Vikan - 11.05.1961, Side 27
BARIST TIL EINSKIS
Framhald af bls. 14.
brotsþjófur, seni liefur framið morðið i örvœnt-
ingaræði.
— t>að er eina skýringin, sagði Mildred. —
Maðurinn minn átti enga óvini.
Róbert aðstoðaði hana við jarðarfararundir-
búninginn og ýmislegt annað. Það voru alls
konar vottorð, sem þurftí að undirrita. Róbert
sá um þetta allt saman ... Því fór fjarri, að
honum þætti þetta ánægjulegt, en mikið skal
til mikils vinna, og hann var alveg sannfærður
um, að allt færi vel að lokum.
En tólf dögum eftir jarðarförina fór Róbert
til Mildred beint úr vinnunni til að vita, hvort
liann gæti ekkert liðsinnt henni. Veðrið var
fremur hráslagalegt. Hann gekk inn i garöinn,
þar sem trén svignuðu undan ávöxtunum. Stóra,
hvita húsið var eitthvað svo einmanalegt. Hann
hringdi dyrabjöllunni, en enginn kom til dyra,
og allt var hljótt. Hann tók í hurðina. Hún var
opin. Hvi skyldi hann ekki ganga inn? Þetta
var, hvort sem var, orðið eins og annað heimili
hans. Hann hafði líka mikla þörf fyrir að fá sér
sigarettu, en hafði skilið þær eftir á skrifstof-
unni. Hann fór inn i stofuna, en forðaðist að lita
á staðinn, þar sem Tom hafði legið við arin-
inn. Hann sá sígarettur á skrifborðinu og tók
eina. Þá kom hann auga á bréfmiða, sem lá
undir nokkrum skjölum á skrifborðinu. Hann
sá, að Mildred hafði skrifað það. Hann dró
bréfmiðann undan skjalabunkanum og las:
Kæri Georg. Það eru aðeins tólf dagar, siðan
Tom var jarðsettur. Aumingja Tom. — Mér
finnst það dálitið óviðkunnanlegt að skrifa þér
svona fljótt, en hins vegar sé ég enga ástæðu
til að biða. Hvorugt okkar hefur óskað honum
dauða. En fyrst þetta fór nú svona, getum við
gift oklcur, áður en langt um líður ...
Róbert las ekki lengra. Hann náfölnaði. Hin-
ar björtu vonir hans voru nú að engu orðnar.
Morðið á bezta vini hans hafði verið til einskis.
Mildred yrði aldrei konan hans. ★
LÁTIÐ OKKUR
LÉTTA STÖRFIN
VIÐ HREINGERUM
LOFTO GVEGGI
FLJÓTTOG VEL.
ÞRIF h.f.
Sími S5157.
Hvað segir Þor Haldurs
um Friðrik Ólafsson
Þar sem Þór Baldurs ætlar að taka að sór að
gera eina ævisjá í viku fyrir einn af lesendum
blaðsins í hvert sinn, þótti rétt að kynna getu
hans með því að láta hann gera ævisjár fyrir
þekkta menn. Að þessu sinni varð fyrir valinu
Friðrik Ólafsson, stórmeistari og lét hann blað-
inu góðfúslega í té fæðingarstað og stund. Það
skal tekið fram, að Þór Baldurs fékk ekki að
vita, hver maðurinn vnr. Hér á eftir fer ævisjá
Friðriks Ólafssonar.
Hann er fæddur 26. ianúar 1935 khikkan 3.
um nótt. Við fæðingu hans var sólin 5°16‘ i
Vatnsberanum, máninn 16° 08‘ í Vog og dýra-
hringsmerkið eða hið rísandi merki við fæð-
ingu var 10° i Sporðdrekanum. Þetta ern helztu
áhrifin, sem gætir i fari þessa manns en þau.
mótast einnig af öðrum áhrfum, sem gera hann
þeð sem hann er. Ég vildi nii ræða þessa brjá
höfuðþætti litillega hvern um sig, en síðan
taka til umræðu áhrif plánetanna.
