Vikan


Vikan - 30.05.1957, Side 2

Vikan - 30.05.1957, Side 2
9~k.v/tMiÁnn Eg er borin og barnfœdd í mjög köldum liúsakynnum og orðin sextán ára og hvemig sem ég klœði mig er ég alltaf jafn köld á höndum og fót- um. Ég er í ullarsokkum daglega — og stundum tvennum! — og samt hef- ur mér ekki tekist að koma í veg fyrir að „kuldafitaf1 hefur sest utan á fótleggi mlna meö þeim árangri, að peir verða gildari og Ijótari i laginu en þeim er eiginlegt. Líka finnst mér það leiðinlegt, að hendurnar á mér eru átttaf bláar og rauðar af kulda. Oetið þið á VIKUNNI ráðlagt mér hvað ég á að gera? — E. S. SVAR: Því miður ekki, en læknir getur það ef til vill. Mig langar að fara til útlanda i sumar. Eg er tvítug og nœrri því „mállaus“, þó að ég skilji að vísu hrafl í dönsku. Er þorandi að fara einsamall úr landi þegar þannig stendur á? — Didda. SVAR: Hversvegna ferðu ekki með ein- hverjum ferða- manna- hópnum. Þá þarftu ekkert að óttast ,,málleysið.“ Talaðu við ferðaskrif- stofumar; þær eru víst orðnar ein- ar þrjár í Reykjavík. Þér sendi’ ég eitt sinn unga rós á ungri rósagrein, vonaði hún mundi ei velkjast þar né visna föl og ein. Þú barst að vitum góða gjöf og gafst mér hana á ný; síðan þá andar andi þinn í ilmi frá blómi því. Höfum við Islendingar sendiráð í Finnlandi. Ef svo er ekki, hver getur þá leiðbeint og hjálpað íslenzkum ferðamönnum þar í landi? F. Björnsson. SVAR: Ekkert sendiráð. En í Helsingfors er íslenzkur ræðismaður sem hefur á sér mikið orð fyrir lip- urð. Helga! Talaðu við skólastjórann eða láttu foreldra þína gera það. um við, að hún væri búin að taka að sér sjónvarpsþátt. Kristín! Kvæðið heitir Brúðar- skórnir, er eftir Davíð Stefánsson og hljóðar svo: Alein sat hún við öskustóna. — Hugurinn var frammi á Melum. Hún var að brydda sér brúðarskóna. — Sumir gera allt í felum. tjr augum hennar skein ást og friður. —- Hver verður húsfreyja á Melum? Hún lauk við skóna og læsti þá niður. — Sumir gera allt í felum. . . . Alein grét hún við öskustóna. -— Gott á húsfreyjan á Melum. 1 eldinum brenndi hún brúðarskóna. — Sumir gera allt í felum. Getið þið á VIKUNNI sagt mér eitthvað frá tónskáldinu Stephen Foster? Þið skylduð þó aldrei eiga mynd af honum? — Ragnar. SVAR: Nei, myndina eigum við ekki. Foster fæddist 4. júlí 1826 skammt frá Pittsburg í Pennsyl- vaníu, Bandaríkjunum. Hann andað- ist í New York 13. jan. 1864. Hann samdi fyrstk lag sitt á skólaárunum og var það vals. Oft samdi hann sjálfur textana við lögin sín. Nokkr- ar bækur hafa verið skrifaðar um hann, en engin er til í íslenzkri þýð- ingu að við bezt vitum. Bróðir Fost- ers gaf út ævisögu hans árið 1896. Vinsamlegast birtið fyrir mig í VIKUNNI kvæði, sem hefst á þessa leiö: „Helgum frá döggvum himna- brunns . . .