Vikan - 12.03.1964, Síða 32
Fermingargjöfin i ár-
Kodak mydavél i gjafakassa
tte tl» \U \U V/ V« _\U. Af», Ate Ate VO- AttAV- AtA V*/ Af»- »V S9a Ate
KODAK VEGTA
með t'o'sku og tveim filmum kr 331
KODAK STARMITE
með innbyggðum flashlampa, einni filmu
og 5 flashperum kr 662
Eiunig
KODAK 6RESTA
kr 284
flashlampi - 182
taska “ 77
m
SÍMÍ 20313
BANKASTRJETI 4
n
4
'HLiPiiap
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Nokkrar líkur eru til þess að þeir, sem þér þykir
vænzt um, komi þér þægilega á óvart. Það bezta
fyrir alla aðila er að þú takir þessu með rósemi.
Leggðu að þér við vinnu þína, reyndu að auka þekk-
ingu þlna til þess að afköstin geti orðið sem mest og bezt
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Gættu þess að keppinautar þínir komizt ekki á
snoðir um áform þín, það er einhvers staðar veikur
lilekkur í keðjunni, sem þú verður að treysta.
Kunningjar þínir leita ráða hjá þér og muntu hljóta
nokkurn ávinning af ef þú bregzt vel við.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Þú munt umgangast óvenju mikið yngstu meðlimi
fjölskyldunnar og hafa ánægju af. Auknar líkur eru
til einhverra fjárhagsörðugleika, ef þú ert vel á
verði geturðu krækt þér í arðsama tekjulind. Kvíða-
fullur vinur þinn leitar til þín í vandræðum.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Heimiliserjur eða einhverjir örðugleikar innan fjöl-
skyldunnar hafa æsandi áhrif á skapgerð þína, en
þar sem þú átt þinn þátt í málinu skaltu halda
aftur af dómgirni þinni. Persóna, sem þú reiknað-
ir ekki með, veitir þér kærkomna aðstoð.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Reyndu að hafa góð áhrif á umhverfi þitt með
glaðlegri framkomu. Þess getur verið krafizt af þér,
að þú gerist sáttasemjari í deilu elskenda, gættu
þess helzt að vera ekki hlutdrægur. Hugsaðu meira
um sjálfan þig en undanfarið og vertu dálítið örlátur.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Þér veitist auðvelt að leysa vandamál, sem hefur
legið á þér eins og mara um tíma. Maki þinn eða
náinn vinur þarfnast félagsskapar þíns. Þú færð
undarlegar fréttir af kunningjum þínum, sem
dveljast fjarri þér, trúðu þeim varlega. Notaðu helgina til þess
að slappa af.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Þú getur glaðzt yfir því sem þér hefur tekizt að lag-
færa í kringum þig á tiltölulega stuttum tíma, setztu
nú aðeins niður og njóttu þess arna. Einn fjölskyldu-
meðlimurinn kemur þér á óvart með einkaframtaki
sínu. Losaðu þig við hlut, sem er þér fjárhagsleg byrði.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Erfiðleikar, sem krefjast krafta þinna, eru því mið-
ur áhjákvæmilegir, leggðu þig fram, því þú getur
bægt þeim burt. Þú þarft að leita hjálpar starfs-
félaga þíns sökum þess hve illa þú hefur fylgzt með
undanfarið. Sinntu meir félagsstörfum en áður.
©Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. desember):
Vikan verður fremur tilbreytingarlaus, en þú hef-
ur nóg að gera og engan tíma til að láta þér leið-
ast. Þú færð heimsókn ættmennis þíns eitthvert
kvöldið, sem færir þér eitthvað. Líkur eru á að þú
farir smávegis út til að skemmta þér. Mundu töluna 4.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar);
hefur fengið verkefni í hendurnar, sem krefst
mestan hluta tíma þíns, og sem þú verður að leggja
‘"qggpr alúð við til að uppskera ríkulega. Ættingjar, sem þú
hefur lítið samband við, pirra þig með afskipta-
semi sinni, láttu það ekkert á þig fá og haltu þínu striki.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Þú kemst að undirferli eins kunningja þíns og skaltu
láta þér það að kenningu verða. Bezta ráðið til að
anna öllum þeim verkefnum, sem að þér steðja,
er að þú skipuleggir tíma þinn. Þú kemst ekki hjá
talsverðum peningaútlátum.
©Fiskamerkið (20. janúar — 20. marz):
Gættu þess að koma ekki þeim, sem þú umgengst
mest, úr jafnvægi, þótt geðprýði sé ekki fyrir að
fara hjá þér í bili. Innan fjölskyldu þinnar ríkir
mikil ánægja og samhugur. Þú þarft að fara í
ferðalag, sennilega í viðskiptaerindum.
m
— VIKAN 11. tbl.