Vikan - 17.03.1977, Side 5
vín eða kampavín með matn-
um og kaffi, líkjör eða koníak á
eftir. Svo er upplagt að bjóða
henni enn einn drykk á eftir, og þó
hún segi kannski nei takk, þá...
Mótstaðan er sem sé í lágmarki
daginn eftir, og hún bara sam-
þykkir." En hvernig ég komst í
gegnum þennan dag, þrammandi
um götur Lundúnarborgar, það
veit Óðinn, en ekki ég.
Úr leikritinu The Circ/e eftir Somerset Maugham.
am. Leikritið fjallar um hinn svo-
kallaða eilífðar þríhyrning. Fín-
legum höndum fer skáldið um
ástina, og spurningin er, hvort
ástin sé þess virði, að öllu sé
fórnað fyrir hana, sjálfsvirðingu,
fjölskyldu og jafnvel eigin af-
kvæmi. Þeirri spurningu hlýtur
Hvers virði er
ástin?
Við fórum líka í leikhús og sáum
The Circle eftir Somerset Mough-
hver leikhúsgestur, sem sér þetta
leikrit, að svara innra með sér.
Ég vona sannarlega, að þetta
leikrit verði sýnt heima einhvern
tíma. Þarna fóru þekktir leikarar
með hlutverk m.a. Susan Hamp-
shire, sem lék Fleur í sjónvarps-
þáttunum um Forsyteættina, og
Martin Jarvis, sem lék Uriah Heep í
Davíð Copperfield, sem ísl. sjón-
varpið sýndi fyrir skömmu. AL-
deilis frábær leikari og stórglæsi-
legur maður, en hann leit sannar-
lega ekki svo glæsilega út í hlut-
verki sínu í Davíð Copperfield.
Svo skírt og fallega töluðu leikar-
arnir, að hvert orð kom til skila. Ég
tók eftir því, að leikhúsgestir hér
eru ekki nálægt því eins smekk-
Martin Jarvis
lega klæddir og heima. Ég fer að
halda, að allt sé betra heima, og
kannski er það rétt, sem máls-
hátturinn gamli segir okkur, að
heima sé best. Ég brá mér líka á
hárgreiðslustofu. Þar eru herrar,
sem greiða, en stúlkurnar sjá
aðallega um hárþvottinn og að
rétta meisturunum. Þarna eru
tveir til þrír herrar, sem sjá um
greiðsluna á hverri dömu, snúast í
kringum hana og reyna að gera
hana ánægða, en það verð ég að
segja, að árangurinn varð ekki
mjög góður. Alla vega er minn
meistari heima, sem er reyndar
herra, miklu færari og smekklegn
en þeir, sem þarna störfuðu.
Ég gæti sagt ykkur ýmislegt
fleira, en held, að nú sé nóg
komið. Flugferðin frá London til
Glasgow gekk vel, og ferðin frá
Glasgow til islands ennþá betur,
því alltaf er öruggast að fljúga
með FLUGLEIÐUM. Það finnst
að minnsta kosti þeim, sem
hafa fiðring í maganum, áður en
þeir ætla í flugferð. Ég hlakka til
að fljúga aftur....
★
Sýnishorn af skemmtiatriðum í
Talk of the Town.
11. TBL. VIKAN 5
WTé * ' i
Hl! mí '■ I