Vikan - 25.09.1975, Page 43
Olivicr — sny rtisérfræðingur
háuðalsins.
Áður farðaði hún sig aldrei.
Prinsessan var ekki ýkja hrifin af
sliku fyrr en átti að taka af
henni opinbera ljósm. daginn sem
hún varð tuttugu og eins árs. Þá
var hringt i snyrtisérfræðinginn
Olivier Echaudemaison og hann
látinn koma til Buckinghamhall-
ar frá Paris, og erindið til
Lundúna var að laga prinsessuna
til fyrir myndatökuna. „Ég snyrti
hana eins og hún ætti að taka þátt
i tiskusýningu, og hún var yfir sig
hrifin.” Þremur árum siðar skrif-
aði aðalhirðdama prinsessunnar
snyrtisérfræðingnum töfrandi
bréf. Nú þurfti hún aftur á aðstoð
hans að hajda, og nú var tilefnið
öllu stórkostlegra en áður — sjálft
brúðkaupið. Olivier gerði hana
forkunnarfagra brúði. „Hún hef-
ur fallegt enni, geislandi augu og
einkar fagran hörundslit”, segir
hann. Það, sem breytti mestu um
útlit prinséssunnar, var snyrting
augabrúnanna. Það er heldur
langtmilli þeirra, en Olivier bætti
það upp með þvi að leggja áherslu
ó bogalinu þeirra.
Anne er ekki eina prinsessan,
sem hefur leitað aðstoðar
meistarans. Þegar mikið stendur
Ul i salarkynnum furstans af
Monaco, er Oliver kallaður á vett-
vang. Þvi að snyrtingin er ekki
siður mikilvæg en hárgreiðslan.
>,Ekkert er verra en að farða sig
ætið eins. Tiskan breytist
stöðugt”, segir Olivier.
A átjánda afmælisdegi Caroline
áttu menn engin orð til þess að
•ýsa henni og ljósmyndararnir
stóðu á öndinni. Þessi káta skóla-
stúlka, sem til þessa hafði ekki
notað aðrar snyrtivörur en ofur-
litinn varalit og augnhárasvertu
til hátiðabrigða, var orðin að
ungri konu. Hún tekur sér móður
sina til fyrirmyndar. Oliver:
nPurstaynjan veit, hvað hæfir
henni. Hún undirstrikar persónu-
•eika sinn með styrtingunni.”
„Ég legg áhcrslu á augabrúnir
Anne”
Olivier gaf Anne prinsessu mörg
góð ráð fyrir brúðkaupið og siðan
hefur hún ætið gætt þess vand-
lega, að augabrúnir liennar séu
vel snyrtar, og hún litar aldrei
allar varir sinar — ekki til að
spara varalitinn, heldur til að
reyna að leyna þvi hve stórar þær
eru.