Vikan


Vikan - 23.05.1957, Side 10

Vikan - 23.05.1957, Side 10
Blessað barnið Verður það rauðhært? Og hvað um þá rauðhærðu? VERÐUR barnið þitt rauð- hært? Sé maðurinn þinn rauðhærður, þá fer varla hjá því, að þess sjáist einhver merki á hári bamsins. En sért þú rauðhærð líka, þá má nærri því ganga út frá því sem vísu, að afkvæmið fari að dæmi ykk- ar. Það er eitthvað við rautt hár, sem dregur að sér athygli erfa- fræðinga, mannfræðinga og raunar okkar allra. Ef rauð- hærður maður kvænist ljós- hærðri eða brúnhærðri stúlku, mtm hárlitur föðursins sennileg- ast að einhverju leyti koma fram á börnunum, til dæmis er viðbúið að þau verði freknótt. Hárin á rauðhærðu fólki geta verið upp tmdir það helmingi gildari og sterkari en á fólki með annan hárlit, og þar sem skolhærðir hafa um það bil 120,000 hár á höfðinu og ljós- hærðir allt upp í 145,000, þá hafa þeir rauðhærðu aðeins 90,000. Allskyns augnalitur getur fylgt rauðu hári en það er mjög algengt að freknur fylgi þvi og fremur viðkvæmt hörund. Rauð- hærðir geta sjaldan orðið sól- brúnir. Þótt rautt hár sé algengt einkenni með sumum þjóðum — þar á meðal írum, Finnum, Gyðingum og Skotum — þá munu aðeins um sjö af hundraði hvíta kynstofnsins vera rauð- hærðir. Og þetta hlutfall virð- ist lítið breytast með árunum. Rauðhærðar konur ganga tíð- ast mjög í augu karlmannanna. Það er satt að segja sjaldgæft, að rauðhærðar konur pipri! Sú skoðun virðist almenn, að rau* hærðir menn séu skapstórir og uppstökkir. Þó að þessi kenn- ing sé vafalaust mjög ýkt, kann einhver fótur að vera fyrir henni. Rauðhært fólk virðist dálítið reikult í ráði þegar ást- in er annarsvegar, en svo er hins að gæta, að það er oft á tíðum harðduglegt að bjarga sér. Þeir rauðhærðu hafa alla tíð mjög látið til sín taka í heimin- um. Kleopatra og Elizabeth I. voru rauðhærðar, og það voru þær líka María Skotadrottning, Salóme og Sarah Bernhardt. iBrezkur vísindamaður komst að þeirri niðurstöðu, að meðal af- burðamanna brezkra væri hlut- fallstala rauðhærðra nærri því óeðlilega há. Og af forsetum Bandaríkjanna hafa að minnsta kosti fjórir verið rauðhærðir, sem kann að vísu að vera tilvilj- un en er líka mjög hátt hlutfall. Eftirlíkingar eru ekki svipur hjá sjón samanborið við ósvikið rautt hár; það má jafnvel segja, að hár, sem litað er rautt, beri það alltaf með sér, að liturinn sé falskur. Ennfremur þýðir harla lítið fyrir rauðhærðar konur að reyna að dylja hárlitinn undir öðrum lit. Litarháttur andlits- ins, freknurnar, augabrúnimar, augnhárin — eitthvað af þessu stangast alltaf á við nýja hár- litinn. HVERNIG persónuleika ertu gædd? Ertu að eðlisfari hæglát, hávær eða bar.a með þægilegt viðmót ? Ertu f élags- lynd, eða ertu hlédræg? Svaraðu spurningunum, athugaðu einkun þína og komstu að sannleikan- um. 1. Hvað kýstu heldur: a) Kvöld í bíó eða leikhúsinu? b) Kyrrlátt kvöld heima hjá þér? c) Fjörugt „partý“? 2. Þú ert að borða í veitinga- húsi, þegar ókunnur maður við sama borð fer að tala við þig. Spurningin er: a) Vakn- ar forvitni þín, þó að þú kys- ir heldur að fá að borða í næði? b) Finnst þér maður- inn framhleypinn ? c) Finnst þér hann bara vera að reyna að vera vingjarnlegur og reynirðu fyrir þitt leyti að halda uppi samræðunum? 3. Hve marga nýja kunningja hefurðu eignast siðustu þrjá mánuðina: a) Einn eða tvo? b) Enga? c) Þrjá eða fleiri? 