Vikan


Vikan - 30.05.1957, Síða 6

Vikan - 30.05.1957, Síða 6
Tveir biaðamenn — karlkyns og kvenkyns — leiða saman hesta sína á þessari síðu STUTT SKRAF UM HJÖNABANDIÐ - G held satt að segja að þeir hjóna- skilnaðir séu fremur sjaldgæfir, sem orsakast af því, að eiginmaðurinn verður ástfanginn af annarri konu. Því er það, að þegar ég les um alla þessa hjónaskilnaði í blöðunum, þá spyr ég ekki sjálfan mig: Hvaða kvenmaður skyldi nú hafa komist í spilið? Ég reyni að grafast fyrir um hinar raunverulegu ástæður, og það er nærri undantekningarlaust hægt með þessari einföldu spumingu: Hve marga klukku- tíma áttu hjónin saman á síðastliönu ári? Því að þar liggur hundurinn alveg ótrúlega oft grafinn, góðir hálsar. Ástæðan er ekki kynferðislegs eðlis. Ekki sú, að gifti maðurinn byrji upp úr þurru að eltast við hvern kvenmann sem hann sér, né að kvenmaðurinn byrji að gefa ógiftu nágrönnunum hýrt auga. Ekki fjárskortur né skemmtanafýsn né slæmur matur. Jú, mikil ósköp, stundum er orsökin eitthvað af þessu. En oftast — já, lang- samlega oftast — er ástæðan einfald- lega sú, að hjónin skipta sér ekki nógu mikið hvort að öðru. Hjónabandið er í voða í vestræna heiminum og ástæðan er augljós. Eigin- menn og eiginkonur eiga ekki nógu mikið saman að sælda. Eiginmennirnir (og húsbændur þeirra) eru byrjaðir að líta svo á, að vinnan þeirra sé mikilvægari en kon- umar, sem elda í þá matinn, ala upp börnin þeirra og sofa hjá þeim. Það er svo komið fyrir nútímakon- unni, að hún er orðin hálfgert bús- áhald. Hún er að vísu mikilvægur part- ur af heimilinu og enn er hún víst tal- in jafnnauðsynleg eldavélinni og út- varpstækinu. En borin saman við Vinn- una og Forstjórann er hún svo sem hvorki eitt né neitt. Hún er bara konan, sem situr heima, sem gædd er óendanlegu jafnaðargeði og sem enginn þarf að taka tillit til — nema ef vera skyldi á merkisdögum eins og afmælinu hennar og giftingar- deginum. Sé hún í slæmu skapi, er hægt að gera hana góða með blómvendi eða kon- fektkassa. Eða ef þú ert ekki allt of þreyttur, þá tekurðu þig til og ferð með hana í leikhúsið. En þú velur auð- vitað sjálfur leiðina, sem þér finnst hentugust hverju sinni. Finnst þér ég vera að ýkja? Ef svo er og svo vill til að þú ert giftur, þá skora ég á þig að svara þessum spurn- ingum. 1. Ef þið hjónin fæmð út að skemmta ykkur með forstjóranum þínum og kon- unni hans og þau yrðu konunni þinni ósammála um eitthvað, mundirðu þá taka hennar málstað ? Mundirðu það nú áreiðanlega? Jafnvel þótt hún hefði rangt fyrir sér? 2. Ef þér byðist forlátavinna á stað, sem konan þín hataði, mundirðu þrátt fyrir það taka boðinu? 3. Ef þér byðist vinna, sem hefði það í för með sér, að þú yrðir að dveljast lengi fjarri konvmni þinni — við skul- um segja í eitt til tvö ár — mundirðu þá taka við vinnunni? 4. Ef það fylgdi vinnunni þinni, að þú kynntist ýmsu merkisfólki, sem kon- an þin gæti þó ýmsra hluta vegna ekki umgengist, mundi þér finnast það gott og blessað? Að mínum dómi er það undir svör- imi þínum komið við þessum spurning- um, hvort þú átt framundan langt og gæfuríkt hjónaband eða hina tegundina, sem þegar verst lætur lyktar með skiln- aði. JMéi- er það ekkert launungarmál, að ef ég yrði að velja milli vinnunnar og konunnar minnar, þá mundi ég leggja óendanlega meira upp úr ástinni. Það væri meir að segja alls ekki hægt að freista mín með kauphækkun. Ég trúi því ekki, að aðskilnaður sé neinu hjónabandi til góðs. Ef eiginmað- urinn hangir sífellt á skrifstofunni eða sækist lá.tlaust eftir eftirvinnu eða er á stöðugu flandri út og