“ Mér er sagt, að Kiljan hafi islenzkað það. Og eftir hvern er það? — Kári S. SVAR: Þetta er gamalt ástaljóð enskt eftir Ben Johnson og hljóðar svo i þýðíngu: Helgum frá döggvum himnabrunns mun hjartað þiggja fró, en ætti ég goða kjörvíns kost, ég kysi full eitt þó: Um leyndan koss á bikars barm ég bið, — en ekki vín. Dróttir þá kneyfa fagna-full, mitt full sé augun þín. BRÉFASAMBÖND Birting á nafni, alilri og heimilisfangi kostar 6 krónur. Gerda Lio, Bö statsrealskule, Bö i Telemark, Norge, vill skrifast á við stúlku. Hún er 17 ára. — Guðrún Jónsdóttir, Hafnargötu 107, og Guð- jóna Sumarliðadóttir, Hafnargötu 6b, báðar i Bolungavík, auglýsa eftir 30—35 ára pennavinum. Forsíöumyndina tók Hörður Daníelsson. MUNIÐ Sigga! Donald O’Connor á að leika hlutverk gamanleikarans fræga úr þöglu myndunum, Busters Keatons, í kvikmynd, sem Paramount kvik- myndafélagið ætlar að gera um hann. Ann Blyth mun leika á móti honum. Utanáskrift þeirra beggja verður því í náinni framtíð c/o Paramount Pic- tures, 5451 Marathon Street, Holly- wood, Calif. NDRA MAGASIN Það er mikið skrifað um það um þessar mundir, að þeim Islendingum fari sífellt fjölgandi, sem flytjist úr landi. Hver eru helztu „innflutnings- löndin.“ — Kári. SVAR: Bandaríkin eflaust, frá okk- ar sjónarmiði, og Kanada. En það er ekki hlaupið að því að fá dvalarleyfi í þessum löndum, það krefst að minnsta kosti mikilla skrifta og hlaupa og þolinmæði. Auk þess er Island ekki sokkið ennþá. Hér er veðmál, sem VIKAN þarf að skera úr fyrir okkur: Er Shirley Temple byrjuð að leika aftur i kvik- myndum f SVAR: Nei, h ' er harðgift og vel gift og lýsti yfir fyrir nokkrum ár- um að hún væri sest í helgan stein. Hún er ekki byrjuð að leika aftur i kvikmyndum. En einhverstaðar lás- FYRRVERANDI FORSÆTISRÁÐHERRA Með „Súesævintýrinu' eins og það hefur stundum verið nefnt, lauk stjórnmálaferli Sir Antonys Eden. Glæsilegum stjórnmála- ferli í þokkabót. Að auki hefur hann átt við mikið heilsuleysi að stríða. Hér sést hann fara úr sjúkrahúsi I Boston, þar sem hann gekk undir uppskurð. Frá Bandaríkjum fór hann til Kanada, þar sem hann var gestur landstjórans. Afmceís TERTA Kaka þessi er meO ROYAL tyftitiufti, bragBgóS og falleg. EFNI í TERTUNA: 140 gr. smjörlíki 220 gr. sykur 2 egg 250 gr. hveiti 3 tsk. (sléttfullar) Royal lyftiduft V2 tsk. salt 9 matsk. mjólk 1 tsk. Vanilludropar Notið tvö mismunandi stór tertumót, smyrjið þau. Hitið ofninn áður en kakan er látin inn. Blandið saman lyftidufti,- hveiti og salti. Hrærið saman sykurinn og smjörlíkið í annarri skál. Látið eggin saman við smjörlíkið, eitt í einu og hrær- íð vel á milli. Hellið mjólkinni í bolla og vanilludrop- unum út í. Hrærið mjölið saman við smjörlíkið, lítið í einu, þynnið með mjólkinni. Látið deigið í mótin. Bakið minni kökuna í nálægt 25 mín., en þá stærri í 35 mínútur. Látið kökurnar kólna, hvolfið saman og hafið sultu á milli. Skreytið með kremi, t. d. hvítu á efri hlutann og bleikii, á þann neðri._ ROAL lyfti- duft tryggir öruggan bakstur notið R O Y A TT 771 Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli J. Ástþórsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 495.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.