Tíminn - 15.05.1986, Blaðsíða 12
Byggingarvöruverslun Sambandsins, Suðurlandsbraut 32.
ús að þeir selji mikið af viðarvörum
innfluttum frá Finnlandi, m.a. harð-
viðarparkett af gerðinni Lamella frá
Paloheimo OYA, sem væri eitt
vandaðasta parkett sem fengist í
dag. Spónaplötur í mörgum þykkt-
um og stærðum frá Pellos og stein-
húðaðar krossviðarplötur frá Lahden
Teollisuusmaalaamo fengjust með
stuttum fyrirvara.
Pá væri Sambandið með stærstu
innflutningsaðilum á pípum og pípu-
lögnum, en þeir flyttu inn frá Birtish
Steel og Ferrostaal í Pýskalandi.
Margt annað má tína til svo sem
Huppe sturtuklefa, Gustavsberg
hreinlætistæki, þau mest seldu í
landinu, fúavarnarefni frá Gori og
múr- og holfestingar frá Fischer.
Af íslenskri framleiðslu eru máln-
ingarvörur l'rá Sjöfn á boðstólum,
bæði Polytex, Útitex, Rex-olíumáln-
ing og Texolín fúavarnarefni. Scld
er steinuli frá Steinullarverksmiðj-
unni á Sauðárkróki, sem Markús
kveður hafa yfirtekið markaðinn að
mestu leyti enda fari saman gott
verð og vönduð vara. Síðast en ekki
síst hefur Sambandið söluumboð
fyrir Vírnet hf. í Borgarnesi. Þaðan
kemur galvaniserað og litað báru-
járn, litað stál fyrir vegg og þak-
klæðningar auk alls saums.
Fyrir garðáhugafólkið má finna
garðhrífur, hjólbörur, garðsláttuvél-
ar svo fátt eitt sé tínt til. PHH
BYGGJUMA
REYNSLUNNI
Byggingavörusala SÍS er með
stærstu byggingavöruverslunum á
landinu og er til húsa að Suður-
landsbraut 32. Þangað flutti verslun-
in 1973 en Byggingavörusalan varð
sjálfstæð deild innan Sambandsins
1954. Núverandi forstöðumaður er
næsta ári. Fyrir utan sölu og lager-
geymslu, er stefnt að því að koma
þar upp timburþurrkun og allri timb-
urvinnslu.
En hvað býður verslunin að
Suðurlandbraut upp á? í stuttu máli
segir Markús að þeir selji allt sem
þarf í byggingarbransann. All flestar
vörur til nýbygginga og viðhalds,
auk girðingarefnis í miklu úrvali,
garðáhalda og handverkfæra.
Af einstökum vörum sagði Mark-
Garðáhöld í úrvali.
Markús Stefánsson og fræddi hann
blaðamann Tímans um starfscmina.
Sagði Markús að eftir mikla
þenslu á íbúðamarkaðnum undan-
farin ár væri mikils samdráttar farið
að gæta. Húsnæðismál væru í ólestri
og mjög erfitt væri fyrir fólk að
koma sér upp þaki yfir höfuðið.
Slíkt segði til sín og væri t.d. sala á
mótatimbri minni nú en hún hcfði
verið sl. 20 ár. Hins vegar væri
ákveðið samhengi í hlutunum, og
vegna þess hve fólk hefði verið
upptekið í nýbyggingum hcfði lítil
áhersla verið lögð á viðhald bygginga
sl. 10-15 ár. Þörfin væri því ntikil á
þessu sviði og mikil aukning væri
einmitt í sölu á viðhaldsvörum af
öliu tagi.
Timbursalan og önnur grófvöru-
sala hjá þeim hefði einnig liðið fyrir
þau þrengsli sem þeir þyrftu við að
búa í Ármúlanum. Úr því ætti nú
hins vegar að bæta svo um mun-
aði. Hafnar væru framkvæmdir
að Krókhálsi 7, en þar á að rísa
byggingarmarkaður sem þjónustar
Reykjavík og kaupfélögin, 6000 m2
að flatarmáli. Verið er að segja upp
bráðabirgðahúsnæði og er vonast
til uð sala geti hafist þar um næstu
mánaðamót. Að öllum líkindum
hefjast byggingaframkvæmdir á
þessu ári og er stefnt á að fyrsti
áfangi af þremur komist í gagnið á
Gustavsberg hreinlætistækin eru sívinsæl og Damixa blöndunartækin.