Vikan


Vikan - 27.07.1967, Page 41

Vikan - 27.07.1967, Page 41
Paö er sama d hver sidd kjólsins er... 30-50Den DRHALLIIR SIGURJÓNSSON simi 18450 Pingholtsstr. 11. hrópaði hún. — Hann hefur ekki leyfi til að gera slíkt! Hann leit vandræðalega á hana. Þetta var í fyrsta sinn sem hún stóð andspænis alvöru lífsins. — Við getum líklega ekkert gert, sagði hún hikandi, og Rick strauk hár hennar blíðlega. Síminn hringdi, og hún greip tækifærið til að losna. — Ég skal svara. Hún hafði reynt að skilja þetta, sem henni fannst óskiljanlegt — ef til vill til þess að reyna að vera jafnoki hans. — Það er til þín, kallaði hún. Hann tók heyrnartækið. — Halló, sagði hann. — Halló, er þetta Rick Col- man? Ég sá að Helen var með börnin í bænum, svo ég hugsaði að þú værir einn heima. Hver svaraði í símann? — Anna, eldri dóttir mín, svar- aði hann. —Oh, sagði konuröddin, — geturðu talað við mig? — Fyrirgefið, sagði Rick, — hver er þetta, með leyfi? — Oh, sagði konan, hlæjandi og það var einhver gælutónn í röddinni. — Það getur ekki verið að þú sér búinn að gleyma mér! Ég heiti Gloria Sanders. Þú varzt svo forvitinn um mína hagi í síð- Ustu viku, í siglingaklubbnum. — Fyrirgefðu, sagði hann. — Jú, ég man eftir þér, þú býrð hjá Nichols hjónunum? — Svo þú mundir þá eftir mér! Hann þagði, og hún hélt áfram: — Ég hringdi, vegna þess að þú lofaðir að hringja til mín. Og svo ertu ekkert glaður yfir því að ég ákvað að bíða ekki lengur eftir þeirri upphring- ingu. Á ég kannski að hringja seinna? bætti hún við, ekki eins örugg, þegar Rick sagði ekki neitt. — Nei, sagði hann svo. Hann heyrði að Anna sagði: Ertu bráðum búinn að tala, pabbi? Pabbi hennar Terry er að fara. Hann lagði höndina yfir tal- tækið og sagði: — Ég kem rétt strax, Anna. Við konuna sagði hann: — Hringdu ekki aftur til mín. Og ég hringi ekki til þín. Láttu mig í friði. — Jæja, þannig syngur í þér núna. Þú vilt þá ekki leika með lengur. Hefur elskhuginn fengið samvizkubit, eða hvað? Þau lögðu á samtímis. Rick leit út um gluggann, ein- mitt þegar Joel var að bera tvær ferðatöskur út í bílinn. Svo steig hann upp í bílinn og ók niður veginn. — Terry á nú samt sem áður pabba, sagði Anna og leit fast á Rick. -— Fólk sem skilur hittir stundum börnin sín. En það verð- ur samt aldrei eins, verður það, pabbi? — Nei, Anna, það verður aldrei eins. Ég verða að segja henni sann- leikann, hugsaði hann. Ég má aldrei svíkja hana. Flauta strandvarðarins skar sig í gegnum sjávarniðinn. Hann stóð við fjöruborðið og veifaði sterk- legum handleggjunum. Úti við strauminn sem var hættulegast- ur var, sázt hópur sundfólks, sem hafði orðið viðskila við hina. Þau hlýddu kallinu, nokkuð treglega, og syntu inn á hættu- laust svæði.... Angelique Framhald af bls. 20. Svo yfirkominn af létti, sem Bardagne var, og töfraður af öllu því, sem þessi einstaka manneskja opinberaði honum, gleymdi hann sér al- veg af fögnuði og þrá. Hann þreif um mitti Angelique og lagði varirnar á mjúkan háls hennar, sem hann hafði raunar aldrei meðan á samtali þeirra stóð, getað hætt að horfa á og hugsa um. Angelque stökk upp, eins og hún hefði brennt sig. Hún reif sig i>vo snögglega úr faðmlaginu, að vesalings maðurinn leit með skelfingu á hana. Hann stamaði: — Þykir yður ég raunverulega svona andstyggilegur? Hann sveið í augun og varirnar skulfu. Þótt snertingin hefði ekki varað lengi, hafði hún þó staðfest vonir hans. Hann hafði aldrei kynnzt svona heillandi konu. — Andskotakornið, hugsaði hann, — ætlar hún að reynast jafn tepruleg og mótmælendurnir? Fjárans óheppni! ÞRlTUGASTI OG SJÖTTI KAFLI. Angelique hallaði sér upp að borðinu og velti þvi fyrir sér, hvað hún ætti nú til bragðs að taka. Svo sannarlega var hann ekki óaðlaðandi. Hann hafði vissan þokka. Hann leit vel út, var síður en svo grófur i framkomu, og hann var ekki reynslulaus, þegar kvenfólk var annars vegar. Hver veit, nema einu sinni — og þetta einu sinni virtist nú svo óralangt að baki — hefði hún látið freistast? Hún gat ekki gleymt því, að hún var venjuleg Þjónustustúlka, og hann var fulltrúi konungs- ins sjálfs í La Rochelle, sem þýddi að hann var valdamesti maður borg- arinnar. Sem betur fór var hann ekki reiður. Enn sem komið var hafði hann ekki tekið viðbrögð Angelique sem móðgun, heldur sem beizk örlög. Hún fann, að það þurfti að hugga hann. 3°. tbi. VIKAN 41

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.