Vikan - 14.07.1966, Blaðsíða 33
tilefni til að ætla að hann sé önugur
og nánast leiðinlegur í skiptum sínum
við aðra. En þeir, sem gerzt þekkja
kauða, staðhæfa, að slíku sé ekki til
að dreifa. Reyndin er sú, að hann er
feiknalegur kjaftaskur, þegar nánustu
vinir eru nærstaddir. Eftirlætisum-
ræðuefni hans er nútíma jazz. Tíður
gestur á dansiböllum Konunglega
Listaháskólans, en eiginkona hans,
Shirley, nemur þar höggmyndalist.
Stundaði sjálfur nám í Listaskóla og
hafði drjúgar tekjur sem auglýsinga-
teiknari, áður en hann gekk í lið með
Rollingunum. Lék áður með jazzhljóm-
sveit Alex Komers. Þótti erfitt að
aðlagast músik Rollinganna, því að
hann þurfti að venja sig á að slá fast-
ar í trommurnar, en hann hafði ekki
tiltakanlega sterka úlnliði. Býr í fjöl-
býlishúsi við Regents Park — á næstu
hæð fyrir neðan Donovan.
r I -
BILL WYMAN — 323 atkvæði.
Hið rétta eftirnafn hans er Perks, en
hann breytti því 1 Wyman. Fæst ekki
til að gefa upp aldur sinn. Áreiðan-
lega elzti Roliingurinn. Mikil leynd
hvíldi yfir giftingu hans. Kona hans
heitir Diane og þau eiga ungan son,
Stefán að nafni. Lauk stúdentsprófi
og gekk svo í lið með Rollingunum
eftir að hafa svarað auglýsingu í dag-
blaði, þar sem óskað var eftir bassa-
leikara. Kýs heldur jórturleður en rök-
ræður. Mjög leiður á hinum eilífu
ferðalögum hljómsveitarinnar. Þykir
mjög vænt um fjölskyldu sína, en
vill ekki tala um einkamál sín við
þá, sem hann þekkir ekki.
ísfirðingar bjartsýnir á
framtíðina
Framhald af bls. 19.
sem setur saman tvöfalt gler,
málningarverksmiðja, plastgerð,
ennfremur hefur starfað héma
heillengi prentsmiðja, þar fer
fram öll prentun fyrir Vestfirði
og þar á meðal fjögur blöð, Vest-
urland, blað sjálfstæðismanna,
Skutull, blað Alþýðuflokksins, fs-
firðingur, sem er framsóknarblað
og Vestfirðingur, blað Alþýðu-
bandalagsins.
— Er mikil harka í pólitíkinni
hér?
— Það var mikil harka í henni
hér fyrr meir en nú á síðari tím-
um hefur verið betra samkomu-
lag um málefni bæjarins. Það
hefur líka verið mikið fram-
kvæmt, til dæmis er búið að mal-
bika 40% af öllum götum í bæn-
um.
— Hvernig er veðurfarið að
jafnaði?
— Veðursæld er einstök á fsa-
firði. Meðan hér var veðurathug-
un, kom í Ijós að logn. var 40
daga af hverjum 100, allan árs-
ins hring. Allmikinn snjó legg-
ur í hlíðar en hann hefur þó ver-
ið lítill undanfarin ár, en siðari
hluta liðins vetrar var mikill
snjór. Eitt bezta skíðaland lands-
ins er í Seljalandsdal hér í námd
við ísafjörð.
— Það hefur mikið verið tal-
að um svokallaða Vestfjarðaá-
ætlun sem mun vera til þess að
bæta hér samgöngur?
— Samgöngurnar hafa lengi
verið erfiðasta vandamálið á
Vestfjörðum. Samgönguáætlun
Vestfjarða var samþykkt af rík-
isstjórninni í marz 1965 og sam-
kvæmt henni er ætlað að verja
171 milljón til samgangna frá
1965—1968, það er að segja til
vegamála, hafnargerða og flug-
valla. Á ísafirði á að verja miklu
til flugvallarins, flugstöðvar-
byggingu vantar og svo á að mal-
bika brautina.
—- Gerirðu ráð fyrir að ísfirð-
ingar fari fremur landleiðina suð-
ur eftir að kominn er vegur frá
ísafirði og inn í Djúp?
— Já, tvímælalaust. Aðalleið-
in suður mun í framtíðinni verða
um Djúpið og yfir Þorskafjarð-
arheiði. Sú leið er miklu styttri
og miklu léttari. Með því að fara
gömlu leiðina, vestur Barða-
strandasýslu og þræða síðan
firðina, verður að fara yfir átta
fjallvegi og sumir eru mjög erf-
iðir eins og kunnugt er. Hæsti
þröskuldurinn er Breiðdalsheiði,
milli Skutulsfjarðar og Önund-
arfjarðar, en nú er áætlað að
grafa um 600 metra löng jarð-
göng gegnum þennan fjallgarð
og við það lækkar vegurinn um
100 metra. Nú er unnið þar að
vegabótum fyrir 2,6 milljónir en
samtals verður á þessum fjórum
árum unnið fyrir 14,6 milljónir
einungis á þessum fjallvegi.
— Er ekki búið að samþykkja
að byggja menntaskóla á fsa-
firði?
— Jú, það var búið að vera
baráttumál í 20 ár og vakti mik-
inn fögnuð þegar það var sam-
þykkt. Auk barnaskólans er hér
gagnfræðaskóli með einum bekk
sem framhaldsdeild fyrir mennta-
skóla. Iðnskóli er starfandi, líka
húsmæðraskóli og tónlistarskóli
hefur starfað af miklum þrótti í
17 ár óslitið. Það er óhætt að
segja að músik- og sönglíf hefur
staðið með miklum blóma á fsa-
firði enda tveir kórar starfandi,
Sunnukórinn og karlakór. Þar að
auki er lúðrasveit. ísfirðingar
hafa líka látið talsvert til sín
taka í íþróttum: Nýr íþróttavöll-
ur var tekinn í notkun fyrir
tveim árum, sundhöll hefur verið
hér í 20 ár, og bæði er knatt-
spyrna og skíðaíþróttin mikið
iðkaðar íþróttir.
— Mér er sagt að fátækt sé
naumast til á ísafirði?
— Já það er rétt, fátækt er
ekki til og meðaltekjur verka-
manna hér eru hærri en syðra.
Vð höfum þrjú hraðfrystihús í
bænum og eru tvö þeirra starf-
rækt, útgerð hefur farið vax-
andi og er að sjálfsögðu undir-
staða atvinnulífsins. ísfirðingar
eiga 12 báta af stærri gerðum og
gerðir eru út margir smærri bát-
ar. Mér finnst að hér hafi orðið
miklar framfarir á síðustu árum
og nú sé fólk farið að hætta að
tala um að flytja héðan líkt og
áður var. Á árinu 1910 voru í-
búar fsafjarðar 15,7% af íbúa-
tölu landsins, en á árinu 1963
voru þeir komnir niður í 5,7%.
PHILISHAVE
Rafmagnsrakvélar
i miklu úrvali meff og
án bartskera og
h'arklippum
Vlfl ÓfllNSTORG
SÍMI 1 0322