Vikan - 29.06.1967, Side 41
greiðum þúsund dollara fyrir slík
meðmæli. En þar sem við vitum
hvorki nafn eða heimilisfang
þeirrar persónu, verðum við að
biðja yður um að koma þessum
peningum til skila.
Það var þá þetta sem Judy átti
við, þegar hún sagði að Andrea
myndi bráðlega færa sér eitthvað
smóvegis.
— Þér getið sjálf unnið fyrir
þúsund dollurum, með slíkum
meðmælum, — ef tækifæri
býðst. En gerið það með gát. Já,
þá held ég að við höfum ekki
meira saman að sælda. Gangi
yður vel.
Maðurinn stóð upp, hló, og
hvarf á braut.
Nokkur augnablik sat hún og
hugsaði með sér, hvort þetta
væri ekki allt saman svik, hvort
hún væri ekki búin að láta hafa
út úr sér alla þessa peninga til
einskis. En svo hugsaði hún til
Judy og mannsins hennar, sáluga,
og varð strax rólegri.
Klukkan átta á miðvikudags-
kvöld kom Bart loksins heim.
Andrea heyrði að hann bakkaði
bílnum inn í bílskúrinn. Hún
flýtti sér niður, settist í sófann í
dagstofunni og beið þess að hann
kæmi inn um eldhúsdyrnar. Hann
setti ferðatöskuna frá sér á gólfið
og horfði á hana, með nokkuð ó-
ræðum svip.
— Sæl, elskan, sagði hann. —
Hvernig hefur þér liðið?
— Bærilega.
Hann gekk til hennar, stakk
hendinni í jakkavasann, og tók
samanvafinn bréfmiða upp úr
honum. Þegar hann hafði sléttað
úr miðanum, hélt hann honum
fyrir framan hana, svo hún gæti
lesið hvað á honum stóð. Þetta
var miðinn sem hún hafði skrif-
að nafn hans og heimilisfang á.
— Hva ... hvað? stamaði hún.
— Ég hefði aldrei getað fundið
það út, hver hefði áhuga á að
myrða mig, ef þú hefðir verið svo
skynsöm að vélrita þetta, sagði
hann. — En þú hefur svo sér-
kennilega rithönd, elskan.
— Hva ... hvar ...? stundi
hún upp.
— Fyrirtækið hefur það alltaf
fyrir fasta reglu að láta aldrei
starfsmennina vinna verk sitt í
heimaborg sinni, en húsbóndan-
um fannst það svo fyndið að fá
þetta nafn, að hann ákvað að
gera undantekningu í þetta sinn.
Augun ætluðu út úr höfðinu á
henni.
— Fyrirtækið, hvíslaði hún. —
Áttu við að þú...?
— Vex-kfræðingafyrirlæki
Andrews er bara nafnið. Tíu
þúsundin sem þú tókst út úr
bankanum, eru tekjur af sams-
konar samningum og þú ert ný-
búin að gera.
— Ö-óh-nei! hrópaði hún.
— Það er búið að gera samn-
ing, og við svíkjum aldrei við-
skiptavini okkar, vina mín. Þar
sem mér hefur verið falið þetta
verk, ætti ég eiginlega eftir
samningnum að fremja sjálfs-
morð, en ég reikna ekki með að
húsbóndinn ætlist til þess. En
þar sem samningur er samningur,
verðum við að töfra fram lík, á
einhvern hátt.
Hann stakk hendinni í vasann
og dró upp úr honum silkiháls-
klút. Hún starði á hann skelfingu
lostin, meðan hann í róiegheitum
batt hnút á báða enda klútsins.
— Þú skalt ekki halda að þetta
misheppnist, ég er alvanur. Pen-
ingaúttekt þín er ágætis skýring
á hvarfi þínu. Það er bersýnilegt
að þú hefur hlaupið að heiman,
sennilega með einhverjum karl-
manni. Það er nú þegar búið að
gera ráðstafanir til að fjarlægja
lík, og því verður komið að þeim
stað sem aldrei verður fundinn.
Meðan klúturinn hertist að
hálsi hennar, hugsaði Andrea,
viti sínu fjær af hræðslu, að ef
hún hefði vitað hvaða starf mað-
urinn hennar hafði í raun og
veru, hefði henni liklega aldrei
dottið í hug að láta myrða hann,
henni hefði þá ekki fundizt hann
svo leiðinlegur.
Hvikult mark
Framhald af bls. 15.
þegar í stað, að þetta var Tagg-
ert. Ég blés mæðinni og stakk
mér svo aftur. Þegar ég kom upp
á ný, var Taggert horfinn.
í þriðja sinn fann ég það, sem
ég var að leita að, óbrotna svarta
skífu, sem var næstum falin í
sandinum á botninum, Ég hélt
henni upp að bringunni og synti
baksund í land. Ég fór með plöt-
una inn í steypibaðið, þvoði
hana og þurrkaði af mestu natni,
eins og móðir ungbarn sitt.
Taggert sat á veröndinni fram-
an við baðhúsið, þegar ég kom
út úr búningsklefanum. Hann sat
í sólstól og snéri bakinu að dyr-
unum á skjólveggnum, sem lok-
uðu veröndinni á tvo vegu, en
baðhúsið á þann þriðja. Hann var
í flónelsbuxum og hvítri T-
skyrtu, mjög brúnn og ungur.
Svart hárið var vandlega burst-
að.
Hann brosti drengjalegu brosi,
sem náði ekki til augnanna: —
Sæll Harper. Var gaman að
synda?
II' '
v;.
; ■•'.;
':: ■;
ll:
LAND
VERÐ UM KR. 188,000,00 BENZIN
VERÐ UM KR. 208,000,00 DIESEL
er Land-Rover afgreiddur með eftirtöldum búnaði:
t
Aluminiumhús með hliðargluggum— Miðstöð með rúðublásara — Afturhurð
með varahjólafestingu — Aftursæti — Tvær rúðuþurrkur — Stefnuljós — Læs-
ing á hurðum — Innispegill — Útispegill — Sólskermar — Dráttarkrókur —
Gúmmí á petulum — Dráttaraugu að framan — Kílómetra hraðamælir með
vegmæli — Smurþrýstimælir — Vatnshitamælir — 750x16 hjólbarðar — H. D.
afturfjaðrir og sverari höggdeyfar aftan og framan — Eftirlit einu sinni
eftir 1500 km. — Hliðarstig fyrir farþcga — Stýrisdempari. —
Land-Rover er nú fullklæddur að innan —
í toppi, hliðum, hurðum og gólfi. —
Endurbætt sæti; bílstjóra-sæti og hægra fram-
sæti stillanleg.
Endurbætt mælaborð með læsanlegu hanzka-
hólfi.
■jf Ný matthúðuð vatnskassahlíf.
'jkr Krómaðir hjólkoppar.
Krómaðir fjaðrandi útispeglar.
Ný gerð af loki á vélarhúsi.
---------------AUK ÞESS---------------------------
ENDURBÆTTUR
LÁHb^
^ROVER
BENZÍN EÐA DIESEL
28. tbi. VIKAN 41