Vikan


Vikan - 29.06.1967, Side 27

Vikan - 29.06.1967, Side 27
SAUDKINDÍN OG ER HREINASTA ÚRUAL HÉR Á LANOI Spjaieað við Sœmund Ólalfsson, ffOB*s8jói*a, um sveiiinai í borginni TEXTI: GYLFI GRÖNDAL Ú VAR TÍÐIN, að Reyk- víkingar fóru í skemmti- ferð upp á Skólavörðu- holt, þar sem Skólavarð- an gamla trónaði á hæðinni, eða upp að Tungu, sem nú er um- kringd háhýsum á alla vegu. Á þeim tíma þótti engum tiltöku- mál, þótt íbúar hefðu fé í miðj- um bænum, sjálfum sér til ánægju og til ábata fyrir afkom- una. En bærinn óx hröðum skref- um, eins og unglingur á gelgju- skeiði; breyttist í einni svipan úr smábæ í stórborg. Fyrr en varði var það orðin skoðun margra, að með öllu væri óhæft aö hafa sauðfé í miðri höfuðborg landsins. Það þótti ekki nógu fínt. Þá var tekið til við að þoka fjáreigendum út fyrir bæinn með rollur sínar. Síðan hafa þeir ver- ið meira og minna á eilífum hrakningum og varla haft roð við hinum öra vexti borgarinnar. Fjáreigendur streittust að sjálf- sögðu á móti þessu ráðslagi og mynduðu með sér samtök til þess að vernda rétt sinn og sauð- kindarinnar. Félagið heitir Fjár- eigendafélag Reykjavíkur og nú- verandi formaður þess er Ágúst Kristjánsson. Það hefur oft staðið í stríði við borgaryfirvöldin, en sú saga verður ekki rifjuð upp á þessum vettvangi. Flestir fjáreigendur Reykja- víkur eru nú saman komnir á einum stað: í hinni svokölluðu Fjárborg í Blesugróf. Þar hef- ur hver sinn skika með sínum fjárhúsum, sem flest eru raunar heldur óhrjáleg, enda ekki reist Þau eru eklii gömul lömbin atarna og l»ó orð- in hin sprækustu og far- in að bjóða hvort öðru byrginn. Á myndinni hér að ofan sér yfir fjárhóp Sæ- mundar, en hann hefur milli 60—70 fjár á skika sínum í Blesugrófinni. Hér til hægri sjáum við Sæmund ásamt hrútnum sínum. 26 VIKAN 26-tbl- O Þetta er táknræn mynd fyrir sveitina í borginni; sauðfé í forgrunni, en háhýsi gnæfa við himin í bakgrunni. Q „Þetta fæddist í morgun“ sagði Sæmund- ur og sýndi okkur nýfætt lamb, sem varla gat str.ðið á fótunum. E»essi tvö lömb lágu makindalega og sleiktu sólskirzð, — annað uppi á móður sinni, en O hitt við hlið hennar. til frambúðar. Fjáreigendur eiga enn að flytja í haust, að þessu sinni í Hólmsland, en þar fá þeir væntanlega að vera í friði með fé sitt í náinni framtíð. Við brugðum okkur upp í Blesugróf einn bjartan vordag fyrir skemmstu þegar sauðburð- ur stóð sem hæst og heimsóttum Sæmund Ólafsson, forstjóra. ' Það er býsna skemmtilegt að fara upp í þessa sveit borgarinn- ar, ef svo má að orði komast; sjá nýfædd lömb stíga sín fyrstu skref völtum fótum og horfa undrandi á háhýsin í fjarska; virða fyrir sér umhyggju móður- innar fyrir afkvæmi sínu; sjá fallega hyrndan hrút spranga montinn um túnið; hlusta einu sinni á kindajarm í staðinn fyr- ir umferðargný. Sæmundur hefur milli 60—70 fjár í skika sínum, og hann stóð eins og kóngur í ríki sinu í miðj- um fjórhópnum, þegar okkur bar að garði. Þegar hann hafði gengið með okkur um hjörðina og farið með okkur inn í fjárhúsin til þess að líta á lambið, sem fæddist í morgun, tylltum við okkur á steina og tókum tal saman í sólskininu: — Þetta er heldur grýtt jörð. — Já, landið hér í Blesugróf- inni er afar slæmt. Þessu var klöngrað hér upp af vanefnum 1960. Þegar okkur var úthlut- að þessu landi var það utan við borgina, en nú er það orðið inni í henni. Þess vegna eigum við að fara í haust, í þetta skiptið í Hólmsland. Það er hins vegar prýðilegt 200 hektara land. Þar á hver fjáreigandi að fá að rækta sinn blett, tvo hektara eða þar um bil, og reisa snotrar bygg- ingar hjá sér. Vonandi verður svolítið manndómsbragð að þessu þarna upp frá. Það má kannski segja, að það sé vitleysa frá sjónarmiði hins almenna borgara að vera að burðast við að hafa fé í sjálfri stórborginni. En það er mörg önnur vitleysan í henni vei’su. Það er til dæmis. engu síður vit- leysa að eyða öllum frístundum sínum í að drepa laxa- og sil- ungstitti. Það er auðvitað ekkert við því að segja. Maðurinn hefur í sér drápsnáttúruna. En það er allt önnur manntegund, sem fer út í fjárbúskap. Það eru menn Framhald á bls. 36. 26. tbl. VIKAN 27

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.