Vikan - 15.07.1976, Blaðsíða 15
Sigríður Gunnarsdóttir hjá
Trumph sportbílnum, sem kominn
er með V-8 Ford. Sigríður er
sannkölluð tryllipla.
m langri braut. Hljóðin ( 8 gata
tækjunum voru svakaleg, þegar
þau rótuðu af stað með svo
miklum látum, að sandurinn stóð í
strókum á eftir þeim. Misjafnlega
gekk mönnum að taka af stað.
Sigríður Gunnarsdóttir heitir eina
konan, sem tók þátt í þessari
keppni. Hún keppti á Triumph
sportbíl, sem búið var að bora 8
cyl. 289 cu. in., Fordvél í. Sigríður
stóð sig með prýði, og i siðustu
ferðinni, sem hún fór, náði hún
13.8 sek. á brautir'ii. Kynsystur
Sigríðar ættu að taka hana sér til
fyrirmyndar og láta meira að sér
kveða í bílasporti, því það sýndi
sig, að Sigríður hafði ekki síður
gott vald á bílnum en karlmenn-
irnir.
Útkoman úr fólksbílaflokknum
varð sú, að Stefán Ragnarsson
varð í fyrsta sæti á 12,8 sek.
ÍUKEPPNI
I
Átta gata tryllitæki á fleygiferð.
Stefán ók 1969 módel af Camaro
með 327 cu. in, vél. i ööru sæti
varð Gunnar Jónsson, sem ók
1967 módel Chevelle 396 cu. in.
Gunnar var með 13,2 sek., en átti
besta brautartíma í þessum flokki
11,4 sek.
Nú var loksins komiö að jepp-
unum, sem allir höfðu beðið eftir.
Jepparnir kepptu á 100 m langri
braut. Og nú byrjuðu lætin.
Dekkin undir jeppunum voru svo
breiö, aö þeir líktust einna helst
völturum, þegar þeir birtust. Eftir
tvær umferöir var oröin mikil
spenna í herbúðum kvartmílu-
manna, því litlu munaði á tlma.
Bestan tíma hafði Hjörleifur Hilm-
arsson, þegar hann stillti upp í
þriðja sinn og tætti af stað með
ógurlegum hávaða og með sand-
gusurnar langar leiðir á eftir
tækinu. En þá brotnað öxull I
framdrifinu, svo hann var úr leik.
Tveir náðu besta tima I jeppa-
flokki, þeir Daníel Sigurösson á
1964 módel Willis með Chevy 350
cu.in, og Vilhjálmur Ragnarsson á
Willis með 283 cu. in. Tfmi þeirra
var 6,9 sek. Bestum brautartíme náði
Hjörleifur Hilmarsson 6,7 sek., en
hann ók 1964 módel Willis með
327 cu. in. Chevy vél.
Keppt var líka í 4 og 6 cyl.
flokkum jeppa. I 4 cyl. flokknum
varð Jón Jónsson fyrstur með
10,3 sek., en í 6 cyl. flokki Einar
Ólafsson.
Peningaverölaunin voru í allt
250 þúsund kr., sem skiptust
þannig: 8 cyl. jeppar 70 þús. í
fyrsta sæti og 20 þús. í öðru sæti,
mótorhjól 1. sæti 40 þús. og í 2.
sæti 10 þús., 4 og 6 cyl jeppar 10
þús. hvor í 1. sæti. Tölur yfir
fólksbílana hef ég því miður ekki.
Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði
var þarna með sjúkrabíl, ef illa
skyldi fara, og slökkvitæki voru
dreifð um allt, en þau voru fengin
frá I. Pálmasyni. Keppni þessi fór
mjög vel fram í alla stað, og áhugi
á bílasporti sást best á því, að
5000 manns komu til að fylgjast
með þessari þeysireið á sandi.
British Leyland verksmiðjurnar,
sem nú framleiða Jagúar, hafa
ákveðiö að senda Jagúar aftur á
kappakstursbrautirnar eftir þrettán
ára hlé.
Á árunum um og eftir 1950 var
Jagúar mjög sigursæll í kappakstri
í Evrópu, og vann meöal annars
fimm sinnum hina tuttugu og
fjögra tíma löngu Le mans keppni i
Frakklandi.
Leyland mun senda tvo Jagúar
XJ 5,3 til keppni til að byrja með,
og fyrsta keppnin, sem þeir taka
þátt í, verður Salzburg á brautinni í
Astralíu, en það er sex tíma
keppni.
Ökumaður á öðrum Jagúar
bílnum verður bretinn Derek Bell,
sem ásamt France's Henri Pes-
carlo vann Le mans á síðasta ári.
Með Bell mun David Hobbs keyra.
En hinum bílnum munu Andy
Ranse og Steve Thompson aka og
verður gaman að fylgjast með því,
hvernig Jagúar gengur eftir
þrettán ára fjarveru úr keppni.
*
I
29. TBL. VIKAN 15