Vikan - 29.06.1967, Qupperneq 45
f
huga fyrir staðnum, losaði ég
mig við plöturnar .hennar. Þú
veizt, hve óútreiknanleg lögregl-
an getur verið, út af ótrúlegustu
hlutum.
— Reyndu ekki að slá ryki £
augun á mér, á sama hátt og þú
hefur slegið ryki í augun á sjálf-
um þér. — Saklaus maður hefði
aldrei látið sér detta í hug að
kasta þessum plötum. Eru þessar
plötur ekki í eigu þúsunda
manna, hér og þar um landið?
— Það er einmitt það, sem ég
meina. Það er ekkert glæpsam-
legt við að eiga þær.
— En þú áleizt það samt, Tagg-
ert. Þú hafðir enga ástæðu til
að álíta þær sönnunargagn á
móti þér, ef þú værir ekki flækt-
ur í þetta ásamt Betty Fraley.
Og það vill svo til að þú kastað-
ir þeim í sjóinn nokkuð mörg-
um klukkustundum áður en þú
heyrðir símtalið mitt — áður
en Betty var nokkurn tíma nefnd
í sambandi við þetta morð.
—Ef til vill, sagði hann. —
En þú átt erfitt með að sanna
nokkuð á mig út af þessum plöt-
7-1
um.
— Ég ætla ekki að reyna það.
Þær bentu mér á þig og þjónuðu
þannig sínum tilgangi. Svo við
skulum sleppa þessu með plöt-
urnar og tala um það, sem mik-
ilvægara er. Ég settist £ stól
gengt honum á veröndinni.
— Hvað langar þig að tala um?
Hann hafði enn fullkomna stjórn
á sjálfum sér. Drengjalegt brosið
var eðlilegt og röddin óþving-
uð. Aðeins vöðvamir komu upp
um hann. Þeir voru herptir um
axlirnar og titruðu á lærunum.
— Mannrán, sagði ég. — Við
skulum geyma morðið þangað
til seinna. í þessu ríki er mann-
rán hvort sem er nokkumveginn
jafn alvarlegur hlutur. Ég skal
segja þér mína útgáfu á mann-
ráninu, og svo hlusta ég á þína.
Ég veit um fjölda manns, sem
mun hlusta á þína með ákefð.
— Það var slæmt. Ég hef enga
útgáfu.
— Það hef ég. Ég hefði komið
auga á hana fyrr, ef ekki hefði
viljað svo ólíklega til að mér
geðjaðist vel að þér. Þú hefur
haft fleiri tækifæri en nokkur
annar og meiri ástæður. Þú varst
illur út í Sampson, vegna þess
hvemig hann meðhöndlaði þig.
bú öfundaðir hann af peningun-
um, sem hann átti. Þú áttir ekki
mikið sjálfur......
— Á ekki enn, sagði hann.
— Þú wttir að vera sæmilega
stæður þessa stundina. Helming-
urinn af hundrað þúsund dollur-
unum eru fimmtiu þúsund. Það er
allnokkuð.
Hann baðaði glaðlega út hönd-
unum. — Ber ég þá á mér?
— Þú ert ekki svo vitlaus,
sagði ég. — En þú ert nógu vit-
laus. Þú hefur látið snúa á þig,
Taggert. Borgarrotturnar tróðu
sér innundir hjá þér og notuðu
þig. Þú færð sennilega aldrei að
sjá þinn helming af hundrað þús-
und dollurunum.
— Þú lofaðir að segja mér
sögu, sagði hann léttilega. Það
yrði erfitt að brjóta hann niður.
Ég sýndi honum bezta spilið
mitt.
Eddie Lassiter hringdi til mín
kvöldið áður en þú flaugst til
Las Vegas.
— Segðu mér ekki, að þú sért
miðill, Harper. Þú sagðir að mað-
urinn væri dauður. Það vottaði
fyrir herkjum umhverfis munn-
inn á honum.
— Ég er nógu mikill miðill til
að geta sagt þér hvað þú sagðir
við Eddie. Þú sagðir honum, að
þú hringdir í hann frá Burbank-
klukkan þrjú næsta dag. Þú sagð-
ir honum að taka á leigu svart-
an fólksbíl og bíða eftir því, að
þú hringdir í hann frú Burbank-
flugvelli. Þegar Sampson hringdi
til Valerio og bað um að bíllinn
yrði sendur, afturkallaðir þú far-
ið og sendir eftir Eddie í stað-
inn. Símastúlkan í Valerio hélt
að það væri Sampson, þegar sím-
talið var afturkallað. Þú hefur
þjálfað þig sæmilega í að herma
eftir honum.
— Áfram, sagði hann. — Ég
hef alltaf gaman af hugmynda-
flugi.
— Þegar Eddie kom til flug-
vallarins í hílaleigubílnum, steig
Sampson þegar í stað upp í, eins
og ekkert væri sjálfsagðara. Hann
hafði enga ástæðu til að gruna
eitt eða neitt. Þú gættir þess líka
að hafa hann svo drukkinn, að
hann tæki ekki eftir að skipt
hafði verið um ökumann — svo
drukkinn, að jafnvel smásnáðar
á borð við Eddie gætu ráðið við
hann, þegar þeir kæmu á tiltek-
inn stað. Hvað notaði Eddie á
hann, Taggert? Klóróform?
— Þú ert að segja söguna, sagði
hann. — Er hugmyndaflugið á
þrotum?
— Við eigum báðir þessa sögu.
Afturkallaða símtalið var mikil-
vægt, Taggert. Það var í fyrsta
lagi það, sem tengdi þig við
þessa sögu. Enginn annar gat
vitað, að Sampson ætlaði að
hringja til Valerio. Enginn ann-
ar vissi, að Sampson var að koma
frá Nevada. Enginn annar hafði
aðstöðu til að segja Eddie frá
því kvöldið áður. Enginn annar
gat hafa skipulagt allt þetta og
hagað því svo til, að allt féll sam-
an við áætlaðan tíma.
— Ég hef aldrei neitað því, að
ég hafi verið á flugvellinum á-
samt Sampson. Það voru nokkur
hundruð manns þar um það leyti.
Þú dregur óskaályktanir af tilvilj-
unum, eins og allar aðrar lögg-
ur. Og þetta með plöturnar er
ekki einu sinni tilviljun. Þú hef-
ur enga sönnun á Betty Fraley
og þú hefur ekki sannað nokkurt
samband milli hennar og mín.
Hundruð plötusafnara eiga plöt-
urnar hennar.
Framhald í næsta blaði.
Heimsfræg japönsk vélhjól með beinni olíuinnspýtingu, svo
ekki þarf_að blanda olíu og bensín fyrirfram.
Eftirtaldar gerðir eru nú fóaniegar:
YAMAHA 250 TWIN SPORT
YAMAHA 180 TWIN
YAMAHA 80 SPORT
Japanska BifreiOasalan hf.
ÁRMÚLA 7, REYKJAVÍK. SÍMAR: 34470 og 82940.
26. tbi. VIKAN 45