Sólmerkið Vatnsberinn: Hér er um að ræða
mann, sem tilheyrir þroskaðri tegund Vatns-
beramerkismanna, þar sem aðrar plánetur
benda til að svo sé. Um þetta segir svo: Höfuð
einkenni hins þroskaða Vatnsberamerkismanns,
er hinn geysi vfðáttumikli sjóndeildarhringur
hans. Hann er algjörlega óvilhallur og frjáls
hugarfarslega, og gersneyddur hleypidómnm
eða fordómum. Hann er ónæmur fyrir erfða-
venjum. Þegar hann hins vegar verður að horf-
ast í augu við þær, litur hann þær með augum
hins sterka manns og ef til vill með nokkrum
áhuga og umburðarlyndi. Hann er hvorki her-
skár né árásargjarn i framkomu. Hann getur
beðið og þvi lengur. sem hann biður, verða
honum ljósari erfiðleikar hess að afla sér full-
vissu um nokkuð, sem er þess virði að um hað
sé vitað og hið heimskulega við að fordæma of
fliótt kenningar annarra, sem eru i leit að
sannleika en þeir geta alveg eins haft á réttu
að standa eins og hann. Þar af leiðandi er hann
algerlega laus við alla uppgerð og sjálfsblekk-
ingar svo framarlega að vit og vizka hans leyfi
slikt. Hann er fús til að nema hjá hverjum, sem
er jafnvel af litlu barni, þvi hann veit að eitt-
hvað er hægt að læra af öllum. Ef honum skyldi
auðnast að uppgötva eitthvað nýtt eða sjá f
gegnum einhverja blekkingarkenningu, er hann
venjulega áfram um að miðla meðbræðrum sin-
um af henni eins fljótt og mögulegt er. iafnvel
þó hann þurfi að falla frá sumum af skoðunnn?
sinum og kenningum. í raun og veru er liann
ein bezta tegnnd visindamanna, ekki endilega
hinn hagsýni vísindamaður, sem notfærir sér
alheimslögmálin á jarðsviðinu, en einfaldlega
nemandi lögmálanna, leitanda sannleikans, jiol-
inmóður, ástriðulaus og óþreytandi og aðferð
hans er sú að lita hlutina i Ijósi skilnings, f
samræmi við eigin skoðun og prófa og reyna
uppfinningu sina þangað til hann er ekki leng-
ur í vafa. IJm Sporðdrekamerkið risandi segir
svo: Sporðdrekamerkið risandi við fæðingu gef-
ur hlutaðeiganda heilsuhraustann ltkama, hug-
rekki, mikla orku og þolgæði. Ákveðinn skap-
gerðareinkenni, þannig að þegar honum mis-
likar eitthvað þá mislikar honum það stórlega,
bað sama er að segja um þegar honum fellur
eitthvað vel i geð. Hann er nokkuð virðulegur
með sig og hefur sjálfsvirðingu, sem gerir hon-
um kleyft að halda sinu i lifinu. Hann er mjög
djúpsær, samræmisfullur, greindur vel, starfs-
samur, duglegur og árvökull.
Máninn i Vogarmerkinu við fæðingu, stuðlar
mjög að greind einstaklingsins, en ef ekki kæmi
til stuðningur frá öðrum plánetum væri hann
ekki fær um að styðja skoðanir sínar. Fólk með
þessa afstöðu hagnast oftlega af samstarfi við
aðra annaðhvort í sambandi við giftingu, fé-
lagsskap eða almenning.
Nú hefur verið drepið á það helzta sem fylgir
þessura afstöðum almennt, en ég mun nú leitast
við að skýra hvað mótar og myndar þennan
Framhald á bls. 31.
Hlutafélagið Hamar
Blöndunartæki
Kranar
Fittings
morgum
gerðum
fy rir
Sighvatur
Einarsson & Co
Skipholti 15
Símar: 24133 - 24137
Baðkor
Handlaugar
Sturtur
og
Eldhús