4. Þú ert að fara í langt ferða- lag með lest. Reynirðu að finna þér sæti í vagni sem er: a) Nærri því tómur? b) Ofurlítil ábending um uppeldi AÐ er ekki hlaupið að því að leggja foreldrunum lifsregl- urnar, en hér skal samt drepið á svolítið atriði, sem heita má að uppeldisfræðingarnir séu sammála um.' Það er þetta: Foreldrarnir verða að vera samtaka í uppeldismálunum. Það er naumast til verra en að annað foreldrið leyfi það, sem hitt hefur bannað. Árangurinn getur orðið sá, að bæði missi taum- haldið á börnunum. Setjum nú svo, að öðru for- eldrinu finnist hitt vera of strangt við eitthvað tækifæri. Við þvi er ekkert að segja, enda smáágreiningur í þeim efnum ákaflega eðlilegur. Þó skyldi foreldrið varast það eins og heitan eldinn að taka fram fyrir hendurnar á hinu, leyfa barninu það, sem hitt var að enda við að banna því. Það er að bjóða hættunni heim. Næst þegar barninu er bannað eitt- hvað, er viðbúið að það reyni að fá vilja sínum framgengt með því að skjóta máli sínu undir úr- skurð þess foreldris, sem síðast sýndi því undanlátsemi. Og þann- ig á víxl. Nei, um þessi mál eiga for- eldrar að tala einslega. Þegar móður mislíkar við „dóm“ manns- ins síns, á hún ekki að ógilda hann. Þau eiga að ræða málið undir fjögur augu. Tómur? e) Nærri fullur af f ólki ? 5. Áttu: a) Svosem hálfa tylft vina? b) Aðeins einn mjög góðan vin? c) Einhvern aragrúa ? 6. Þú hittir einhvern í fyrsta skipti: a) Læturðu hann eða hana stjórna samtalinu, en ertu fullkomlega eins og þú átt að þér? b) Ertu fegin þegar samtalinu er lokið, varstu jafnvel feimin? c) Finnst þér ákaflega auðvelt að tala við ókunnuga? 7. Hvaða litum klæðistu helzt: a) Látlausum, eins og til dæmis gráum eða brúnum? b) Fremur hátíðlegum? c) Skærum og áberandi? 8. Eftir hvernig músík kýstu helzt að dansa: a) Rólegri músík? b) Vals? c) Nýjustu tízkumúsíkinni ? 9. Hve oft á viku ferðu út að skemmta þér: a) Tvisvar? b) Einu sinni eða alls ekki? c) Þrisvar eða oftar? 10. Hvað tónlist viðvíkur, hvað fellur þér bezt í geð: a) Dægurlög ? b) Sígild hljóm- list? c) Jazz? Þú átt að gefa þér tvo ýyrir hvert a, sem þú hefur merkt við, Börn mega aldrei ætla, aö þau geti komið vilja sínum fram með þvl að etja foreldrunum saman. Gagnvart börnunum verða for- eldrarnir að vera samhentir, ekki tveir gjörólíkir „löggjafar." McCalls snið einn fyrir hvert b og þrjá fyrir hvert c. Ef einkunn þin er 26—30, þá ertu sennilegast full af gáska. Þú kannt hvergi betur við þig en í fjölmenni og þér fellur það ágæt- lega, að allt snúist í kringum þig. Það kvað vera algengt, að Ieikarar séu gæddir svona per- sónuleika. Ef þú hefur fengið einkunina 19—25, þá ertu ákaflega um- genggiisgóð. Þú ert mátulega fé- lagslyn og mátulega ræðin, en þó er næsta ólíklegt að þú sért framhleypin. Róleg og kurteis og hinn ákjósanlegasti vinur. Ef einkunn þín er 14—18, þá ertu að vísu ekki beinlínis feim- in, en þú ert dálítið of hlédræg. Flestir ósviknu hugsuðurnir hafna í þessum flokki. Mönnum mun sennilegast finnast erfitt að kynnast þér fyrir alvöru, en tak- ist þeim það, hafa þeir eignast verðmætan vin. Þú ert ekki gin- keypt fyrir nýjum vinum, en þeg- ar þú gefur einhverjum vináttu þína, þá gerirðu það til æviloka. Hafirðu fengið einkunin'a 13 eða þar undir, þá ertu alveg ein- staklega hlédræg. Þá skortir reyndar oft sjálfstraust, sem í þessiun flokki hafna. — DAVID GUNSTON PERSÓMtLEIKI ÞIMM Svaraðu spurningunum samviskusamlega og sjáðu hver útkoman verður 10 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.