Vikan - 13.12.1973, Blaðsíða 39
E 1 G U M V 1 Ð
ÓSÝNILEGAN TVIFARA
Framhald af bls. 7
urðu með vissu millibili. A
einstaka stöðum komu fram
daufir ljósblettir.
Allt virtist þetta fylgja
ákveðnum lögmálum, en
hverjum?
Gerð var tilraun til þess að
komast að þvi. Klipptur var burtu
hluti laufblaðs. Afleiðingin varð
ótrúleg. Myndirnar af laufblaðinu
fyrir og eftir „aðgerðina” voru
nær þvi alveg eins. A myndinni,
sem tekin var eftir að klippt hafði
verið af blaðinu, sást þó lina eftir
sárið — en geislanirnar af þeim
hluta blaðsins, sem klipptur hafði
verið burtu, voru enn fyrir hendi
aðeins örlitið daufari en áður.
Það var eins og draugamynd.
Ljósmyndavélin hafði tekið mynd
af þvi, sem ekki var til staðar.
Geilsanirnar af blaðinu sýndu að
blaðið væri óskert.
Það lá beint við að velta þvi
fyrir sér, hvað hefði gerzt, hefði
þetta verið dýr eða maður. Ef til
dæmis einhver hefði misst
fingur og tekin væri mynd af
höndinni á honum, kæmi þá
horfni fingurinn fram á
myndinni?
— Já, segja rásnesku visinda-
mennirnir, sem hafa haldið rann-
sóknum Kirlians áfram. — Já,
hann kæmi fram. Við höfum
sannað það.
Ósýnilegur tvifari
Það er velþekkt staðreynd, að
fólk hefur lengi ef.tir aðgerð
fundið fyrir afnumdum fæti eða
handlegg. Læknar hafa útskýrt
það sem hrein „sálræn áhrif
vonarinnar um að halda
iiminum’. eða með öðrum
orðum, ofskynjun. Taugakerfið
hefur ekki náð að jai'na sig eftir
aðgerðina og heldur áfram að
senda taugaboð frá likams-
hlutanum, sem numinn hefur
verið af, eins og hann hefði aldrei
verið fjarlægður.
Nú virðist eins og til sé önnur
skýring Kannski heldur
afnuminn likamshlutinn áfram aö
vera i orkuformi Sinu. ósynilegur
mannlegum augum, en sýnilegur
með ljósmyndatækni Kirlians?
Kannski er þrátt fyrir allt
eitthvað til i þvi, sem sagt hefur
verið um árur.
Hópur rússneskra lækna hafa
sett fram nýja kenningu. sem sé
þá, að allar lifandi verur menn
dýr og jurtir — séu ekki einungis
til i einum likama, sem gerður er
úr auðrannsakanlegum eindum.
heldur auk hans hafi þær „annan
likama” — nokkurs konar tvifara
af óþekktri orku, en þó næsta
iikan og trúlega eins og efnis-
likaminn. Rússnesku læknarnir
kölluðu fyrirbærið „liffræðilega
árulikamann”, og fleiri uppgötv-
anir bættust við.
Myndir voru teknar og bornar
saman af laufblöðum á mis-
munandi stigum, nýjum, gömlum
visnum og dauðum blöðum. Nýju
laufblöðin glitruðu alltaf af f jölda
geislana og minntu á upplýstar
borgir, eins og þær eru að sjá úr
lofti á nóttunni. Siðan fóru þau að
dofna — það var eins og dregið
væri fyrir alla glugga i borginni.
Skuggar fóru að sjást viða, þar
sem áður hafði verið eitt ljóshaf.
Lifandi laufblaðið var að dauða
komið. Og dauða blaðið var lif-
laust, dimmt.
Fylgzt var mjög náið með
þróuninni og i ljós kom að
örsmáir lifandi geislarnir
skildust frá efninu, leystust upp
og hurfu. Um leið og efnis-
Hkaminn dó, hvarf einnig tvifari
hans. Orkulikaminn dó, hvarf eða
fluttist annað, óvist hvert.
Enn ein, merkilcg uppgötvun
Dag einn mistókust allar mynd-
irnar hjá Kirlianhjónunum. Ljós-
myndirnar af höndum Kirlians
urðu mattar og óskýrar og þaktar
dökkum flekkjum. Hann lét konu
sina reyna i staðinn og þá urðu
allar myndirnar skýrar og greini
legar. Úm kvöldið fór Kirlian að
kenna lasleika. Gamall sjúk-
dómur, sem hann hafði gengið
með, var að taka sig upp aftur.
En meðan hann lá veikur, kom
honum i hug það.sem dreif hann á
fætur aftur. Höfðu myndirnar
misheppnazt vegna þess, að sjúk-
dómurinn hafði haft áhrif á gcils-
anirnar út frá honum? Hann tók
aftur myndir af höndum sinum og
höndum Velentinu á eftir. 1 ljós
kom, að tækin voru i fullkomnu
lagi, svo að ástandi hans sjálfs
hlaut að vera um að kenna, að
myndirnar misheppnuðust.
Hann hafði gert enn eina
merkilega uppgötvun. Þegar
hann var kominn aftur i rúmið,
áleit hann að sjá mætti fyrir sjúk-
dóma i árunni. Hans eigin lasleiki
hafði komiö fram á myndunum,
löngu áður en hann hafði sjálfur
kennt sér nokkurs meins.
Einnig á þessu sviði höfðu
skyggnir og ólreskir menn haft
Framhald á bls. 36
Dual fjölskyldan
Skipholti 19 S: 23800
Klappastig 26 S: 19800
Akureyri S: 21630
I)ual-fjölskyldan getur verið
ba'ði litil og stór. Það er hægt að
bvrja með aðeins eitt einfall
la'ki, en fjölga þeim siðan smátt
og smátt, þar til takmarkinu er
náð: Kullkomið stereo-sett. sem
liel'ur beztu fáanlegu bljómgæði
og sten/t mcstu kröl'ur nútima-
fólks.