Vikan - 15.09.1977, Side 11
Skólaritvélcif
brother
BROTHER skólaritvélar hafa fariö sigurför um landið
og eru nr. 1 á óskalista allra nemenda i landinu og
allra þeirra, sem þurfa aö nota ferðaritvélar.
GERÐ 660 TR
villurnar. Á ekki að skrifa utaná-
skriftina svona: Pósturinn, Vikan,
Pósthólf 533, Reykjavík? Meö
fyrirfram þökk fyrir birtinguna.
E.K.
Þarna sérðu Þ. U. S.!!! Það
ganga flestir í gegnum þá erfiðu
reynslu, að finnast þeir útundan i
Hfinu! Vonandi verður þetta bréf
E. K. þér til hjálpar, og ég efast
reyndar ekki um það. Þá sný ég
mér að þér min kæra E. K. Gott
bréf frá þér. Skriftin þín ber vott
um svo/it/a fljótfærni, en úr henni
má einnig lesa að þú ert einlæg og
þrautseig persóna. Happatölur
þeirra, sem eru fæddir 17. ágúst,
eru 1 og 8. Ljónsfólk er óhrætt við
sann/eikann, og stekkur þegar á
það er ráöist. Oft er Ijónsfólk
misski/ið, þar sem það er sto/t, og
margir álíta þaö líta stórt á sig, en
þegar fólk nær að kynnast Ijóninu,
þykir þvi vænt um það, og Ijónið
ávinnur sér virðingu allra, sem því
kynnast. — Utanáskriftin til
Póstsins er alveg hárrétt hjá þér.
LISTDANSSKÓLINN OG FLEIRA
Kæri, elsku, besti.
Þetta er í fyrsta skipti, sem ég
skrifa þér, en ég vona að
ruslakarfan sé komin í nýja kúrinn
ykkar. Og nú ætla ég að troða
ofan í þig nokkrum léttum
spurningum:
1. Hvað kostar að gerast
áskrifandi að Vikunni ?
2. Hvaða inntökuskilyrði eru í
Listdansskóla Þjóðleikhússins?
3. Eru til einhverjar bækur um
naggrísi (ekki endilega á ísl-
ensku)?
4. Hvað kosta venjulegar ritvél-
ar?
5. Hver er litur og steinn þeirra,
sem eru í Ijónsmerkinu?
6. Hvaða merki passar best við
Ijónynju?
Svo er það klassíkin: Hvað lestu
úr skriftinni og hvað helduröu að
ég sé gömul?
Bæ, bæ,
Ein á ellimörkunum.
Áskriftarverð fyrir Vikuna er kr.
3.900 fyrir 13 tölublð ársfjórðungs-
lega eða kr. 7.370 fyrir 26 blöð
hálfsárslega. — Póstinum tókst
því miður ekki að af/a sér upp/ýs-
inga um inntökuskilyrði i Listdans-
skólann, þar sem Þjóðleikhúsið
var lokað, en þú skalt bara hringja
þangað með haustinu, og þar
ættirðu að fá allar þær upplýsing-
ar, sem þig vanhagar um. — Hjá
þeim bókaverslunum, sem Póstur-
inn hafði samband við, fengust
engar bækur um naggrísi, en
Borgarbókasafniö hefur líti/ hefti
um naggrísi, bæði á ensku og
/slensku. — Nú, svo biðuröu um
verö á,, venjulegum " ritvélum. Til
að byrja með, vil ég upplýsa þig
um, að flestallar ritvélar eru
venjulegar, en þó eru vist til
ritvélar með afbrigðilegu letri.
Venjulegar ritvélar flokkast þó allt
frá skóla- og ferðaritvélum, sem
kosta frá 25.000 krónum, og upp i
stórar skrifstofuvélar, sem geta
kostað a/lt upp í 300.000 kr. Litur
/jónsins er hvítur.
Steingeitin eða hrúturinn hæfa
Ijónynjunni best, en einnig getur
fiskastrákurinn hæft henni ágæt-
lega. Or skriftinni má lesa að þú
sért mjög fljótfær, og takir
ákvarðanir yfirleitt að vanhugsuöu
máli. Þú ert á ellimörkunum.
Pennavinir
Miss Margie Swollow, 4 Bevin
Court, Stonehouse Drive, St.
Leonards-on-Sea, Sussex TN38
9DE, Eng/and, óskar eftir íslensk-
um pennavinum. Hún er fædd
1944 og áhugamál hennar eru dýr,
póstkort, frímerki og pennavinir.
Mrs. Agnus A/len, 27 Cast/e
Gardens, Moodiesburn, Chry-
ston, Lanarkshire, Scotland, ósk-
areftir pennavinum á íslandi. Hún
er fædd 1941 og er þriggja þarna
móðir. Áhugamál hennar eru
bréfaskriftir, póstkort, ferðalög,
eldamennska, lestur o. fl.
Sólveig Bjarney Snorradóttir,
Fjarðargötu 34, Þingeyri, óskar
eftir pennavinum á aldrinum 6-8
ára.
E/sa Jóhannesdóttir, Vigur, isa-
fjarðardjúpi, óskar eftir pennavin-
um á aldrinum 16-20 ára. Elsa er
sjálf 16ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi
ef hægt er.
Svava Bjarnadóttir, Hraunbæ 134,
Reykjavik, óskar eftir pennavinum
á aldrinum 12-13 ára. Áhugamál
eru sund og hestamennska.
Christopher Ortiz, 14644 Long-
worth Ave., Norwalk, California-
90650, U.S.A., óskar eftir penna-
vinum á Islandi, helst stúlkum á
aldrinum 17-26 ára. Áhugamál eru
flestar greinar íþrótta, leiklist og
kvikmyndir.
GERÐ 1350
Vé/in, sem hagar sér eins og
rafmagnsritvél með hinni nýju
sjálfvirku vagnfærslu áfram.
8 stillingar á dálka.
Er í fallegri tösku úr gerfiefni.
Hefir alla kosti gerðar 1350 og
auk þess SEGMENT skiptingu,
valskúplingu og lausan
dálkastilli þannig aö dálka
má stilla inn eða taka út hvar
sem er á blaðinu
BROTHER skóiaritvélar eru úr stáli, eru fallegar
og traustar, en kosta samt minna en allar sambærilegar vélar
ébyrgð 2 ár. BORGARFELL
^ Skólavörðustig 23, simi 11372
Ertu búinn að ná í eitthvað skemmtilegt í sundlaugina?
37. TBL.VIKAN 11