Tíminn - 15.05.1986, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 15. maí 1986
Tíminn 5
um. Hrærið hann saman við jarðveg-
inn og gætið þess að hann liggi ekki
við berar rætur.
Tilbúinn garðáburður, s.s.
Blákorn, er einnig notaður á beð.
Honum er dreift létt yfir moldina
þannig að hann liggi ekki við plöntu-
stofna. Garðyrkjumaðurinn skyldi
alltaf hafa á bak við eyrað að: „Vel
hirtar og vel nærðar plöntur verða
síður fyrir óþrifum og verjast betur
við ásókn af lús og rnaðki".
Slitnir blettir
lagfærðir
Oft hafa grasflatir spillst yfir vet-
urinn. Snemma vors, meðan jarð-
vegurinn er deigur, er gott að raka
yfir skellur, bæta í þær moldar-
blöndu (mold og sandur) og jafna til
samræmis við grasflötinn. Sáð er
grasfræi í moldina og það létt
„saxað" saman við hana. Pá er
moldin völtuð eða troðin og síðan
vökvað.
Illgresi í grasflötinni
Fífill, njóli og annað illgresi gerir
vart við sig á vorin. Sé slíkt illgresi
ekki í miklu magni. má stinga það
upp með reku eða álíka verkfæri.
Fíflar og njóli hafa stöngulrætur sem
geta náð alldjúpt niður í jarðveginn.
Því þarf að gæta þess að slíta ekki
ræturnar, það sem eftir verður á
hægt með að spíra að nýju. Hjá
Sölufélagi garðyrkjumanna fást ýmis
lyf til að halda illgresi, einkum í
beðum, í skefjum. Með þeim fylgja
leiðbeiningar um meðferð og nota-
gildi.
Fyrirbyggjandi aðgerðir
Hægt er að hafa í frammi fyrir-
byggjandi aðgerðir gegn illgresi í
beðum. Til að mynda má breiða yfir
beðin með gegnhripum plastdúk.
Dúkinn má síðan hylja með vikri,
möl eða sandi í ýmsum kornastærð-
um. Þá kæmi og til greina að hylja
beðin með hverju þessara efna fyrir
sig og einnig með kurli (brytjuðum
trjáberki). I þessum efnum getur
illgresi spírað, en léttara er að ráðast
gegn því þar með hreinsun og/eða
lyfjum.
Gras þar sem það á
ekkl að vera!
Að fengnum þessum greinargóðu
upplýsingum hjá Jóhanni leitum við
ráða við vandamáli, sem er ekki
síður ágengt en óræktin í grasblettin-
um. Hvað er hægt að gera til að
vinna bug á grasi sem hefur komið
sér fyrir þar sem það er óvelkomið,
eins og t.d. milli steinhellna, uppi
við tráboli þar sem fólk er hrætt við
að beita beittum eggvopnum o.s.frv.
Jóhann sagði að þar sem ekki væri
hægt að koma því við að stinga
grasið upp og engar grænar plöntur
væru í hættu mætti nota efnið pregl-
on á óvelkomið gras. Það er selt hjá
Sölufélagi garðyrkjumanna með ná-
kvæmum leiðbeiningum. Það er út-
þynnt með vatni eins og leiðbein-
ingarnar segja til um og síðan spraut-
að með vökvunarkönnu, eða það
sem enn betra er, úðað með úðunar-
dælu yfir grasið. Þetta þarf að gera
tvisvar til þrisvar yfir sumarið með
u.þ.b. þriggja vikna millibili og best
að byrja um það leyti sem grasnál-
arnar fara að láta á sér kræla.
En hafið það hugfast að grænar
plöntur þola ekki preglon, það vinn-
ur einmitt á blaðgrænunni. Þess
vegna drepast þær grænu plöntur
sem fyrir úðuninni verða.
Falleg grasflöt er sómi hvers garðeiganda.
3
Eiðun' gifuriegt magn g mSra.
Sva,akassarogfes«ngar
Leirker T erracotta,
(úti og inni). Mikið úrval.
Lífrænn garðáburður
iblómabeð.matjurtagarða
ogágrasflatir.
Otiker í mörgum stærðum.
Veqgpottar úr leir.
Hvítir, rauðir og brumr,
margar stærðir.
Tilbúinn garðáburður
i 5 ioog öOkg.pokum.
Mosaeyðir (1,5 kg. á37,5 m .)
Garðverkfæri og
vökvunartæki.
Gífurlegtúrval.
Trékerundirtré og runna. p|öntUSalan & hafin
_ Mikiö úrval utibloma
W§ Btómum
rtðaveiokJ
Groöurnusinu vi