Vikan - 25.09.1975, Síða 44
MATUR
í MIÐRI
VIKU
Sænsk grýta
Hér er uppskrift af ljúffengum
sænskum rétti, sem auBvelt er aö
matreiöa, og er auk þess tilvalinn
gestamatur. Þessi uppskrift er
fyrir fjóra, en mjög auövelt er aö
matreiöa hann fyrir fleiri, meö
þvl aöeins aö bæta viö þvi sem til
þarf i réttu hlutfalli.
1/2 kiló magurt svinakjöt, 8 litlir
laukar, 50 grömm smjörlíki, 2-3
brytjuð epli, 125 g sveppir, 1-2
niöurskornir tómatar, 250 g belg-
baunir, 4-5 apríkósur, 1 appelsina
(i bátum) salt og karri.
Skeriö kjötiö I bita og brúnið
það á pönnu ásamt lauknum.
Þegar þvi er lokiö sjóöiö þá kjötið
og laukinn i vatni við litinn
hita I 15 minútur, áður en hinu
er bætt viö. Þegar allt, sem á aö
nota i þennan rétt, er komiö i
pottinn á að sjóða það i 15 minútur
til viðbótar, eða þar til eplin eru
orðin meir. Aö lokum er salti og
karrii bætt út i. Með þessum rétti
á að bera fram soðin hrisgrjón.
Gómsætar
hveitikringlur
Hver slær hendinni á móti
nýbökuðum kringlum með
kaffinu? Enginn, séstaklega
þegar þær erú bakaðar eftir sér-
lega góðri uppskrift og eru auk
jþess með kardemommudropum.
Og hérna er uppskriftin: 50 g
pressuger, 200 g smjör eða smjör-
liki, 4 dl mjólk, 2 dkl sykur, 1/2
tsk. salt, 1 tsk. karde-
mommudropar, 3 egg og 1.8 kiló
hveiti.
Setjið gerið i skál. Bræðið
smjörið i potti og hellið mjólkinni
saman við. Biðið þar til blandan
er orðin volg og helliö henni þá á
gerið, svo að það leysist upp.
Bætið sykri, salti, kardemommu-
dropum, hrærðum eggjum saman
viö hveitiö. Hnoöið deigið þar til
það er orðið mjúkt og teygjanlegt
og látiö það hefa sig þangað til
það hefur stækkaö um helming.
Hnoðið þá deigið aftur og búið til
lengjur i kringlurnar. Smyrjið
bökunarplötuna, penslið kringl-
urnar með eggjum, og bakið þær
siöan i ca 5 minútur við 25 gr.
hita. Þessi uppskrift á aö nægja I
um það bil 60 kringlur.
DROFN
FARESTVEIT
HUSMÆÐRAKENNARI