Vikan - 16.02.1961, Side 10
Hús og húsbúnaður
íbúðarhúsum hefur verið likt við
vél, sem þarf að fullnægja ákveðn-
um skilyrðum til þess að geta geng-
ið. Ibúðir þurfa vissulega að full-
nægja skilyrðum til bess að vera sá
samastaður, sem maðurinn sækist
eftir. Af einingum íbúðarinnar er það
kannski öllu frekast eldhúsið, sem
líkja má við vél. Þar þarf hvert smá-
atriði að vera þrauthugsað og plan-
lagt, áður en byggingin hefst, og það
er bezt að taka það strax fram, að
þessi þáttur mælir eindregið með því,
að menn fái innanhússarkítekta til
þess að teikna eldhússinnréttingar,
ef þeir vilja, að þær verði eins og
helzt verður á kosið. Hefur meir og
meir færzt í Það horf að eldhúsið
yrði glansnúmer íbúðarinnar, enda
býr þar allt að fyrstu gerð: Fólk
gefur ekki eldhúsinu nýtt andlit með
fallegum húsgögnum eins og stof-
unni. Það hefur brunnið við á síð-
ustu og beztu tíhium, að hagkvæmn-
issjónarmiðið hefur orðið að víkja
fyrir stásslegu útliti. Ekki hefur
dugað minna en fjórar umferðir með
málningu og spartl á alla veggi, en
Framhald á bls. 31.
<] Téð meðfran\ öðrum langvegg í banda-
’ísku eldhúsi. Eldavélin er í borðinu,
kæliskápur, bökunarofn og þvottavél
innbyggð. Eldhússborðið nær ekki al-
veg niður að gólfi, og fyrir það sýnist
gólfið stærra. Takið eftir, hve allar
línur í þessu eldhúsi eru hreinar og
ákveðnar.
Smáatriðin skipta máli
Á bls. 25, 26, 27, 33 og
34 eru auglýstar eldhús-
innréttingar og eldhús-
tæki.
<1
Vel skipulagður
kústaskápur úr
sænsku eldhúsi,
þar sem staður
er fyrir hvern
hlut og hver hlut-
ur á sínum stað.
Kústaskápar eru
oft mjög illa inn-
réttaðir, og út-
koman verður sú,
að hlutirnir lenda
í hrúgu á gólfi
skápsins.
Þetta er að vísu verksmiðjuunnin eldhússinnrétting úr málmi, en ekkert
mælir á mót því, að hún sé ger af við, eins og hér er algengast. Þar sem
allir skápar eru opnir, skýrir myndin sig sjálf og sýnir, að mikil alúð hefur
verið lögð við það, að innréttingin rúmaði mb mest.
!□ VIKAN