suður vinnu sinn- Á finnst mér þeir karlmenn eftir- sóknarverðari, sem einhverju áorka, þótt það hafi í för með sér óregluleg- an vinnutíma, en hinir, sem að visu birtast undantekningarlaust á slaginu sex en alltaf standa í stað. Ég get ekki hugsað mér ömurlegra hjónaband en það þar sem eiginmað- urinn hefur skipt um vinnu konu sinnar vegna. Mér er það ekkert launungarmál, að ég lít þeim augum á málið, að ef menn almennt væru herra Mosley sammála, mundi þeim hjónaböndum fjölga, sem færu út um þúfur. Það heimili getur sannarlega naum- ast talist skemmtilegt, þar sem eigin- maðurinn syrgir glötuð tækifæri og konuna dreymir öllum stundum um allt það góða, sem hún ef til vill hefði getað hreppt, ef maðurinn hennar hefði fengið að reyna sig fyrir alvöru. Konur eru ákaflega raunsæjar, og þær vita það hygg ég ósköp vel, að ef karlmaðurinn ber sig rétt að, getur hann ekki einungis verið hamingjusam- ur í hjónabandinu heldur líka hamingju- samur í vinnunni. Og þannig skyldi það vera. Ef afleiðingin er sú, að hann verður á stundum að vera fjarri hinu hamingjuríka heimili sínu, þá er það einfaldlega ein af þeim fórnum, sem bæði hjónin verða að færa. Það verður ekki bæði sleppt og haldið í þessum efnum. Ég lít svo á, að flestar eiginkonur vilji heldur vera giftar mönnum, sem ar vegna, þá verður hann lélegur eigin- maður og það er honum að kenna ef konan hans verður einmana og lífsleið. Ég lít með öðrum orðum svo á, að þetta eigi að vera alveg öfugt. Þegar öllu er á botninn hvolft, er það tilgang- ur hjónabandsins, að karlmaðurinn og konan séu saman. Ég lít svo á, að engin staða sé þess virði, að konan verði afbrýðisöm henn- ar vegna. Ég vísa algerlega á bug þeirri kenningu, að eiginkonur eigi að vera settar skör lægra en forstjórar. Ég trúi því ekki, að kaup geti nokk- urntíma verið svo ríflegt, að það rétt- læti slíkt fyrirkomulag. Ég trúi því með öðrum orðum ekki, að peningar séu nokkurntíma meira virði en ástin og hjónabandið. Ástin mín, símaði ég eitt sinn kon- unni minni í síðasta stríði, ég elska þig út af lífinu og sakna þtn meira en orð fá lýst. Ágætt, símaði hún um hæl, en hvern- ig vœri að þú kæmir sjálfur með næsta skeyti ? — LEONARD MOSLEY hafa efni á að kaupa þeim uppþvottavél eða útvega þeim vinnukonu, en hinum, sem þurrka upp fyrir þær. Auk þess er aðskilnaður ekki megin- ástæða misheppnaðra hjónabanda. Iðu- lega er ástæðan einfaldlega sú, að hjónin eru orðin dauðleið hvort á öðru. Sú er algengasta orsök þess, að fólk skilur, að það á ekki skap saman. Það getur ekki, þótt það sé allt af vilja gert, lifað saman í sátt og samlyndi. Og er til nokkur betri grundvöllur undir ósamlyndi og rifrildi en sá, þeg- ar framagjarn maður er bundinn í báða skó af eiginkonu, sem neitar að taka þátt í draumum hans? Hjónaband af þessu tagi geta ekki blessast. Nei, karlmaðurinn verður að vinna. Ef þessi einfalda staðreynd hefur í för með sér grátur og gnístran tanna, þá er það skárst fyrir hjónabandið, að kon- an gráti að minnsta kosti ekki á meðan maðurinn er heima, heldur bíði með orgið þar til hann er farinn í vinnuna. Og loks þetta: Ef það, sem ég hef skrifað hér, ber fyrir augu einhvers karlmanns,-sem er í alvöru að velta því fyrir sér að skipta um vinnu til þess að geta átt fleiri samverustundir með konunni sinni, þá get ég gefið honum eitt heilræði. Spurðu hana fyrst, hvort henni finn- ist meira um — návist þína eða pen- inga? Já, farðu nú og spurðu hana. Svarið mun áreiðanlega koma þér á óvart. _ EVE PERRICK OG ANDMÆLI Ö VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.