Vikan - 29.12.1966, Síða 20
HEIMILISFADIRINN
HEFUR ALLTAF Á
iÉTTU AD STANDA
í DRETLANDI
Persónuforréttur karimannsins er
mjög óberandi í fjölskylctulífi í Bret-
landi. Það er hann sem verSur að
fó rétta menntun, ganga í beztu
skólana, tala lýtalaust mól, og gera
sér far um að lifa mannsæmandi,
með tilliti til stöðu sinnar. Eigin-
konan verður auðvitað að segja skil-
ið við stöðu sína, þegar hún giftir
sig. Og verði eitthvað af börnunum
sonur, er það jafn sjólfsagt, að
mennfun hans verður að ganga fyr-
ir öðru. í þessari grein eru ensk
hjón, Anthony og Patricia Garner,
tekin sem dæmi.
ÖNGU hjónin Patricia og Ant-
hony Garner, eru nýflutt í
húsið nr. 130 Waymade, By-
fleet, með litla dóttur sína.
Byfleet er ein af hinum nýtízkulegu
útborgum London. Það er ekki svo
erfitt að fá íbúð í London, en vand-
ræðin liggja í því, að fá góða íbúð
og á réttum stað í borginni, þar sem
ekki er of langt til vinnustaðar, en
er samt ekki of dýr. Svo er það
lika mikilvægt að heimilisfangið sé
,,fínt", það er stórt atriði í Eng-
landi, þar sem stéttarmunurinn er
mikill.
Þegar þau kynntust var Patricia
að læra hjúkrun. Hún hætti námi
þrem mánuðum fyrir lokapróf. Fað-
ir hennar, sem er læknir, varð æfur
yfir því að hún skyldi ekki Ijúka
prófi. Þessvegna var lítið um há-
tíðahöld við hjónavígsluna, en þó
giftu þau sig í kirkju.
Patricia var aðeins tvítug, þegar
þau giftu sig og Anthony tuttugu og
sjö ára. Giftingaraldurinn fer lækk-
andi í Englandi, eins og annars
staðar, sérstaklega á það við um
stúlkur. Þess er yfirleitt krafizt af
manninum að hann hafi örugg lífs-
kjör upp á að bjóða. Anthony er inn-
anhússarkitekt og vinnur í fyrirtæki
sem aðallega sér um innréttingar
klúbbhúsa, veitingahúsa og snyrti-
fyrirtækja. Að sjálfsögðu dreymir
hann um að eignast b(l og eigið
fyrirtæki, fá sjálfur stór verkefni, en
til þess þarf heilmikið fé.
Lifnaðarhættir þeirra eru mjög
táknrænir fyrir flest ungt fólk í
20 VIKAN 52-