Vikan


Vikan - 26.05.1966, Blaðsíða 7

Vikan - 26.05.1966, Blaðsíða 7
Fyrsta fflokks ffrá FONIXs ÁTLAS KÆUSKÁPAR - FRYSTISKÁPAR - FRYSTIKISTUR KÆLING er aSferðin, þegar geyma á matvæll stnttan tíma. Þetta vita allir og enginn vill vera án kæliskáps. FRYSTING. þ. e. djúpfrysting við a. m. k. 18 stiga frost, er auðveldasta og bezta aðferðin, þegar geyma á mat- væli langan tíma. Æ fleiri gera sér ljós þægindin við að eiga frysti: fjölbreyttari, ódýrari og betri mat, mögn- leikana á því að búa \ haglnn með matargerð og bakstri fram i timann, færri spor og skemmri tíma til innkaupa — því að „ég á það í frystinum". Við bjóðum yður 5 stærðir ATLAS kæliskápa, 80— 180 cm háa. Allir, nema sá minnsti, hafa djúpfrysti- hólf, þrir með hinni snjöllu „3ja þrepa froststillingu", sem gerir það mögulegt að halda miklu frostl í frystihólfinu, án þess að frjósl neðantil i skápnum; en einum er skipt í tvo hluta, sem hvor hefur sjálf- stæða ytri hurð, kæli að ofan með sér kuldastillingu og alsjálfvirka þiðingu, en frysti að neðan með eigin froststllllngu. Ennfrcmur getið þér valið um 3 stærðir ATLAS frystlkista og 2 stærðir ATLAS frystiskápa Loks má nefna hina glæsilegu ATLAS viðar-kæliskápa i herbergi og stofur. Þér gctið valið um viðartegundir og 2 stæröir, með eða án vinskáps. r Munið ATLAS einkennin: Á Glæsilegt og stílhreint, nýtízku útlit. * Fullkomin nýting geymslurýmisins með vand- aðri markvissri innréttingu. if Innréttingarmöguleikar með sérstökum Atlas- búnaði. ☆ Sambyggingarmöguleikar (kæliskápur ofan á frystiskáp), þegar gólfrými er Ktið. ■6 Færanleg hurð fyrir hægri eða vinstri opnun. if Hljóð, létt og þétt segullæsing og möguleikar á fótopnun. "Ar 5 ára ábyrgð á kerfi og traust þjónusta. Póstur minn! Þessa stundina hef ég við dálitið viðkvæmt vandamál að stríða, og vona ég að þú hjálpir mér með það sem bezt þú getur. í sumar leið kynntist ég enskri stúlku, sem hér var stödd á ferða- lagi. Er ekki að orðlengja það, að við urðum fljótt ákaflega ástfang- in og vorum trúlofuð áður en mánuður var liðinn. Hún hætti meira að segja við að fara heim, þegar hún var búin með sumar- fríið, en fékk sér vinnu héma heima og síðan höfum við verið hér saman. Nú í sumar höfum við ákveðið að fara til Englands, láta gifta okkur þar og heim- sækja foreldra hennar. Hún hefur þegar skrifað foreldrum sínum og sagt þeim allt af létta um fyrir- ætlanir okkar, en nú vill hún endilega, að ég skrifi þeim líka, svo sem til að kynna mig. Ég vil ósköp gjarna gera þetta fyrir hana, en ég hef bara ekki hug- mynd um, hvað ég á að skrifa. Mér skilst, að Englendingar séu ennþá dálítið formlegir í svona málum, svo að kannski þykir for- eldrum stúlkunnar hlýða, að ég biðji þau um hönd og hjarta hennar að góðum og gömlum sið. En mér finnst það nú einum of seint — hvað finnst þér? Ó.B. Það' er heldur seint séð, satt seg- irðu. En það er sjálfsagt fyrir þig að skrifa þeim. Reyndu að Iáta þau finna, að þú sért mjög ást- fanginn af dóttur þeirra og þakk- látur hamingjunni fyrir að hafa leitt ykkur saman. Taktu líka fram, að þú hlakkir til hjóna- bandsins