Vikan - 29.12.1966, Qupperneq 22
*0 Borghese og Barzini hneppa að sér fyrir brottförina frá Berlín.
O Sendinefnd tekur á móti Itölunni skammt utan við Moskvu.
Eitt kortanna, sem Godard fékk af Spijkernum í Tomsk og sendi Jacobusi.
Þil kesrlul yfir
ihæiuia mina.
Fsvíihinlarnir!
V
*6. HLUTI Sig. Hreíöar lók saman.
Þegar Jacobus Spijker íékk
skeytið, sem Charles Godard
sendi honum frá Irkutsk, án
þess að biðjast afsökunar eða
biðja gott fyrir sér, heldur
krafðist varahluta og vélamanns
til móts við sig með járnbraut-
inni, tók bílakóngurinn því vel.
Honum hafði komið á óvart,
miðað við fengna reynslu af
Godard, að Spijkerinn skyldi
yfirleitt leggja af stað frá Pek-
ing. Hann hafði verið sannfærð-
ur um, að Godard myndi selja
hann og halda áfram að vinna
fyrir sér með tungulipurðinni
einni saman í Asíu. En hann
reiknaði ekki með óbugandi vilja
Godards og því, að hann hafði
bitið í sig að aka Spijkernum
frá Peking til Parísar.
Og þegar fréttirnar tóku að
berast, fyrirgaf Spijker Godard
í hjarta sínu. Du Taillis jós í
hverri frétt lofi á Spijkerinn og
tók dæmi um ágæti hans, og þótt
Le Matin, sem ætlaðist til að
leiðangurinn yrði til að gera
franskan bílaiðnað víðfrægan,
strokaði mest af þessum fréttum
út, síaðist þó töluvert í gegn, nóg
til að vera hollenska fyrirtækinu
töluverð auglýsing. Jacobus á-
kvað því með sjálfum sér að
gera eins og Godard bað, því
mestu máli skifti að Spijkerinn
kæmist alla leið.
Hann hafði manninn á reiðum
höndum. Það var tvítugur ungl-
ingur, Bruno Stephan, sem var
að ljúka vélfræðiprófi við
tækniháskólann í Delft, hafði
unnið eitt ár í Spijkerverksmiðj-
unum og þekkti Spijkerinn eins
og handarbakið á sér. Þar að auki
hafði hann þrjú tungumál á valdi
sínu og bein í nefinu, svo Jacob-
us treysti honum til að sjá við
hinum slóttuga Godard.
Hann bauð Stephan að borða
með sér í Biblíuhótelinu í Amst-
erdam.
Umræðurnar snerust um eitt
og annað smávægilegt, þar til
bílakóngurinn sneri sér allt í
einu að vélfræðingnum unga og
spurði: — Hvernig myndi þér
líka að skreppa til Síberíu?
Bruno svaraði í sömu mynt —
að hann hélt: — Mér væri svo
sem sama, nú þegar þeir eru
farnir að senda glæpamennina
með lest. Ég hefði verið til lítils
að vaða fenin. En hvað hef ég
gert af mér?
En Spijker hélt sínu striki.
Hann sagði Bruno, hvernig mál-
in stóðu. Svo fór hann yfir pönt-
unarlistann frá Godard. — Ef
hann vill fá hærri gírkassa,
treysti ég dómgreind hans.
Lággíraði kassinn, sem við
settum í bilinn vann sitt verk
vel á eyðisöndum og fenjamýr-
um, en ef til vill höfum við hugs-
að of lítið um hina 12 þúsund
kílómetrana. Hann segist vera
:¥
22 VIKAN 52- tbl