Vikan - 26.05.1966, Blaðsíða 4
Sólstóll cr einkar þægilegur í ferðalagið. Það
er hægt að hrjóta hann saman og þá fer lítið
fyrir honum. Og svo er hægt að leggja hann
niður eins og sést á myndinni.
Að sofa á vindsæng í tjaldi er annað lif og síðan er hægt að
búa til þægilegan stól úr vindsænginni cins og sést á mynd-
inni.
Sport-tjöldin hafa orðið mjög vinsæl og það $
cru einmitt þesskonar tjöld sem lesendum Vik-
unnar gefst kostur á að vinna.
Njótið íslenzkrar
náttúru
Sá sem fer til útlanda í leit að náttúrufegurð, leitar langt
yfir skammt. íslenzk náttúra er í senn stórbrotin, marg-
breytileg og fögur. Hennar verður bezt notið með því að
ferðast ekki of hratt, á eigin bíl og hafa með í förinni
fullkominn viðleguútbúnað. Hugsið ykkur, hvað það væri
unaðslegt að tjalda á stað eins og þeim er sést á mynd-
inni.
Fögur er Hlíðin
Staðurinn á myndinni er innarlega í Fljótshlíðinni og heit-
ir Bleiksárgljúfur. Það er sagt að Sigurður Gottsvinsson,
sá er stóð fyrir Kambsráninu fræga, hafi stokkið yfir gljúfr-
ið með viðarbagga á baki. Aðrir menn leika það víst ekki
eftir baggalausir. Þetta minnir á það sem Tómas Guð-
mundsson sagði, að „landslag væri lítils virði/ef það
héti ekki neitt". Það er varla sá blettur til á okkar landi,
að honum séu ekki einhverjar sagnir tengdar.