Vikan - 17.03.1977, Síða 13
Tómas: Hjá mér var langur að-
dragandi, eins og hjá Hilmari. Það
eru ein tólf ár síðan ég fór að gera
mér grein fyrir, að þróunin var ekki
eins og hún átti að vera. Ég var
búinn að reyna Flókadeild, en
gafst upp þar, og lenti satt að
segja á því þar inni. Ég fór til
kunningjafólks noröur í landi og
var þar í hálft ár í þeim tilgangi að
halda mér edrú, og ég hékk edrú á
fimmta mánuð eftir að ég kom
aftur í bæinn. Þetta var það
lengsta, sem ég náði, en mér leið
samt alltaf illa þetta tímabil. Ég
reyndi svo að berjast gegn þessu,
en það var eins og berjast við
vindmyllur.
Ég fylgdist náið með því, hvað
gerðist hjá Hilmari, en mér gekk
ekkert, og það voru orönar svo
slæmar hegðunarbreytingar hjá
mér, að fjölskyldan var gjörsam-
lega búin að gefast upp. Svo var
það einn morgun , að bróðir minn
kemurtil mín, eftir að hegöun mín
hafði keyrt um þverbak. Þá voru
málin komin i þau óefni, að ég var
búinn að brjóta allar brýr að baki
mér. Fjölskyldan hafði fram að
þessu beðið eftir minni ákvörðun í
Þetta er forsíða á bæklingi
er kynnir starfsemi Freeport
Hospital og þar stendur í
lauslegri þýðingu: Það
skiptir engu hversu ský of-
drykkjunnar eru dimm yfir
höfði manneskjunnar — Á
Freeport Hospital munum
við annast hana af sér-
fræðilegri þekkingu og
mannlegum skilningi. Nýtt
líf hefst þar.
Veritas Villa heitir endur-
hæfingarstöðin sem tekur
við þeim sem koma af Free-
port Hospital. Menn dvelj-
ast hálfan mánuð á Free-
port, en yfirleitt mánuð á
Veritas Villa, sem er upp í
fjöllum í New York ríki. St.
Jósepssystur reka þessa
endurhæfingarstöð.
No matter how heavily the
hazeofalcohol hangs
over someone, that
person will be cared
for with professbnal
knowleage
and human
undersland:
ing at...
FREEPORT
HOSPTTAL
A NEW LIFE BEGINS HERE
267SOUTH OCEAN AVENUE, FREEPORT N.Y 11520
(516) 378-0800
11. TBL. VIKAN 13