Tíminn - 15.05.1986, Blaðsíða 10

Tíminn - 15.05.1986, Blaðsíða 10
10 Tíminn Fimmtudagur 15. maí 1986 Samband íslenskra sveitarfélaga: Ráðstefna um umhverfismál Útivistarsvæði í þéttbýli voru ítar- lega rædd á ráðstefnu sem Samband íslenskra sveitarfélaga stóð fyrir á Kjarvalsstöðum dagana 25. og 26. apríl s.l. Ráðstefnan snerist um stefnu sveitarfélaga í umhverfismál- um og margir lögðu þar orð í belg. Meðal þeirra gesta sem héldu erindi voru tveir danskir sérfræðingar, Aksel Thomsen, garðyrkjustjóri í Óðinsvéum, og Ian Jörgensen, landslagsarkitekt, sem skýrði á ráð- stefnunni frá norrænu samstarfs- verkefni um umhverfismál í þéttbýli. „Ég starfa fyrir norrænu ráðherra- nefndina í vinnuhóp sem fjallar um umhverfismál. Þar er unnið að því að koma á samræmdri stefnu í þessum málurn," sagði Ian Jörgens- en í samtali við Tímann milli erinda. Hann sagði að útivist í þéttbýli leiddi af sér sama skipulagsvanda á öllum Norðurlöndunum, sem hægt væri að leita lausna á sameiginlega. Ljóst væri að norrænar þjóðir þyrftu að búa sig undir þróun í átt til breyttra lffshátta, sem þegar væri hafin, með því að laga umhverfi sitt að þeirri þróun. Ian tók sem dæmi að vinnu- vikan í Noregi hefði nýlega farið ofan í 37,5 klukkustundir og ætti líklega eftir að styttast enn meir þar og í nágrannalöndunum. Þetta leiddi af sér að tími til tómstunda yrði meiri en áður og ekki væri fráleitt að ætla að almennt yrði meiri áhersla lögð á útiveru en áður. En hvernig horfa þessi mál séð frá sjónarhóli Islendinga? í erindum kom fram að fremur lítið hefur verið hugað að skipulagningu og frágangi útivistarsvæða í flestum sveitarfélög- um hérlendis miðað við það sem gerist á öðrum Norðurlöndum. „Byggðin í landinu ber þess skýrari merki, að þjóðin er að komast af veiðimanna- og hjarðmennskustiginu á stig varanlegrar búsetu með vax- andi menningarsvip. Við erum að átta okkur á nauðsyn þess að búa með landinu í stað þess að búa andstætt náttúru þess og eðli,“ sagði Björn Friðfinnsson formaður Sam- bands íslenskra sveitarfélaga í upp- hafi ráðstefnunnar. Meðal þeirra sem tóku til máls á ráðstefnunni voru Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins, sem ræddi um „Útivistarsvæði í skipulaginu", Reynir Vilhjálmsson, landslags- arkitekt, sem ræddi um „Grænu svæðin í skipulaginu“, og Gestur Ólafsson, framkvæmdastjóri Sam- taka sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu,sem ræddi um „Átak í trjá- rækt á höfuðborgarsvæðinu“. í erindi sínu fjallaði Gestur um markmið, skipulagningu og fram- kvæmd trjáræktar í þéttbýlinu á suðvesturhorninu. Einn þeirra fjöl- mörgu þátta sem hann minntist á í þessu sambandi er trjávernd. Um það efni sagði hann eftirfarandi: „í mörgum gömlum íbúðarhverfum á höfuðborgarsvæðinu, einkum í Reykjavík og Hafnarfirði, skipar trjágróður verulegan sess í umhverf- inu og er mikilvægt að varðveita hann. Ekki má fella tré sem er 40 ára eða eldra eða 4 metrar á hæð eða hærra, nema með leyfi byggingar- nefndar. Trjáræktarnefnd leggur einnig til að gert verði trjáverndar- skipulag af gömlum hverfum á höf- uðborgarsvæðinu, þar sem m.a. komi fram hvaða tré eða trjáþyrp- ingar innan hverfanna eða í tengsl- um við þau skuli vernda vegna fræðslu-, sögu og umhverfislegs gildis. Sett verði kvöð um trjávernd á einstök tré eða þyrpingar af trjám. í henni fælist, að óheimilt væri, - að fella tréð, stýfa það eða kliþpa til skaða. Ef fella þarf tré sem á hvílir kvöð um trjávernd, þá sé tryggt að eitt eða fleiri tré séu gróðursett á sama stað eða sem næst upprunalega staðnum. 