Vikan


Vikan - 17.03.1977, Síða 3

Vikan - 17.03.1977, Síða 3
Thurs19/4/73 Royal Circie og þeir, sem vildu, gætu bara farið inn aftur og beðið þar. Allir inn aftur, og ég ætlaði rétt að fara að kíkja svolítið á vörur þarna í frí- höfninni, þá var kallað aftur og allir af stað, þuklun aftur og út í vél. Fj.... þokan Það mun vera um einnar klukk- ustundar flug frá Glasgow til London. Guði sé lof, hugsaði ég, ekki lengra. Ég kíki á farþegana í kringum mig. Ástin mín situr auðvitað við hliðina á mér. Ég held, að flestir hinna farþeganna séu breskir. Mikið lifandis skelfing eru þeir rólegir, þeir bara haggast ekki, þegar flugstjórinn tilkynnir, að því miður séu líkur á að við verðum að sveima í eina klukku- stund yfir London, áður en við getum lent. Það er fj.... þokan. Sem sé klukkustund í viðbót. Mér verður hugsað til FLUG- LEIÐA okkar heima. Trúlega myndu þeir hugsa betur um farþegana sína við svona aðstæð- ur. Bjóða þeim kaffi eða drykk, en hér er ekkert slíkt á boðstólum. Ég er fúl út í bretana. Best að athuga farþegana betur. Margir eru að lesa dag- blöðin. Einn hefur fengið sér „beautysleep," sefur með galop- inn munn. Annar hallar sér aftur- ábak og hugsar greinilega afar mikið, sennilega „businessmað- ur" að gera áætlanir sínar. Og ég tek eftir manni með mikið skegg og svarta húfukollu á höfði, líklega er hann ,,rabbí." Autt sæti á milli hans og dömu, sem situr og starir út um glungann, eins og hún sé að telja skýin. Ein andar /éttar Eftir þó nokkra athugun á karlkyninu um borð kemst ég að raun um það, að minn er lang myndarlegastur, enda rammísl- enskur og af góðu kyni kominn. Nú tilkynnir flugstjórinn aftur, að heldur hafi rofað til, og við verðum því fljótari en ætlað var. Engin áhrif sjáanleg á neinum, nema kannski einni, sem andai léttar! Það er glampandi sól, ég skil bara ekkert í þessu með þokuna. Ég held, að mínum leiðist alveg hroðalega, ég tala bara ekkert viö hann. Held hann fyrirgefi mér samt, hann veit hvernig mér líður. Jesús, við eigum enn eftir klukkutíma. Maðurinn, sem situr fyrir framan mig, er á leið til Singapore. Ég yrði bara ekki eldri, en það er eins og hann hafi ekki gert annað um ævina en ferðast hnöttinn á enda. Nú er konan við gluggann búin að telja skýin og hallar sér makindalega afturábak. Til hvers ætli flugfreyjurnar séu í þessari vél? oARTHUR CONANDOYLE 1859-1950 ' Creator of SherlockHolmes lived he.-e 1691-IS94 endilega fara að lenda, en flugstjórinn er víst ekki sama sinnis. Hann bara sveigir og beygir og lætur öllum illum látum. Minn feraðminnastástærstu ,,T-bone" steik í London og bakaða kartöflu með. Ekki bætir það úr svengdinni hjá mér. Flugstjórinn aftur, húrra fyrir honum, við lendum eftir 15 mínútur, hann er draumur. Segi ykkur meira á morgun. Ég hlakka til að koma til London, ég elska London. Þar sér maður gífurlegan fjölda af fólki, mismunandi að uppruna og útliti. Ég er orðin svo hræðilega svöng, þrátt fyrir afbragðs morg- unverðinn, sem ég borðaði um borð í GULLFAXA. Nei, nú vil ég Vi/tu eitthvað ,,geggjað?-" London er svo stór borg, að sennilega þyrfti maður að dvelja hér mánuðum, jafnvel árum saman, til að kynnast borginni sæmilega vel. Aldrei hefi ég séð annan eins fjölda af leigubílum og strætisvögnum. Svo sér maður af og til æðislega Rolls Royce bíla. Ég þurfti auðvitað svona aðeins að lita í búðir. Og það verð ég að segja, að mikill munur er á afgreiðslufólkinu hér og heima á islandi. Við megum vera hreykin 11. TBL. VIKAN 3

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.