Vikan

Tölublað

Vikan - 15.07.1976, Blaðsíða 33

Vikan - 15.07.1976, Blaðsíða 33
eigin föt í stað þess að þurfa að fá þau lánuð hér og þar. Hálftíma seinna var hún komin í kjól og yfirhöfn, sem tilheyrði madame de Rémusat, her- bergisþernu hinnar fyrrverandi keisaraynju.en þær voru svipaðar að vexti. Marianne fékk sér sæti í vagni keisarans og hún var niður- lút Hún var sér ekki einu sinni meðvitandi um þann heiður, sem henni var sýndur. Fyrir hana hafði þetta enga merkingu, vegna þess að henni stóð nákvæmlega á sama hvort þessi geðilli, kubbs- legi maður, sem sat við hlið hennar, var keisari eða ekki. Fyrst hann elskaði hana ekki, hefði hún þúsund sinnum frekar viljað, að þetta væri einhver ókunnur maður. Minningarnar frá Butard gerðu nú ekki annað en auka á leiðindi hennar. Maðurinn sem hún elskaði var orðinn að dómara yfir henni, kaldur og skeytingarlaus eins og réttlætið sjálft. Hún óttaðist ferð- ina, sem hún átti fyrir höndum, vegna þess að hún vissi hvílíkt vald þessi harðbrjósta maður hafði yfir henni. Hún hafði þakkað Jósefínu og þessi milda kona hafði boðið henni að heimsækja sig við tækifæri, en um leið leit hún bænaraugum á keisarann, sem þóttist ekki sjá það. En jafnvel þessi vingjarnleiki hafði ekki náð að hugga Marianne. Hún var sannfærð um, að nú væri komið að lokaþætti þessa hildarleiks. Á morgun ætlaði hún að fara og finna Jason og fara með honum á brott. En hvað Napóleon ætlaðist fyrir með hana í nótt vissi hún ekki. Rétt áður en þau lögðu í hann, hafði Duroc litið inn í vagninn. ,,Er það til Trianon, yðar hátign?" „Nei, hvorki til Trianon né Saint Cloud. Við förum til Tuileries og láttu sendiboða fara og boða komu okkar!“ „Eins og yðar hágöfgi óskar.“ Dyrunum var lokað og þau óku í áttina að upplýsta hliðinu. Allt í kringum þau heyrðist hófadynur fylgdarliðsins. Marianne hafði tekið eftir, að Duroc gætti þess vandlega að minnast ekkert á Butard. Það var vafalaust staður, sem ekki mátti nefna framar. Valdamesti maður Evrópu vildi áreiðanlega ekki láta minna sig á, hvað þar hefði ger.st, milli hans og eins af njósnurum Fouchés. Er þau voru komin i gegnum hliðið var aðeins breiður vegurinn framundan. Mari- anne lygndi aftur augunum, sumpart til þess að aftra tárunum frá því að renna niður kinnarnar og sumpart til þess að njóta betur ilmsins af hinni spönsku jasmínu, sem fyllti vagninn. Grænu flauelspúðarnir ilmuðu og hún dró djúpt að sér andann líkt og allt væri þetta tekið ófrjálsri hendi. Þessi lykt tilheyrði manninum, sem sat við hlið hennar og þess vegna hluti af hamingjunni sjálfri. En svo heyrði hún hann segja. „Hver er þessi ameríkani? Elskhugi yðar?“ Hún svaraði án þess að líta á hann og reyndi að leyna sársauka sínum. „Nei, einungis tryggur vinur. 1 kvöld bjargaði hann mér úr fang- elsinu þar sem ég hef verið síðan..." Rödd hennar brast. En allt í einu fékk hún óstjórnlega löngun til þess að lúta lögmálinu auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. „Þér hafið spurt mig um ýmislegt varðandi líf mitt fram til þessa,“ sagði hún, „en hvers vegna spyrjið þér ekki, hvað ég hafi verið að gera þessa síðustu viku?“ „Ég veit það.“ „Nú, hvernig?" „A meðan þér voruð að snyrta yður spurði ég ýmissa spurninga. Mér þykir leitt að heyra hvað hefur gerst, en það er ekki mergurinn málsins. iivar hittuð þér þennan ameríkana?" Marianne var hneyksluð yfir þessari óhugnanlegu sjálfselsku. Nú missti hún alla sjálfsstjórn og hreytti út úr sér. „Þetta er maðurinn sem Francis Cranmere tapaði fyrir öllu þvi, sem ég hafði fært honum....og þar var ég sjálf innifalin .“ „Ég hafði þá á réttu að standa. Hann er elskhugi yðar.“ „Haldið þér að ég sé reiðubúin til þess að ganga í slík kaup? Þér haldió, að þegar einhver kemur til ungrar stúlku á brúðkaupsnóttina hennar og segir: „Eiginmanni yðar seinkaði og ég kem i hans stað, ég vann yður í spilum ', að hún muni þá umyrðalaust hleypa honum upp í rúm til sin? Framhald í næsta blaði. HóteL Selfoss. ^ Fjölskylduafsláttur á sunnudögum. Við erum í alfaraleið. Matur, kaffi og alls konar smáréttir s.s.: Hamborgarar, franskar kartöflur, samlokur, sósur og salöt. * Hótel Selfoss, simi 99-1230. CINNI & PINNI 29. TBL. VIKAN 33

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.