Vikan - 21.10.1971, Blaðsíða 8
MESTA
UNDRABARN
í HEIMI
Kim Ung-yong er aðeins
átta ára og liann hefur
hæstu greindarvísitölu sem
mæld hefur verið.
Hann talar reiprennandi
sex tungumál og veit
meira um stærðfræði en
nokkur prófessor. En
hvernig fer fyrir þessu
undraharni, litlum,
einöngruðum dreng, sem
aldrei hefur átt jafnaldra
leikfélaga?
Þau eru fædd á sömu klukku
stund.
Kim Ung-yong er frá Se-
ul í Suður-Kóreu og hef-
ur verið heimsfrægur í sjö
ár. Það lítur líka út fyrir
að liann verði það áfram,
svo lengi sem hann lifir.
Hann var farinn að ganga
þegar liann var níu mán-
aða, en þá þekkti hann kín-
verska myndaletrið og var
búinn að lesa sina fyrstu
hók.
Þegar hann var ársgam-
all kom hann fram í sjón-
varpsþætti og gat sér frægð
fyrir að tala reiprennandi
ensku, skrifa 1000 merki í
kínversku letri og svara
einföldum stærðfræði-
spurningum. Að sjálfsögðu
kunni hann lika móðurmál
sitt, tungu Kóreumanna.
Þegar hann var þriggja
ára rak hann marga pró-
fessora á gat í stæi-ðfræði,
efnafræði, bókmenntasögu
og heimspeki.
Sex ára gamall teiknaði
hann geimfar, sem átti að
ganga fyrir sólarorku, sér-
staklega hugvitssamt, eft-
ir þvi sem bandariskir sér-
fræðingar sögðu.
Síðastliðið vor lauk liann
prófi frá Kongukháskólan-
um í Seul, og auðvitað með
hæstu einlcunn. Átla ára
prófessor . . .
Og nú fyrir nokkru hóf
hann nám við háskólann i
Colorado í Bandarikjun-
um. Námsgreinar hans eru
hagnýt aflfræði, afstæðis-
kenning og klassisk lieim-
speki.
Lifandi gatavél.
Hinn kornungi Kim (það
er revndar eftirnafnið)
Ung-yong er að öllum lík-
indum eitt mesta undra-
barn sem um getur. Fvrir
fjórum árum var greind
hans mæld og reyndist vera
210 stig.
Kentaro Yano, prófessor
i Tokyo, sem mældi greind
hans, segir:
— Mér fannst ég svo fá-
kunnandi að ég roðnaði,
þegar ég talaði við þetta
fjögurra ára barn. Hann
er lifandi gatavél.
Þeir einu sem virðast
koma næst greindargráðu
drengsins, eru systkin hans
þrjú. Chang-yong, sem er
5 ára, fór líka til Colorado,
þar sem liann á að ljúka
stúdentsprófi í vor og fara
siðan í háskóla. Ye-yon
systir han:, er fjögurra ára
og liún talar ensku, þýzku,
frönsku og liún les stærð-
fræði. Sú yngsta, Myong-
yong, sem er rétt eins árs,
er að læra kínverskt mynd-
letur og yrkir Ijóð.
Faðir barnanna, Kim Su-
son og móðir þeirra, Yu
Myong-hvum, eru bæði
prófessorar. Hún segir:
— Aðalvandamálið er
að hörnin eru of greind til
]>ess að við þorum að ala
þau upp sjálf. Við getum
það hreinlega ekki . . .
Barnanna vegna hafa
foreldrarnir orðið að
breyta lífsvenjum sínum.
Þau eru á stöðugum flótta,
til að verja börnin fyrir
ágangi forvitinna, sérstak-
lega hlaðamanna. Síðan sá
elzti fæddist hafa þau skipt
17 sinnum um íhúð!
Við þorum eklci að
ala Ung-yong upp sjálf,
segja foreldrarnir. — Þess
vegna komum við drengn-
um fyrir hjá ættingjum í
Colorado. Þar umgengst
liann aðeins prófessora og
annað fullorðið fólk. Hann
þekkir enga jafnaldra og
kann ekki að leika sér.
8 VIKAN 42. TBL.