1 trjávernd felst líka að verja tré aðsteðjandi hættum, einkum skemmdarverkum og slysum frá umferð. Þetta er gert með hlífum stoð eða girðingum. Enn felst trjá- vernd í því að græða tré sem sýkjast eða skemmast. Það má gera með ýmsum hætti og einnig er oft hægt að koma í veg fyrir slíkt með réttri hirðingu. Nauðsynlegt er einnig að koma á trjámati, til þess m.a. að meta gildi einstaka trjáa ef þau verða fyrir skemmdum. Trjávernd og trjámat þarfnast reglubundinnar endurskoðunar og ættu að vera í umsjá garðyrkjustjóra sveitarfélag- anna, með samkomulagi við eigend- ur trjánna". Hulda Valtýsdóttir, formaður Umhverfismálaráðs Reykjavíkur- borgar, ræddi um störf og stefnu Umhverfismálaráðsins. í lok tölu sinnar leit hún til framtíðarinnar og sagði m.a.: „Varðandi stefnu til framfíðar er sem á hinum fyrra lið efst á blaði áframhaldandi uppbygg- in og gróðurefling á útivistarsvæðum bæði innan borgarmarka og utan, gerð göngu- og hjólreiðastíga, varð- veisla náttúruverðmæta og stuðning- ur yfirleitt við alla þá þætti í borgar- lífinu, sem stuðla að bættu mannlífi. Lausn holræsamála hefur lengi verið á dagskrá í borgarkerfinu og nú er ástæða til að fagna því, að gerð hefur verið raunhæf áætlun um framtíðar- lausn Reykjavlkurborgar í fráveitu- málum til ársins 1993, þar sem gert er ráð fyrir svipaðri fjárveitingu til framkvæmda árlega og veitt er til þessa í ár. Þetta eru vissulega dýrar framkvæmdir en á síðustu árum hefur farið fram sú mikla undirbún- ingsvinna,sem gerir hana raunhæfa. Á döfinni er líka áætlun um upp- byggingu útivistarsvæðisins í Laugardal í samræmi við tillöguupp- drætti, sem nú liggja fyrir frá Teikni- stofu Reynis Vilhjálmssonar og mið- ast hún við framkvæmdir næstu 4 ár. Þær tillögur gera ráð fyrir afar fjöl- breyttu svæði til margs konar afnota og útivistar. Útivistarsvæðið í Naut- hólsvík hlýtur að koma í kjölfarið, enda nú fyrst mögulegt að gera raunhæfar tillögur um skipulag þess eftir að endanlega var gengið frá skipulagi flugvallarsvæðisins. Brýnt verkefni sömuleiðis er frágangur á bökkum Tjarnarinnar, sem hefur verið látinn sitja á hakanum á meðan beðið er eftir samþykki tillagna um skipulag Kvosarinnar og endanlegr- ar ákvörðunar um staðsetningu lítils ráðhúss við norð-vesturhornið. Ég hef ekki minnst sérstaklega á útivist- arsvæði Reykvíkinga í Heiðmörk, þar sem þegar hefur farið fram mikil uppgræðsla og gróðursetning. En næsta stórátak svipaðs eðlis verður væntanlega Hólmsheiði, gróðurrýrt svæði austur af borginni, sem bíður þess að úr verði bætt“. Ráðstefnunni lauk með því að umræðuhópar sem höfðu áður verið myndaðir skiluðu áliti og fram fóru almennar umræður. ' C '.................. . ■■ ■■.............. ■>'.-'-■ >. ----------------------••‘: * •■• ’...........i' i ■wmst^S'Mn^aur ■ _ ^ ■ ■■ /'... ■■■' ‘ : ' ' 'JT . * mm . *•• •>«*-•“ y- ’ ■: 7 ■. ' sélj ,,, _ :: * %% - vSgf* .......PPII MujQt ,‘iir I '1 - iii "■•'■■. . ‘ jkLi:. tf. r'.ff.l' fsi Aimcnna «uglysmgaalotan hl lláiiuwéla markaðurinn Smiöjuvegur 30 E-gata, Kópavogur Sími 77066 Sláttuvélar fyrir allar stærðir garða 0 Landsins mesta úrval viöurkenndra sláttuvéla. 0 Liprir sölumenn veita faglegar ráðleggingar. 0 Árs ábyrgð fylgir öllum vélum. 0 Öruggarleiðbeiningar um geymslu ogmeðferð sem tryggir langa endingu. 0 Cóð varahluta- og viðgerðarþjónusta. Yfir 20 tegundir sláttuvéia Fisléttir Flymosvifnökkvar. sem hægt er að leggja saman og hengja upp á vegg eftir notkun 0 Rafsvifnökkvar 0 Bensínsvifnökkvar fynr litla og meðalstóra grasfleti 0 Atvinnusláttuvélar fyrir fína grasfleti jafnt sem* sumarbústaðalóðir 0 Snotra meö aflmiklum 3.5 hestafla mótor 0 Hjólabúnaður stillanlegur með einu handtaki 0 Með eða án grassafnara. Westwood garðtraktorar Liprir. sterkir og fjölhæfir. 7.5—16 hestafla mótor. Margvíslegir fylgihlutir fáanlegir. Henta vel fyrir sveitarfélög og stofnanir. Crittall gróðurhús Margar stærðir. Einnig vermireitir. Verslið þar sem úrvalið er mest og þjónustan er best. u ÍFIymoj L U Westwood

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.