með henni og skýrðu í fáum orðum frá helztu framtíð- aráætlunum þínum. Það ætti að nægja í bráðina. Kæri Póstur! Ég er tuttugu og þriggja ára gamall og hef undanfarið verið í kunningsskap við stúlku, sem er tveimur árum yngri en ég. Hún var gift áður og á þriggja ára barn. Við höfum talað um hjónaband, en mér er ekki alveg sama um fortíð hennar. Auk fyrra hjónabandsins hefur hún játað fyrir mér, að hún hafi verið með fleiri mönnum áður en hún giftist. Ég vil gjarnan láta þetta liggja milli hluta, en ég get ekki fellt mig við að taka að mér barnið. Hún skilur þetta fullkom- lega og er reiðubúin til að koma barninu í fóstur. Heldurðu að við getum orðið hamingjusöm? K.L. Það efa ég. Þú ert greinilega mjög viðkvæmur fyrir fortíð stúlkunnar, fyrst þú getur ekki hugsað þér að hafa bamið henn- ar hjá þér, og þótt þú þykist geta látið önnur ævintýri hennar liggja milli hluta, er hætt við að þú minnist þeirra síðarmeir og það muni þá verða til þess að spilla hamingju ykkar. Auk þess er fram úr hófi ósanngjarnt af þér að ætlast til þess, að stúlkan láti frá sér barnið; þótt hún sætti sig við það í bráðina (og því er ég hissa á), þá iðrast hún þess tvímælalaust síðar og kemur þá til með að ásaka þig fyrir það. Nei, það er áreiðanlega bezt fyrir ykkur að skilja að skiptum og verða ykkur úti um maka, sem hæfa ykkur betur hvoru um sig. ALLT í LAGI MEÐ ALDURSMUNINN, EN . . . Kæri Póstur! Ég er kominn undir fertugt og er þessa stundina í vinfengi við rúmlega tvítuga stúlku. Við er- um bæði mjög ástfangin og höf- um ráðgert að ganga í hjónaband. En undir niðri er ég dálítið rag- ur við það, bæði vegna aldurs- munarins og annars. Ég hef, býst ég við að ég megi segja, ekki verið neitt sérstakt guðsbarn það sem af er og lifað fremur hátt á marga vegu. Þetta á eflaust sinn þátt í því að karl- mennska mín — þú skilur — virðistheldur vera farin að slapp- ast, að visu ekki svo að mein sé að, enn sem komið er. Heldurðu kannski að þetta gæti komið illa niður á hjónabandi okkar, ef úr því yrði? S.M. Við fáum ekki séð að aldursmun- urinn sjálfur þurfi að verða hjónabandshamingju ykkar nokk- ur þrándur í götu, enda eru mý- mörg dæmi þess, að hjónabönd hafi lánast vel, þótt eiginmaður- inn hafi verið tíu til tuttugu ár- um eldri en frúin. En varðandi þessa likamlegu afturför, sem þú nefndir, getum við lítið sagt, þar eð okkur er auðvitað ekki ljóst, hversu alvarlegs eðlis hún kann að vera. Til að ganga úr skugga um það atriði ættirðu að leita læknis án tafar. Um allt þetta fáið þér frekari upplýs- ingar, með því að koma og skoða, skrifa eða útfylla úrklippuna, og mun- um við leggja okkur fram um góða af- greiðslu. — Sendum um allt land. FÖNIX SÍMI 24420. SUÐURGATA 10. RVÍK. Sendið undirrit. ATLAS myndalista og nákvæmar upplýsingar. m.a. um verð og greiðsluskilmála. Nafn:.......................................................................... Heimilisfang: ................................................................ Til FÖNIX s.f., pósthólf 1421, Reykjavlk. VIKAN 21. tbl. J

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.