Vikan


Vikan - 18.07.1974, Blaðsíða 4

Vikan - 18.07.1974, Blaðsíða 4
H7 Foreldrar verða sjálfir að læra að leika sér á nýjan leik. Leikur er börnum lifsnauðsyri. Hvemig leikföng og hversu mörg? Skemmtilegir leikir, sem engra leik- fanga er þörf við. Eiga stúlkur að leika sér öðru visi en drengir? Hvað geta foreldrar gert, ef bamið þeirra á í erfiðleikum með að leika sér? Flestir foreldrar kannast vel vi& atvik eins og þetta: Barnið kemur inn i stofuna með vonarglampa i augum og leikfang undir hendinni og þá fara eftir- farandi samræður fram: „Leiktu við mig!” „Ég hef ekki tima til þess.” „Bara smástund, gerðu það!” „Ég þarf áð lesa þetta.” (Eða: Ég þarf að sauma þetta. Eða: Ég ætla að horfa á þennan þátt. Eða: Ég þarf að hvila mig. Eða: Ég er með höfuðverk. Eða....) „Bara smástund! Geröu það! Gerðu það!” Og svo framvegis — og svo framvegis, þangað til loks er látið undan þrábeiðni barnsins og leik- ið með þvi að dúkkulisum, plast- kubbum eða einhverju öðru með ólund og án allrar ánægju. Og þá fer slæm samvizka gagnvart barninu að gera vart við sig. Allir vita, að réttir leikir eru óendan- lega mikilvægir börnum — en af hverju* ætli fullorðnum gangi svona illa að breyta samkvæmt þessari kenningu? Fullorðnir eru oft búnir að gleyma þvi, hvernig á að leika sér. Það er alltaf svo margt að snúast, við húsverkin, við vinn- una og fristundirnar eru svo fáar. Fullorðnir láta einfaldlega ekki eftir sér að leika sér og smám saman gleymist þeim til 'fulls, hvernig á að fara að þvi. Leikur á að veita ánægju og gleði. Og vitaskuld eiga allir þátt- takendur i leiknum aö hafa gam- an af honum — bæði fullorðnir og börn. Þegar faðir eða móðir leika sér viö barnið með hálfum huga, er allsendis ómögulegt, að leikur- inn verði þeim til ánægju. ÞAÐ SEM GERIR LEIKI VIÐ BÖRN SKEMMTILEGA Fimm til sex ára börn geta til dæmis verið ágætir mótspilarar i myllu eða dömu og hafa sizt minna gaman af þessum leikjum en Svarta-Pétri. Atta ára börn eru roggin af því, þegar þeim eru kennd undirstöðuatriði skáklist- arinnar og að spila á spil „eins og þeir stóru gera”. Og minni börn- in? Tveggja til f jögra ára börnum er eðlilegt að herma eftir heimi hinna fullorðnu. Sá sem á þeim aldri fær að hjálpa til við að þvo og bóna bilinn, hefur af þvi dæmalausa ánægju — svo fremi sem sá fullorðni liti á aðstoð hans sem raunhæfa.'Og ekki má reið- ast þvi, þó að það taki svolitið lengri tima að ryksuga teppin og Kakan hjá fjögra ára eldabusk- unni sé ekki nógu falleg i laginu. Foreldrar, sem leggja það á sig aö læra að leika sér með barni sinu, fá margs konar umbun. Þau hafa gaman af leiknum og þau kynnast barninu sinu náið. 1 leiknum tjáir það reynslu sina af umhverfinu. Eitt það bezta, sem foreldrar geta gefið börnum sinum, er timi. Sá sem kemur þvi I kring að leika sér við barnið sitt i hálfa klukku- stund á dag — og án undantekn- inga — fær rikulega umbun. Barnið verður ánægt og fær rika einstaklingsvitund. (Pabbi metur mig mikils fyrst hann má vera aö þvi að leika við mig.) Og auk þess áttar hann sig von bráðar á þvi, aö hann sjálfur hefur óhemju gaman af leiknum. Ljósmyndimar af börnunum tók Jó- hanna Hákonardóttir á Bamaheimili stúdenta við Stigahlið.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.