Vikan


Vikan - 19.04.1972, Blaðsíða 3

Vikan - 19.04.1972, Blaðsíða 3
16. tölublað - 19. apríl 1972 - 34. árgangur Blaðauki um Halldór Laxness Smásaga eftir Arnulf Överland Blaðaukinn af tilefni afmælis Nóbelsskáldsins okkar, Halldórs Laxness, verður að sjálfsögðu sá efnisþáttur þessa tölu- blaðs sem mesta athygli vekur. Er hér um að ræða myndir frá ýmsum at- burðum og tímaskeiðum í lífi skáldsins. Arnulf Överland er með- al kunnustu rithöfunda Norðmanna á síðustu ára- tugum, harðskeyttur í rit- deilum og meinlegur háðfugl. Hann var um hrið kommúnisti, en gerðist síðar andstæðing- ur þeirra. Smásaga eftir Överland er á bls. 12. Ástir Alberts og Viktoríu drottningar Viktoría drottning unni Albert sínum með slíkum ærslum, að mörgum þótti ganga langt út fyrir það eðlilega. Þannig er haft fyrir satt að hún hafi komið í veg fyrir að Bretar hjálpuðu Dönum, þegar þeir börðust við Þjóðverja út af Slésvík— Holtsetalandi. Sjá bls. 14. KÆRI LESANDI! Við fögnum sumri að þessu sinni með myndarlegum blað- auka um Halldór Laxness, rit- höfund, sem verður sjötugur tuttugasta og þriðja þ. m. Senni- lega nýtur enginn núlifandi fs- lendingur meiri virðingar meðal þjóðar sinnar en hann. En ekki var því alltaf á þann veg farið. Sú var tíðin að margir sveita- menn lögðu á hann fæð ef ekki beinlínis hatur vegna Sjálfstæðs fólks, þar eð margt í þeirri bók var kallað niðrandi fyrir íslenzka bændamenningu. Og borgarastétt- in og pótitískir liðsoddar hennar hötuðu hann jafnvel enn meir sem vondan kommúnista og stór- hættulégdn áróðursmann Moskvu- valdsins. En nú er önnur öldin: Laxness er fyrir löngu búinn að fá Nó- belsverðlaun og engum dettur í hug að kalla hann kommúnista. Og nú fellur öll þjóðin fram og tilbiður hann, og enginn ákaf- legar en þeir, sem mestir voru andskotar hans áður. — En hvað sem mönnum finnst um pólitísk- ar skoðanir Laxness fyrr og nú, þá efast varla nokkur bókmennta- unnandi — að minnsta kosti ekki á Istandi og öðrum Norðurlönd- um — um að hann verðskuldar fyllilega þann hróður, sem hann hefnr hlotið sem rithöfundur. Bækur hans eru löngu orðnar þorra þeirra tslendinga, sem bækur lesa á annað borð, engu síður tamar en íslendingasögur. EFNISYFIRLIT GREINAR BLS. Tukthús og ráðhús undir sama þaki, frásögn eftir Oscar Clausen 8 Sjálfsmorð eða nauðvörn 10 Ástir Alberts og Viktoriu drottningar 14 Þegar Englendingurinn fékk sér grútarbað, frásögn eftir Kristján Imsland 16 SÖGUR Ber er hver að baki, smásaga eftir Arnulf Överland, Helgi Sæmundsson þýddi 12 Lykillinn, framhaldssaga, annar hluti 20 FASTIR ÞÆTTIR Póstur 4 Síðan siðast 6 Mig dreymdi 7 í fullri alvöru 7 Heyra má 18 Myndasögur 36, 38, 42 Stjörnuspá 31 Krossgáta 48 ÝMISLEGT Blaðauki í tilefni af sjötugsafmæli Halldórs Laxness. Við birtum myndir af lífi hans og starfi á sextán síðum, sem prentaðar eru á myndapappír. Langflestar þessara mynda hafa aldrei birzt áður. Blaðaukanum er kom- ið þannig fyrir, að handhægt er að kippa honum út úr blaðinu og geyma hann sér- staklega. 23 FORSÍÐAN Þessa skemmtilegu mynd af Halldóri Laxness á heimili sínu tók Mats Wibe Lund. VIKAN Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Gylfi Gröndal. BlaSamenn: Dagur Þorleifsson, Matthildur Edwald og Ómar Valdimarsson. Útlitsteikning: Sigurþór Jakobsson. Auglýsingastjórar: SigríSur Þorvaldsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir. — Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33. Simar: 35320 — 35323. Pósthólf 533. Verð í lausa- sölu kr. 60,00. Áskriftarverð er 575 kr. fyrir 13 tölu- blöð ársfjórðungslega eða 1100 kr. fyrir 26 blöð misserislega. Áskriftargjaldið greiðist fyrirfram. Gjalddagar eru: nóvember, febrúar, maí og ágúst. 16. TBL. VIKAN 3
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.