Vikan - 21.03.1974, Side 4
Ertu að byggja?
’Zföílfflmw.
Viltu breyta?
Þarftu aö bæta?
Iilaver
GRENSASVEG118,22,24
SÍMAR: 32266-30280-30480
Dósturinn
Atta spurníngar af
Snæfellsnesi.
Kæra Vika!
Komdu sæl' og blessuð og ég
þakka þér fyrir allar stundirnar,
sem þú hefur stytt mér.
Ég vona, að „Herra Póstur”
birti bréf mitt, úr þvi að ég fór að
ómaka mig við að skrifa þaö. Ég
vona, að „Herra Póstur” geti
svarað spurningum minum. Ég
skrifa ekkert um kynferðisvanda-
mál núna. Ef „Pósturinn” hefur
verið i Vikunni frá þvi að fyrsta
Vikan var gefin út, þá hlýtur hann
að vera farinn að nálgast sextugt
og býst ég þvi við, að Pósturinn sé
orðinn of gamall til að skemmta
sér við að leysa kynferðisvanda-
mál.
Þá er komið að spurningunum:
1. Er lagið „Ég er kokkur á
kútter frá Sandi” um mann frá
Hellissandi?
2. Hvað þýðir orðiö Eðvarð?
3. Hvað fær Pósturinn mörg
bréf á mánuði?
4. Leika kaffibrúsakarlarnir i
auglýsingunum um kóróna-fötin i
sjónvarpinu?
5. Hvað kostaði fyrsta Vikan,
sem var gefin út og er hægt að fá
hana keypta?
6. Hvað er Vikan gömul?
7 Er þátturinn „Pennavinir”
hættur?
8. Hvort á að skrifa f eða v i
orðinu æv(f)intýr? Jæja, þá eru
spurningarnar ekki fleiri og ég
vona, að „Herra Alvitur”
(Pósturinn) geti svarað þeim.
Mér finnst Vikan hætti að vera
meö frimeckjaþætti eða eitthvað i
þeim dúr. Kannski leyfir plássið
það ekki, má bara ekki sleppa
einhverju af ástarsögunum?
Einnig mætti þetta ágæta blað
reka meiri áróöur gegn sigarettu-
reykingum. Að ööru leyti er
blaðiö stórfint, þó að auðvitað séu
ekki allir ánægðir meö það.
Vill Pósturinn vera svo vin-
gjarnlegur að bera ritstjóranum
kveðju mina með þökkum fyrir
þetta ágæta blað.
Svo vona ég, að Pósturinn sé i
góðu skapi, þegar hann les þetta
bréf, en snúi samt ekki út úr.
Með kærri kveðju.
Doktor Spóalöpp.
P.S. Hvað lestu úr skriftinni?
(Ég má ekki vera að þvi að vanda
mig). ■ >
Pósturinn þakkar kveöjurnar
og kemur þeim áleiöis. Pósturinn
er ckki nærri oröinn sextugur,
reyndar tæpast kominn á miöjan
aldur, þvi aö fyrsti Pósturinn
birtist i Vikunni 17. júli 1941, og
honum finnst hann ekki vaxinn
upp úr þvi aö leysa kynferöis-
vandamál, á meöan einhver
leitar tii hans meö slik mál. Ekki
eru aliir eins vel settir og þiö Snæ-
lellingar, sem búiö I grennd viö
þennan dulmagnaöa jökul, sem
leysir öll slik vandamál, áöur en
þau verða til.ef marka má full-
yröingar Þórðar Iialldórssonar á
Ilagverðará. En nú er vist
kominn timi til að snúa sér aö
þessum númeruöu spurningum,
sem Póstinum er fariö aö leiöast.
1. Vel má vera, að texti þessa
ágæta lags, sé ortur um ákveöinn
inann á Hellissandi, en Pósturinn
treystir sér ekki til að fullyröa
neitt um það.
2. Eövarð er sá, sem gætir fjár-
muna.
3. Þaö myndi æra óstöðugan aö
liafa tölu á þeim.
4. Já.
5. 6. Fyrsta Vikan kom út 17,
nóvember 1938. Þá kostaði ein-
takið fjörutiu aura, en áskriftar.
gjald á mánuði var ein króna og
fimmtiu aurar, en fyrsta blaðiö cr
ckki til sölu.
7. Alltaf safnast fyrir álitlegur
bunki af pennavinum og reynt er
að skjóta þeim inn i blaðið, þegar
færi gefst.
8. Ilvort tveggja er rétt.
Skriftin gæti verið fallcg, ef þú
vandaðir þig.
Að lifa í glaumi og gleði.
Elsku Póstur!
Ég veit, að þú getur hjálpað
mér. Þannig er mál með vexti, að
ég á mjög stranga foreldra. Sjálf
er ég fimmtán ára og fæ að vera
úti á kvöldin til klukkan tiu, en
það finnst mér vera allt of stuttur
timi. Ef ég kem seinna heim, er
ég sett i straff I viku.
Þegar ég kem heim úr skól-
anum, verð ég alltaf að hanga
inni og annaðhvort að læra eöa
hjálpa til við húsverkin. í siðustu
viku var ég á balli og var með
strák, en ég átti að koma heim
strax og ballið væri búið og ég
ætlaði að gera það, en strákurinn
bað mig um aö labba með sér
pinustund og ég gerði það. Þegar
ég kom svo heim klukkan þrjú,
var mamma vakandi og sagði:
„Jæja, svona er að leyfa þér aö
fara út á ball. Hér eftir færðu ekki
að fara á ball i vetur.” Og ég er
viss um, að hún stendur við það.
Þetta er það, sem ég fæ fyrir að
hjálpa henni við húsverkin.
Elsku Póstur! Hvað á ég að
gera, þvi að mig langar svo til að
lifa i glaumi og gleði?
Hvað lest þú úr skriftinni og
hvernig er hún? Hvernig eiga
vatnsberinn og nautið saman?
Ein i vandræðum.
Fyrst af öllu þarftu að temja
þérað gcra mun á réttu og röngu.
Pósturinn trúir þvi ekki, aö balliö
hafi átt aö vera búiö klukkan tiu,
en þá segist þú alltaf eiga að vera
komin heim. Þar af leiöandi hefur
þér veriö veitt leyfi til aö vera
lengtLr úti og þú lofaöir aö koma
heim strax eftir balliö, en stóöst
4 VIKAN 12. TBL.