Vikan


Vikan - 30.05.1957, Blaðsíða 3

Vikan - 30.05.1957, Blaðsíða 3
TTmieidu varlegal Kannske er einhver að hlusta Úti í löndum eru símanjósnarar að verða alvarlegt vandamál TÆKNIN er dásamleg. Þeir sem mest dásama hana, segja gjarnan, að þeg- ar öllu sé á botninn hvolft, sé það til- gangur hennar að gera líf okkar ein- faldara. Hugsið ykkur bara, segja þeir, hvað það er einfaldara fyrir húsmóðurina að þvo í nýtízku þvottavél heldur en með gamla laginu, í þvottabalanum. Mikið rétt. Þvottavélin er að ýmsu leyti dásamleg uppfinning. Já, þegar hún er höfð í huga, er tæknin óneitanlega dá- samleg. En að líf okkar sé einfaldara nú en áður fyrr — ja, það er nú svona og svona. Úti í löndum að minnsta kosti hefur það viljað brenna við á undanförnum árum, að menn hafi rekið sig á það all óþyrmi- lega, að hin vegsamaða tækni getur gert lífið skrambi flókið. Þetta eru mennirn- ir, sem orðið hafa fyrir barðinu á mönn- unum, sem stunda símanjósnir. Tæknin er sumsé búin að gera nær hverjum skussa mögulegt að leggja fyrir sig þann at- vinnuveg; þeir, sem lengst eru komnir, eru meir að segja búnir að taka sjón- varpið í þjónustu sína. Og skal nú sagt dálítið nánar frá þessu fyrirbæri, frá þessu hvimleiða afsprengi hinnar öru tækniþróunar. Það gefur auga leið, að það getur verið arðbær atvinna að hlusta á símtöl manna. Þannig er áætlað, að í New York geti einka-leynilögreglumenn með fullkomin hlustunartæki haft upp úr sér á annan tug þúsunda — á viku. Fyrir skemmstu var handtekinn lög- fræðingur þar í borg og sakaður um síma- njósnir. Það kom á daginn, að hann hafði fjölda manna í þjónustu sinni. Þessi ,,njósnahringur“ hafði stundað óþokka- iðju sína í heilt ár. Hann hafði hvorki meira né minna en 56,000 símanúmer í takinu. Lögfræðingurinn tók að sér — gegn þóknun — að hlera símtöl alls- kyns fyrirtækja. Þannig fengu keppi- nautar þeirra vitneskju um, hvað þau höfðu á prjónunum, og gátu gert sínar gagnráðstafanir. Og svona til vonar og vara, hleruðu símanjósnararnir samtöl sjálfrar lögreglunnar! Ný bandarísk kvikmynd, Símanjósnar- inn, lýsir ágætlega starfsaðferðum þess- ara þokkapilta. Njósnir af þessu tagi eru sumsé ofarlega á baugi í Bandaríkjunum í dag. En síminn er hleraður víðar en þar í landi. Og njósnararnir færa sífellt út kví- arnar. Þannig er þess skemmst að minn- ast, að Breti einn var dæmdur í 150 sterl- ingspunda sekt fyrir að hlusta á tal- stöðvasamtöl brunaliðanna í London, Middlesex, Kent og Surrey. Þótt hann neit- aði því, var talið sannað, að hann hefði gert þetta fyrir tryggingafélag eitt, sem notaði upplýsingarnar, sem það komst yf- ir með þessu móti, í sambandi við bruna- tryggingastarfsemi sína. Símahlerari í Texas rakaði um skeið saman peningum með því að hlusta á samtöl jarðfræðings eins, sem var í þjón- ustu voldugs olíufélags. Þá vitneskju, sem hann þannig komst yfir, seldi hann ónafn- greindum braskara, sem svo keypti upp jarðir, sem símasamtöl jarðfræðings- ins gáfu ástæðu til að ætla að væru væn- leg olíuvinnslusvæði. í Bandaríkjunum eru líka talsverð brögð að því að samtöl manna séu hleruð með örsmáum hljóðnemum. Hlerarinn fel- ur hljóðnemana á heimilum fórnarlamb- anna, og situr svo einhverstaðar á næsta leiti og hlustar á hvert orð, sem sagt er í húsinu. Þá hefur verið fundinn upp hljóðnemi, sem er ekki ósvipaður riffli og sem er svo næmur, að með því að beina honum á menn í nokkrum hundraða feta fjar- lægð er hægt að hlusta á samtal þeirra. Með þessu leiðindatæki er hægt að hlera þráðlaust milli húsa! Síst að furða þótt byrjað sé að ræða um það í nokkrum fylkj- um Bandaríkjanna að banna sölu slíkra tóla með lögum. Enginn er sumsé óhult- ur í nærveru þeirra. Þýzk verksmiðja er byrjuð að fram- leiða tæki, sem allar fagrar njósnastúlk- ur munu eflaust nota í framtíðinni. Þetta er örsmá talstöð, sem stúlkurnar geta borið undir lífstykkinu án þess að vaxt- arlag þeirra verði á minnsta hátt grun- samlegt. Þegar talstöðin er í sambandi, getur samstarfsmaður stúlkunnar heyrt hvert einasta orð, sem við hana er sagt, úr allt að því 600 metra f jarlægð. Það er orðið ótrúlega auðvelt að njósna um nágranna sína. Setjum svo, að þú bú- ir í raðhúsi og viljir gjarnan fá að vita hvað hann Pétur í næsta húsi segi um þig. Þá þarftu ekki annað en reka nagla í vegginn, sem skilur milli húsanna ykkar, hengja á hann einn af þessum nýju, næmu hljóðnemum og bíða. Svo öflugt er áhald- ið, að þú átt að heyra andardráttinn í garminum Pétri. Öryggislögreglan bandaríska þykist hafa ástæðu til að ætla, að Rússar séu búnir að fullkomna hljóðnema, sem geti hlerað samtöl úr tveggja til þriggja kíló- metra fjarlægð. Það virðist með öðrum orðum eiga að verða mun auðveldara að vera njósnari í næsta stríði en hinu síðasta. En látum það liggja á milli hluta. Hitt er jafnvel óhugnanlegra, að óbreyttir borgarar geta ekki framar verið óhultir í sínum eigin húsum. Með góðum vilja er hægt að hlusta á hvert orð sem þeir segja. Það er hægt að ímynda sér, hve öflugt vopn þetta get- ur orðið í höndum samviskulausra stjórn- arvalda. Með galdratólunum geta þau hlerað hvert orð borgarans. Öryggislög- reglan er komin ósýnileg inn í hús þégn- anna. Tæknin er dásamleg, satt er það. En að hún geri líf okkar einfaldara — ja, það er annað mál. — KENNETH LONG. OG ENN ERU ÞEIR AÐ Það eru liðin tólf ár frá lokum síðustu heimsstyrjaldar. Stóru stjórnmálamenn- irnir, þessir sem bera fjöregg alls mannkyns, hétu okkur því, að þetta skyldi verða síðasta blóðbaðið. Síðan hefur víða verið barist og þúsundir hafa fallið fyrir vopn- unum. Og enn halda stórveldin áfram að hervæðast. Vígbúnaðarkapphlaupið er í al- gleymingi. Myndin er af bandarískum hermanni og bandarískum skriðdreka. Skrið- drekinn, hermaðurinn og herdeildin hans fóru „til stöðva fyrir Miðjarðarhafsbotni.“ s VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.