Vikan - 16.02.1961, Qupperneq 3
Þessir aiðir eru báðir erlendir að uppruna,
og hafa ekki fest yaranlegar rætur hér. Þó
er það alsiða, enda ekki nema kurteisi, að
brúðgumi svari þeim ræðum, sem e. t. v.
eru haldnar til heiðurs hinum nýorðnu hjón'-
um, með örlitlum ræðustúf og þakki þ^r
með fyrir. Um hinn siðinn er það að segja,
að honum er ýmist fylgt hér eða ekki, en
mörgum brúðgumanum mun þykja gaman
að sýna brúði sinni, að þetta geti þeir nú.
Siðurinn mun vera tákn þess, að brúðgum-
inn ætli að bera konuna á höndum sér út
lífið. — En hvorugur þessara siða er svo
fastur orðinn í sessi hér, að nauðsynlegt sé
að fylgja honum. Ef þú ert málstirður, er
þér óhætt að sleppa ræðunni, og ef brúður-
in er þung, skaltu heldur láta hana ganga
sjálfa inn á nýja heimilið en eiga það á
hættu að missa hana niður.
O, sole mio.
Seint á sfðasta ári var Pósturinn beðinn
um texta við lagið „Ó, sole mio“. Þá tókst
ekki að ná í neinn „frambærilegan teksta“,
eins og það var orðað, og þetta vandfýsis-
lega orðalag virðist hafa vakið nokkurn kurr
með þjóðinni, og svo er að sjá sem æði marg-
ir hafi samið teksta við þetta lag, og þyki
sér nú stórlega misboðið, er enginn finnist
frambærilegur. Síðan þetta var, hefur text-
um við lagið rignt yfir Póstinn hvaðanæfa
af landinu, og er ég hér með 9 mismunandi
„ljóð“ fyrir framan mig. Og — tvö þeirra
eru „frambærileg“. Annað þeirra er komið
hér í miklu upplagi, og kemur ekki öllum
bréfriturum saman um einstöku orð, en text- • *
inn er samhljóða í tveimur bréfum, svo ég
kýs þá útgáfu:
Ó, dagsins stjarna, hver dýrð að sjá þig
er dauðans náttskuggar herja á mig,
og þó að kólni, og hausti í hjarta
og hverfi sumar, má ég elska og þrá þig.
Ó, sól, alltaf líf mitt og ljóðin mín
í logum brunnu af ást til þín,
sól, mín sólin bjarta,
ó, sendu glóð — í sólarljóð.
Þetta ljóð hefur borizt frá Vestfjörðum,
Norðurlandi, Austfjörðum og úr Reykjavík,
svo það virðist nokkuð þekkt. Enda scgir
einn bréfritari, að það hafi birzt í bók eftir
Steindór Sigurðsson, sem hét „Takið undir“.
En IM í Vík sendir annan teksta, sem mér
þykir öllu fallegri. IM segist hafa lært hann
fyrir stuttu, en hann sé gamall, og veit ekk-
ert um aldur hans eða ætterni. Hann er
svona:
Þegar blómin fölna
ferðu burtu frá mér
er hausta tekur
og sumar dvín.
Er vorar aftur
ég vona að sjá þig
það er hjartans heitust
óskin mín.
Seg mér í nótt
sem þú öðrum dylur
þínar hjartans óskir
og engu leyn
í nótt eða aldrei
skaltu hug minn skilja,
meðan blómin sofa
við vökum ein.
— Látum svo útrætt um „Ó, sole mio!“
Kæra Vika.
Einhverntíma heyrðum við sögu um Sherlock
Holmes og eitthvað í sambandi við Adam og
Evu, eftir að hin fræga leynilögreglupersóna
átti að hafa verið komin til himnaríkis- Getið
þið grafið söguna upp fyrir okkur?
Sagan segir, að þegar Sherlock Ilolmes kom
til himna, hafi guð orðið allshugar feginn,
því hann vantaði einhvern, sem gæti bent
honum á, hver þessi frægu hjón væru meðal
hinna útvöldu. Og Holmes hafði ekki lengi
verið í Paradís, þegar hann gat bent skapara
sínum á gömlu hjónin. Ástæðan til þess, hve
fljótur hann var að finna þau, var sú, að
þau voru einu englarnir, sem ekki höfðu
nafla. Þannig höfum við heyrt söguna, en
líklega eru til fleiri útgáfur af henni.
Grimm örlög.
Kæri Póstur.
Um daginn heyrði ég talað um . verzlunar-
mann, sem var að fara á hausinn. Það var sagt
um iiann, að hann væri búinn að koma sér
upp Sísifosarklett í vixlum. Hvað er Sísifosar-
klettur? B. V.
Sísifos er forn grísk söguhetja. Hann kallaði
yfir sig reiði guðanna, og í refsingarskyni
dæmdu þeir hann til þess að velta steini
einum upp á hátt fjall. í hvert skipti, sem
Sísifos er kominn með steininn upp á fjallið,
hrapar hann niður aftur. Og Sísifos má
leggja af stað með steininn enn einu sinni
enn, og losnar aldrei úr þrældómnum, því
kletturinn veltur ævinlega ofan, þegar
Sísifosi hefur heppnast að koma honum upp.
Ætli það sé kannski eitthvað svipað með
víxlana hjá manninum?
Upplýsingar um skóla.
Svarað mörgum bréfum.
Póstinum hafa borizt mörg bréf, þar sem
beðið er um upplýsingar um hina og þessa
skóla: Hvar þeir séu, hve langur skólatím-
inn sé, hver inntökuskilyrði séu o. s. frv.
Vegna þess, að hinn almenni lesandi Pósts-
ins hefur engan áhuga fyrir þessu, hefur
forsjá þáttarins hliðrar sér við að svara
slíkum bréfum, og hlotið reiði bréfritara
fyrir. En með því að snúa sér beint til skóla-
stjóra viðkomandi skóla, getur hver og einn
fengið upplýsingar frá fyrstu hendi. — Af
gefnu tilefni skal það einnig tekið fram, að
bréfum, sem Póstinum berast, er einungis
svarað i Vikunni — ekki bréflega. En öll
bréf eru þakksamlega þegin, og sem áður
mun verða leitazt við að svara sem flestum
og sem bezt.
HEINr
VARFETIES
BXRNSMXTUR
í glösum 09 pökkum
HEIMZ merkið tryggir
yður fyrsta flokks
vörugæði
.. . allir þekkja
HEIN2f
VARIETIES
O.JOHNSON & KAABER hA
vikan 3