðafræð-
inni.
Vitfið þið birta fyrir okkur texta,
snm að vlsu er ekki alveg nýr af
uálinni, en sem okkur vantar engu
að siður. Það er „Vísan um J6a“.
Tveir hásetar.
SVAR: Þessi söngtexti mun vera
eftir Loft Guðmundsson. Gjörið þið
svo vel:
Tökum lagið, lvftum skál, meira
fjör, meira fjör
meira fjör, — ekkert rjál, sagði Jói.
Þegar vermir veigabál
verður létt um söng og mál.
Nú er röddin þýð og þjál, sagði Jói.
Þegar gengið var í dans, -—■ meira
fjör, meira fjör,
meira fjör, ekkert stanz, — sagði Jói.
Síðuhnykk af völdum hans
margur hlaut í óla skans...
„Hart á stjórn. — Farvel Franz.“
sagði Jói.
Þætti fæstum fært — á sjó, — meii’a
fjör, meira fjör,
meira fjör, — við róum þó, — sagði
Jói.
Tæki að svarra í segli og kló,
Jói sat við stýri og hló.
,,Á sjó er svigrúm einum nóg,“ sagði
Jói.
Þótt hann ætti aldrei neitt, nema
aðeins eitt meira fjör,
meira f jör, —: ei annað neitt, bað
hann Jói.
„Gæti ei fjörið manni fleytt
gegnum lífið yfirleitt,
kemur stríðið út á eitt,“ sagði Jói.
Tökum lagið, lyftum skál, meira
fjör, meira fjör,
meira fjör, — drekkum skál þína, Jói.
„Þegar vermir veigabál,
verður létt um söng og mál.
Nú er röddin þýð og þjál,“ sagði Jói.
Ég er svosem helmingi of foit.
Hvernig á ég að fara að þvi að niegra
migi Er ekki til eltthvað lyf, sem
ekki er skaölegt fyrir heilsunaf
Kitty.
SVAR: Það er staðreynd, sem feitt
fólk þarf að gera sér ljósa, að offita
stafai- nærri undantekningariaust af
ofáti. Listin ei' þvi einfaldlega sú að
borða minna. Hvað lyfinu viðvíkur —
þeirri spurningu skyldi læknir svara.
Og margt er vitlausara en að megra
sig undir læknishendi.
Mig langar að lýsa á mér hárið.
Getnr VIKAN gefið mér einfalt ráðf
Sveina.
SVAR: Það má m.a. lýsa hár með
því að skola það upp úr kamillute.
Nota skal 35 gr. kamillutes í Í4 1.
vatns.
Er Clark Gable giftur núnaf Og
hve gamall er hannf — Tvær vin-
/conur.
SVAR: Hann er 56 ái'a, ef við mun-
um rétt. Hann er oftast giftur, eins
og kunnugt er, og hann bjó enn með
fjóröu konunni sinni þegar síðást
fréttist.
Vill VIKAN vera svo vœn að láta
rnig fá utanáskrift Spegilsins. Mér
liggur á þessu. — Björn.
SVAR: Einhver hefði nú verið svo
kænn að spyrja Spegilinn sjálfan að
þessu. Við ímyndum okkur, að póst-
urinn léki sér að því að koma bréfi
til hans til skila, þótt utanáskriftin
væri einfaldlega: Spegillinn, Reykja-
vík. En úr því þetta er komið á skrif-
borðið okkar, þá getum við upplýst,
að ritstjórn og afgreiðsla kollega
vors Spegilsins er á Smáragötu 14,
Reykjavík.
Okkur langar að vita, hvort kunnir
kvikmyndaleikarar svara yfirleitt
Forsíðumyndina
tók Jón Birgir Guðnason,
Keflavík. Myndin er tekin
að Helgafelli í Helgafells-
sveit.
bréfurn og ennfremur hvort bréf til
bandariskra kvikmyndaleikara muni
komast til skila, ef utanáskriftin er
bara nafn viðkomandi, Hollywood,
U.S.A. — Skólasystur.
SVAR: Ef leikarinn er á annað
borð þekktur, má ganga út frá þvi
sem vísu, að slík utanáskrift dugi.
Hvað svarinu viðvíkur, þá hafa fræg-
iv leikarar oft á tíðum urmul einka-
ritara I þjónustu sinni, sem lítið gera
annað en svai'a bréfum frá aðdáend-
um. Oft fylgir mynd af leikaranum
svarbréfinu. Og oft kvað hann vera
svo rausnarlegur að skrifa nafnið
sitt á hvortveggja: bréfið og mynd-
ina.
Þórdís! Þú skalt snúa þér ti)
Barnaverndarnefndar.
Viljið þið segja mér, hvencer Jón
Sigurðsson forseti var þingmaður óg
fyrir hvaða kjördœmi. — Drengur,
SVAR: Hann var þingmaður Isfirð-
inga árin 1845—1879.
MUNIÐ
NDRA MAGASIN
I
v
$
v
V
í
►5
$
V
V
1
©
V
©
V
©
1
©
©
©
V
©
V
©
V
©
V
V
©
v
í
©
V
©
V
V
$
SkrifstiÞfur
Sjóvátryggingafélags ístands h.f:, sem voru i Pósthússtrœti 2
eru fluttar í INGÓLFSSTRÆTI 5
BIFREIÐADEILDIN er til húsa i BORGARTÚNI 7, eins og áður
Sjóvátryqqi^Biag íslands
©
■>»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»:♦:♦: ►^♦^♦^♦^♦^♦^♦^♦^♦^♦^♦^♦^♦^♦^♦^♦^♦^♦^♦^♦^♦^♦^♦^♦-♦-♦-♦-♦-♦-♦-♦-♦-♦-♦-♦-♦-♦-♦-♦-♦-♦-♦-♦-♦-^-4-^:
Otgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli J. Ástþórsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 495.